Prentarinn - 01.06.1936, Side 1
PMENTAMINN
. ®
BLAÐ HINS ÍSLENZKA PRENTARAFÉLAGS
XVI. ÁR REYKJAVÍK, JÚNÍ—JÚLÍ 1936 2.-3. BLAÐ
PRENTARAHUGLEIÐINGAR II.
Nú liður að hausti. Sumarið hefur, að
minnsta kosti hér á Suðurlandi, verið venju
fremur sólrikt. ()g veturinn okkar er svo
langur og dinunur og oft harður og liryss-
ingslegur, að fólkið tekur fegins hencUjdiverj-
um hlýjum og fögrum sumardegi, og þá er
eins og þaS verði að nýrri og þróttugri
manneskjum. Og áhrif þessara daga, ef inenn
geta notið þeirra, veitir mönnum auðveldara
að bera þunga skammdegisins.
Prentarar eru svo lánssamir, að þeir eiga
tiltölnlega auðvelt með að njóta sólar og
sumars, þó að þeir vinni allt sitt skyldustarf
innan veggja. Vinnutiminn er stuttur og sól
á lofti ljómar, þegar þeir á daginn koma út
að loknu verki. Þeir hafa og langt sumarfrí,
sem flestir þeirra nota, eftir fyllstu getu. til
þess að fara burt úr borgarrykinu og njóta
anganar jarðar og jurta og fegurðar. Enda
þeysast þeir um landið, leita uppi fagra staði
og mikilfenglega og náttúruundur, klifa á
fjöll, klöngrast um liraun, veiða í ám og
vötnum, synda, fara á liestbak — og einstaka
bregða sér til annara landa.
En sumarið liður og það haustar að. Og
þá eiga prentarar að minnast þess, hverju
það er í rauninni að þakka, að þeir geta
notið sumars og sólar. Það eru samtök þeifra:
HÍP! Þeir ættu að vera þessa langminn-
ngir.
A haustin þurfir áhugastörfin að hefjast
með nýjuni krafti. Það er varla við því að
búast, að fristundum hins stutta sumars sé
eytt i inniviniiu, fundi og þviumlikt (nema
stjórnarfundi, því að aldrei er hlé á
þeim!).
Nægilegt er af verkefnum og nú er að-
staðan til starfa að mörgu leyti betri en áður.
Félagið hefur tekið á leigu herbergi i hinu
nýjá Alþýðuhúsi við Hverfisgötu og þar á
að verða miðstöð alls ])ess, sem gert er í
þágu stéttarinnar. Staðurinn er heppilegur:
stutt frá flestum vinnustöðvunum, svo að
þangað ættu félagar að eiga hægt með að
skjótast til skrafs og ráðagerða. Þar er hið
litla bókasafn, sem fljótt þarf að auka vel
og bæta — og nota.
En það er sérstaklega eitt verkefni, sem
þegar i haust og fyrri hluta vetrar og reyndar
fram á vor krefst mikillar og góðrar vinnu.
Það er undirbúningur 40 ára afmælis Hins
islenzka prentarafélags, 4. april 1937!
Það er varla vansalaust, hve stéttin hefur
á seinni timum gert sér lítið til hátíðabrigða
innan sinna eigin vébanda* En nú er tæki-
færi og gott tilefni ])ess að rísa úr doðadái
og láta verða dagamun í félagslífi preyitara.
Ejörutiu ára afmælið þarf að marka skýrt
og eftirminnilega i lnign livers einasta manns
og konu, sem að prents'lörfum viifua, og jafn-
vel fleiri en þeirra. œl
En þetta er ekki liægt nema íiieð undir-
búningi, miklum og góðum. Og á þessu þarf
að byrja strax i liaust. Það vérður að muna,
að allir þeir og þær, sem að þessu geta unn-
ið, liafa ýmsum öðrum störfum að gegna,
nuk prentvinnunnar, og því verður að dreifa
undirbúningi hátíðarinnar á margar lierðar
og hafa til hans sæmilega langan tima. Væri
lil dæmis ekki úr vegi, að kosnir yrðu eða
skipaðir 5 félagar til þess að sjá um þetta,
ásamt stjórn HÍP.
Eitt af því, sem nauðsynlegt væri að gert
yrði í sambandi við afmæli þetta, er það, að
samdar yrðu greinar, sem lýstu höfuðdrátt-
unum i þróunarsögu félagsins og þær birtar
i myndarlegu afmælisbláði af PRENTAR-
ANUM.