Prentarinn


Prentarinn - 01.12.1936, Blaðsíða 5

Prentarinn - 01.12.1936, Blaðsíða 5
PRENTARINN 29 ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS OG PRENTARAR 13. ÞING SAMBANDSINS hófst 29. október 1936 og lauk 10. nóvember. Fulltrúar HÍP á þinginu voru Guðm. Hall- dórsson, Hallbjörn Halldórsson og Magnús H. Jónsson. Forsetar þingsins voru Héðinn Valdimarsson, Stefán Jóh. Stefánsson, Sigur- jón .4. Ólafsson og Hannibal Valdimars- son. Fulltrúar voru 155 frá 77 félögum, en i sambandinu eru 89 félög og meðlimatala þeirra er 12 231. Samsæti var haldið í Iðnó 3. nóv. Kvik- myndasýning fór fram í Gamla Bíó 6. nóv. fyrir fulltrúana og gesti þeirra og sýndar myndir úr sögu norsku alþýðusamtakanna: ,,Eining er afl“ og „Vér byggjum landið“. Kvikmynd var og tekin af fulltrúunum. Forseti var kosinn Jón Baldvinsson, vara- forseti Héðinn Valdimarsson, og meðstjórn- endur fyrir Reykjavik: Stefán Jóh. Stefáns- son, Jón Axel Pétursson, Ingimar Jónsson, Sigurjón Á. Ólafsson, Jón Guðlaugsson, Jó- hanna Egilsdóttir og Magnús H. Jónsson. Auk þeirra eru tveir meðstjórnendur úr hverjum landsfjórðungi. 19 nefndir störfuðu á þinginu og var Magnús H. Jónsson kosinn í iðnaðarmála- nefnd, en Guðmundur Halldórsson í laga- nefnd. Menntamálaráð, fimm manna, var í fyrsta skipti kosið á þessu þingi og er Ingimar Jóns- son formaður þess. Laganefnd var og kosin til þess að vinna milli þinga að endurskoðun á lögum sambandsins. Frá síðasta sambandsþingi, 1934, liafa Al- þýðusambandinu bæzt 24 félög og er með- limatala þeirra 1349. Sambandsfélög eru nú í öllum sýslum landsins nema Dalasýslu og Bangárvallasýslu. Alþýðusamband íslands var stofnað 1916 af Hinu isl. prentarafélagi, Verkamannafélag- inu Dagsbrún, Sjómannafélagi Reykjavíkur Verkakvennafélginu Framsókn, Sveinafélagi bókbindara og Verkamannafélaginu Hlíf í Hafnarfirði. MAGNÚS H. JÓNSSON hóf nám 9. nóv. 1!)11 í prentsmiðju Þjóðviljans, en lauk því í Gutenberg og hefur unnið þar síðan. Hann gekk í HÍP 10. júlí 1916. Magnús mun hafa starfað einna mest allra núlifandi prentara fyrir stéttina og unnið öll sín störf af miklum áhuga og dugnaði og trúmennsku. Hann var i verkfallsnefnd 1920, ritari sjúkra- samlagsins 1919—22, ritari félagsins 1924— 25, varaformaður 1925 og 1930, endurskoð- andi 1929—30, meðstjórnandi 1931 og 1933 og formaður 1923 og frá 1933. — Á síoasta Al- þýðusambandsþingi var hann kosinn í stjórn þess. — Hann átti 25 ára starfsafmæli 9. nóv. JÓN BALDVINSSON byrjaði nám í prentsmiðju Þjóðviljans á Isa- firði 1897 og fluttist með henni að Bessastöð- um á Álftanesi. Siðan vann hann í Gutenberg, þangað til hann gerðist forstjóri Alþýðu- brauðgerðarinnar 1917. 3. sept. 1905 varð hann meðlimur HÍP og hefur gegnt fyrir það mörgum trúnaðarstörfum, og fyrir lilstilli þess lagði hann út á braut stjórnmálanna og má félag vort vera hreykið af því, að því auðnaðist að tefla fram í þágu alþýðusam- takanna þessum glæsilega forystumanni. — Trúnaðarstörf hans í þágu þjóðarinnar eru svo mörg og margháttuð, að ómögulegt er að telja þau öll hér, en forseti Alþýðusambands- ins hefur hann nú verið i samfleytt 20 ár. Hann var kosinn á alþing 1921 og hefur setið þar síðan, og 6 ár var hann í bæjarstjórn Reykjavíkur. Hann á sæti í íslenzk-dönsku lögjafnaðarnefndinni og Gjaldeyris- og innflutn- nefnd. Jón er nú forseti sam- einaðs Alþingis og er það ein mesta virðing- arstaða með þjóð vorri.

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.