Prentarinn


Prentarinn - 01.12.1936, Blaðsíða 2

Prentarinn - 01.12.1936, Blaðsíða 2
26 PRENTARINN unuin væru búnir að fá samninga um styttri vinnutíma en 8 stundir á dag, og ef 8 stundir væri orðinn almennur vinnudagur hjá verka- fólki i öðrum greinum hér á landi, þótt við á hinn bóginn eigi fáum séð nein rök fyrir því, að daglegur vinnutimi prentara þurfi að vera styttri en annara manna. En vinnudag- ur prentara í Danmörku, Noregi og Svíþjóð er enn fullar 8 stundir og allur þorri verka- manna hér á landi vinnur enn meira en 8 stundir á dag. Þegar þar við bætist, að nú er enginn prentari hér í Reykjavik atvinnulaus, jjannig að vinnutímastyttingin verður ekki unnin upp nema annaðhvort með meiri auka- vinnu eða aukinni vélavinnu, þá er okkur ekki ljóst, livern hag prentarastéttin hefir af styttingunni. 2. í sambandi við óskir ykkar um hækkun á hundraðstölu fyrir aukavinnu viljum við benda á, að allmikið af þeirri aukavinnu, sem nú er unnin í prentsmiðjunum, er bein af- leiðing af því, að tala þeirra manna, sem prentverk stunda, er svo takmörkuð, að ef aukning verður á vinnu fram yfir það, sem almennt er, verður afleiðingin sú, að grípa verður til aukavinnu. Engin prentsmiðja læt- ur vinna aukavinnu, nema nauðsyn beri til. Og það, hversu fús'ar þær hafa verið á að bæta við sig starfsfólki síðustu árin, þegar þess hefir verið nokkur kostur, í stað þess að láta vinna litilsháttar aukavinnu, sýnir, hve hún er í raun og veru prentsmiðjunum óljúf. Sýnist oss þvi óþarft að fara fram á það. að prentsmiðjunum verði hegnt með því að gera vinnu þessa dýrari en nú er. 3. Prentarar hafa samkvæmt núgildandi samningi tvo frídaga auk almennra helgidaga, og hefur það jafnan staðið til boða af okkar liálfu, að hafa skipti á öðrum hvorum þess- ara daga fyrir 1. mai. 4. Þá konnim við að óskum ykkar um kauphækkanir. Prentarar munu nú vera með allra bezt launuðu stéttum landsins, auk þess sem kjör þeirra að öðru leyti eru mun betri og tryggari en annara verkamanna. Ýmsar starfsmannastéttir hafa á síðarí árum orðið fyrir rýrnun á kjörum sinum vegna lækk- unar á dýrtiðaruppbót þrátt fyrir nokkuð hækkandi verðlag, en prentarar hafa sam- kvæmt núgildandi samningi fengið verð- hækkunina bætta upp að verulegu leyti. Má einnig í þessu sambandi benda á, að á Norð- urlöndum er kaup prentara miklu lægra en hér, t. d. hafa prentarar í Svíþjóð i Stock- hólmi, kr. 03,60 i kaup á viku og mun lægra í smærri borgum, allt niður i kr. 40,30, í Nor- egi kr. 08,00 í 1. fl. og kr. 03,00 í 2., og i Dan- mörku kr. 03,00 í Kaupmannahöfn og lægra utan Kaupmannahafnar. Þvi verður að visu ekki neitað, að dýrara er að lifa liér en í nágrannalöndunum, en að sá munur nemi jafnmiklu og kaupmunur- inn, kemur ekki til mála. Þrátt fyrir þær athugasemdir, sem við höfum gert við óskir ykkar um breytingar á núgildandi samningi, myndum við fallast á að framlengja samningnum með þeim kauphækkunum, sem leiða af ákvæðum 10. greinar, og teldum rétt að láta hann gilda um jafnlangt tímabil eins og síðast. En við óskum líka nokkurra breytinga á samningn- um, þó eigi séu þær stórvægilegar. Við förum fram á, að heimiluð verði 3 vinnutímabil á sólarhring, og verði hið þriðja 0 stundir. Vegna þess, að nokkur ágreiningur virðist vera uin það, hvernig reikna skuii auka- vinnu i ýmsum tilfellum, vildum við fá þau ákvæði samningsins skýrar orðuð, og mun- um við koma nánar að því í munnlegum viðræðum við ykkur. Væntum við, að þið látið okkur vita, er þið hafið athugað þetta svar okkar, og eruni við jiá reiðubúnir til þess að hefja viðræður við ykkur/* Þriðjudaginn 15. des. var svo haldinn sam- eiginlegur fundur stjórnar HÍP og FÍP og forstjóra Ríkisprentsmiðjunnar Gutenberg. A þessuin fundi rak hvorki né gekk, og hélt 'hvor aðili ákveðið fram því, sem i bréf- unum stendur. Og stjórn HÍP hafnaði alger- lega málaleituninni um 3. vinnutímabilið á sólarliring. Næsti sameiginlegi fundur verður haldinn mánudaginn 21. des.

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.