Prentarinn


Prentarinn - 01.12.1936, Blaðsíða 8

Prentarinn - 01.12.1936, Blaðsíða 8
32 PRENTARINN t STEFAN RUNÓLFSSON PRENTARI - LÁTINN Hann lézt 22. október og var jarðaður 3. nóvember. Stefán Runólfsson var fæddur 28. deseni- ber 1803 að Bergvaði í Hvolhreppi i Rangár- vallasýslu. 15. maí 1885 bóf hann prentnám í ísafoldarprentsmiðju og vann þar í nokkur ár. Síðan var bann eitt ár við sjóróðra. Svo vann hann einn vetur i prentsmiðju Sigfúsar Eymundssonar og eftir það, lil ársins 1893, oftast nær í ísafoldarprentsmiðju. Þá um haustið ræðst hann til Skúla Thoroddsens á ísafirði og vinnur í prentsmiðju Þjóðviljans unga fram til vorsins 189(i. Haustið 1897 setti hann á stofn prentsmiðju og starfrækti hana til vors 1901, að hann seldi hana félagi á ísa- firði. Flyzt hann þá til Reykjavíkur og er forstjóri Aldarprentsmiðju i tvö ár, en hverf- ur síðan frá prentstörfum þangað til árið 1915, að hann tekur enn til vinnu í ísafoldar- prentsmiðju og er þar, unz hann hættir að fullu 14. april 1923. Hann gekk í HÍP 9. marz 1916. Stefán Runólfsson mun hafa verið einna fjölhæfastur allra islenzkra prentara, enda fekkst hann við margt um æfina auk prent- vinnunnar. Hann gaf út Iilaðið Hauk og var ritstjóri þess, en það var mjög vinsælt. Flutti það fréttir, mikið af myndum og sögur, og mun Stefán hafa verið brautryðjandi á þessu sviði blaðamennskunnar hér á landi. Man sá, er þetta ritar, hve mikill fengur honum þótti í lestri þessa skemmtilega blaðs. Stefán var og stuttan tíma ritstjóri blaðsins Reykjavík. Stefán fekkst við þýðingar leikrita, og leik- listinni helgaði hann mikinn tíma á seinni árum. Hann starfaði hjá Leikfélagi Reykja- víkur sem leilcari og gervibúningasmiður og þótti þar, að dómi kunnugra, ómissandi maður. Úrsmíði og ljósmyndagerð fekkst hann og talsvert mikið við. PRENTARINN sneri sér til eins þeirra manna, sem unnið hefur með Stefáni í prent- smiðju, og sagði hann þessi orð um þennan látna félaga: „Þau fjögur ár, sem við unnum saman, minnist ég ekki, að nokkur hafi orðið ósáttur við Stefán. Þó var það einu sinni, að lionum og öðrum sinnaðist ofurlítið, eins og reyndar oft kemur fyrir. Báðir héldu hlut sinum fram, en þó fór svo að lokum, að Stefán liafði betur. Hann var þéttur á velli og þéttur í lund, fjöl- hæfur maður og lagði á margt gerva hönd. — Nú er prentarastéttin orðin mannmörg. Ég efast ekki um, að i stéttinni séu bæði skáld og listamenn. Þó hygg ég, að fáir eða engir innan stéttarinnar séu eins fjölhæfir og Stefán var. Þeir komast þar að, en ekki fram yfir.“ Stefán Runólfsson kvæntist 3. marz 1899 Arnfríði Ólafsdóttur. Áttu þau mörg börn saman, og meðal þeirra eru Magnús prentari og Ólafur handsetjari, báðir í ísafoldarprent- smiðju. PRENTARAR UTAN REYKJAVÍKUR! Sendið blaðinu stuttar greinar eða fréttir um mál, sem við koma iðninni eða stéttinni. Reynum að láta PRENTARANN tengja sam- an, betur en verið hefur, félaga um land allt! — Heimilisfang blaðsins: PRENTARINN, Alþýðuhús Reykjavíkur. RITSTJORI: JÓN H. GUÐMUNDSSON Herbertsprent, Bankastræti 3, prentaði.

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.