Prentarinn


Prentarinn - 01.06.1936, Blaðsíða 5

Prentarinn - 01.06.1936, Blaðsíða 5
PRENTARINN 9 STEINGR. GUÐMUNDSSON ÞRJÁTÍU ÁRA PRENTARI Það er eftirtektarvert, live margir þeirra, seni nú vinna að prentiðn í Reykjavík, eru komnir frá litlu prentsniiðjunum utan liöfuð- staðarins, og væri þetta vert rækilegrar at- hugunar. Þeir menn eru misjafnir á ýmsa lund, eins og aðrir, en einkum niun þó verða lagður á þá sá mælikvarði, hvort þeir séu góðir verkmenn eða ekki. ()g hefur það vist verið upp og ofan eins og gengur. En um einn þessara aðflytjenda, ef svo mætti lil orða taka, má fullyrða, að hann var fær maður á sínu sviði. Það er Steingrímur Guðmundsson, forstjóri Ríkisprentsniiðjunnar Gutenberg. Hann hóf prentnám á ísafirði haustið 1905 og vann þar lil vors 1910. Þá fór hann til Ak- ureyrar og i prentsmiðju Odds Björnssonar og vann þar fram á vetur 1911. Hún var ]iá í góðu áliti sem ein vandvirkasta prentsmiðja landsins, og mun Steingrimur hafa liaft gott af veru sinni þar. Til Reykjavíkur kom hann veturinn 1912 og gekk þá í HÍP og hóf vinnu í Gutenberg. Þar tóku menn fljótt eftir ])ví, að liann var framúrskarandi góður verkmaður, bæði fljótvirkur og vandvirkur, og mun hann einna fyrstur hér hafa lekið upp þá setningarreglu, sem nú ætti að vera orðin ófrávíkjanleg, að glenna linur jafnt, svo að heildaráferð lesmálsins yrði sem fegurst. Vann Steingrímur í Gutenberg til ársbyrj- unar 1914, en þá sigldi hann til Kaupmanna- hafnar og var þar i prentsmiðju S. L. Möllers til vors 1918. Kom hann þá aftur heim hingað og var í Gutenberg fram á haust 1919. Fór enn utan og vann nú i prentsiniðju Gylden- dalsbókaverzlunar í Khöfn uni 10 ára skeið. Á þessu timabili kynnti Steingrímur sér ræki- lega rekstur prentsmiðja og var þvi vel undir þá stöðu búinn, sem siðar kallaði hann heim. Árið 1928 fól þáverandi rikisstjórn Stein- grími Guðmundssyni að athuga kostnað við að stofnsetja nýja prentsmiðju, sem hæfileg væri til að annast prentun rikisins og stofn- ana þess. Kom hann Iiingað til lands suin- arið 1928 með áætlun um stofnkostnað nýrrar prentsmiðju og atliugaði ])á einnig tilboð um kaup á starfandi prentsmiðjum í bænum og gaf skýrslu um málið, en fór siðan aftur utan, eftir stutta dvöl hér heima. Sum- arið 1929 kom hann svo enn hingað og var þá sam- ið um kaup á prentsmiðj- unni Gutenberg. Mun liún hafa verið seld vegna þess, að eigendum hennar þótti ekki heppilegt, vegna sjálfra sín og stéttarinnar í heild, að hér væri komið upp nýrri prentsmiðju, sem fengi aðalverk Gutenbergs. Tók Steingrimur við forstöðu prentsiniðjunnar 1. janúar 1930. Það kóm strax í ljós, að Steingrímur var hagsýnn forstjóri, þvi að hann breytti ýmsn í betra horf, bæði lil hagsbóta verkamönnum og arðvænlegri afkomu fyrirtækisins. Var þegar fengin ný setningarvél, til viðbótar þeirri, sem fyrir var, og þeim fundinn heppi- legur staður i setningarsafnum. Prentvélar voru bættar og þeini fjölgað og letur endur- nýjuð, svo að nú eru flest hin eldri letur tekin úr daglegri notkun. Stærsta sporið til þess að gera kleifa frekari aukningu prent- smiðjunnar var þó stigið á síðaslliðnu ári, er reist var viðbygging, sem tekur yfir alla áður óbyggða lóð prentsniiðjunnar. Var kjallarinn aukinn uni nærri helming og prentvélasalur- inn stækkaður mjög mikið. Nú eru komin þrjú rúmgóð skrifstofuherbergi i stað eins áður, sem var óhæfilegt og þess valdandi, að forstjóri og skrifstofufólk þurftu að vinna aðalvinnu sina eftir venjulegar vinnuhættur. Vistlegt lierbergi með fataskápum, fyrir starfs- menn í vélasal og skrifstofu, og hreinlætis- tækjum er i nýbyggingunni og öllu smekklega fyrir komið, en lireinlætistæki fyrir starfs- nienn i setningarsal er uppi við inngang hans. Ofan á pappirsgeymsluhúsi eru svalir, sem ganga má út á úr setningarsal. Þar getur verkafólkið notið sólar á góðviðrisdögum í kaffitimanum. Svo mun til ætlazt. að síðar meir verði byggt ofan á prentvélasalinn og setningarsalurinn stækkaður á sama liátt og vélasalurinn. Bókband prentsmiðjunnar er á efstu hæð. Byrjaði það, eftir að Steingrímur lók við, i smáum stíl, en hefur verið aukiðeftir því, sem þörfin krafði. (Frh. á 10. hls.)

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.