Prentarinn - 01.09.1936, Qupperneq 2
u
PRENTARINN
slíkt kom fyrir, en það var æði oft, og oft
þegar verst stóð á. Var þá ekki um annað
að gera en taka bulluna úr og „pakka“ á ný.
Varð þá heldur en ekki stöðvun á préhtuninni
og kom það sér oft illa, þegar verið var að
prenta blaðið, sem þurfti að vera búið i bæ-
inn kl. 2. En oftast nær draslaðist það nú
einhvern veginn af, en mörgum svitadropan-
um kom sú horngrýtis bulla út úr vini mín-
uni Gunnlaugi 0. Bjarnasyni og reyndar
fleirum.
Annars á mótor þessi sér ekki ómerkilega
sögu. Var hann vist með fyrstu mótorum,
sem komið hefur liingað til landsins og átti
Eyjólfur heit. Þorkelsson úrsmiður hann. Átti
f.vrst að nota hann í Isafoldarprentsmiðju, en
þar reyndist hann of kraftlaus til að snúa
pressunni, enda hafði hann ekki nema %
hestafls. Svo átti hann að framleiða ljós í
ísáfohlarprentsmiðju, en ekki blessaðist það
heldur og seldi svo Eyjólfur Hannesi Þor-
steinssyni mótorinn til að snúa undir Þjóð-
ólfi og gekk |>að vel um skeið, eins og áður
-er sagt. En endalok hans urðu þau, að hann
sprakk. Var þá verið að prenta, er það skeði,
og varð heldur en ekki hlunkur, þegar höfð-
inginn sagði skilið við þcnnan lieim, þvi að
bullan tættist í smáagnir og mesta mildi að
slys hlauzt ekki af.
Eins og ég gat um áðan, var þetta sumar
(1904), hið mesta „sport“-sumar hjá okkur.
Höfðum við bát á leigu um sumarið og var
ýmislegt spaugilegt í sambandi við þá báts-
leigu. Okkur var lika nauðsynlegt að hafa
sjálfir yfir bát að ráða að einhverju eða öllu
leyti, ef veiðiskapurinn átti að vera i lagi.
Maður er nefndur Sveinn. Hann bjó inni i
Skuggahverfi og átti kænu dálitla. Þekktum
við liann og það að góðu einu, enda var hann
vandaðasti og bezti karl, en smáskritinn
stundum. Vildi hann gjarnan leigja okkur
kænu þessa um sumarið, en með þeim skil-
málum þó, að hann mætti nota hana á dag-
inn, er hann þyrfti. Var og ekkert því til
fyrirstöðu, þar eð við ekki gátum notað kæn-
una nema á kvöldin, þar sem við urðum að
stunda vinnu okkar á daginn, en vinnutim-
inn var ])á frá kl. 7 á morgnana til kl. 7 á
kvöldin, svo að þess vegna þurfti þetta ekki
að rekast á, enda man ég ekki eftir að slikt
kæmi fyrir. Nú áttu þeir Guðmundur og
Gunnlaugur báðir heima inni í Skuggaliverfi,
en ég veslur í Einholti; Sveinn átti Iika heima
þar inn frá, eins og áður er sagt. Var því
ekki nema eðlilegt að uppsátur okkar yrði
þar og ákváðum við því að hafa kænuna inni
i Klapparvör, þ. e. fyrir neðan „Völund“.
Voru þar á þeim árum margir bátar og viss-
um við, að ef eitthvað kæmi upp á, veður
spilltist eða þviumlíkt, mundi verða litið eftir
bátnum, þótt við ekki værum viðlátnir í svip-
inn. Reyndist það og svo. Ekki man ég nú,
hve leigan fyrir bátinn átti að vera há yfir
sumarið, en þó minnir mig hún væri eitthvað
4 eða 5 krónur. Þetta varð þvi að samninguin
með okkur og Sveini og leigðum við bátinn
af honum og áttum að mega að fara að nota
hann úr þvi lokin væru liðin hjá (11. mai),
enda hrognkelsi ekki gengin inn að Eyjum
(Akurev og Örfirisey) öllu fyrr. En lengra
gátum við varla vitjað um hrognkelsanet
vegna timaleysis okkar. Helzt minnir mig þó,
að við einhverra orsaka vegna ekki byrjuðum
þennau veiðiskap okkar fyrr en undir mán-
aðarmótin maí og júní. Minnir mig lielzt, að
það stafaði af því, að báturinn væri ekki til-
búinn fyrr, þyrfti að mála hann að innan o. fl.
Jæja, loksins rann upp sú hátíðlega og
mikla stund, að við þessir þrir: Gunnlaugur,
Guðmundur og ég, yrðum útgerðarmenn. Að
vísu vorum við á leigugnoð, en „sér eignar
smalamaður féð, þótt enga eigi hann kind-
ina“, og eins var með okkur. Sveinn tilkynnti
okkur hátiðlega og ekki með öllu laus við
fjálgleik, að nú stæði báturinn reiðubúinn
niðri í fjörunni milli steinbryggjunnar og
Brydes-verzlunar. Bátnum sagði karl að
fylgdu tvær árar, segl, fokka og austurtrog.
Hann væri nýmálaður að innan, gulur, og
yfirhöfuð svo vandaður og vel frá honum
gengið að leitun væri á öðru eins. Bað hann
okkur nú með mörgum fögrum orðum að fara
vel með bátinn og ekki ofbjóða honum,
hvorki með of mikilli siglingu né öðru
lmjaski, því |)á kvaðst karl mundu neita rétt-
ar síns og taka aftur af okkur bátinn, enda
þótt við værum þegar búnir að borga leig-
una. Hétum við öllu góðu hér um.