Prentarinn


Prentarinn - 01.12.1936, Blaðsíða 7

Prentarinn - 01.12.1936, Blaðsíða 7
PRENTARINN 31 BRÉF ÞORFINNS KRISTJANSSONAR FRÁ DANMÖRKU Á landsfundi prentara í fyrra var meðal annars rætt um það, að stofna sjóð, er vera skyldi til styrktar göinluin prenturum, er hætt- ir væru vinnu og ekki hefðuannaðen ellistyrk að lifa af, og nú er þetta mál komið í fram- kvæmd. Frá 1. október síðastl. fær hver sá prentari, sem hættur er vinnu og er fullra 05 ára að aldri 30 króna styrk á mánuði eða 300 kr. á ári. Hefur vikuiðgjald til félagsins verið hækkað um 50 aura á viku, sem svo rennur í þenna styrktarsjóð til uppgjafa- prentara. Þó er sá liængur við þetta, að styrkur þessi nær aðeins til þeirra prentara, sem létu af vinnu síðastl. haust. Það eru þvi margir gamlir félagar, sem ekki verða styrks þessa njótandi. Hefir þetta valdið töluverð- mönnum, að prentlistin væri flatarlisi, hefði aldrei verið og gæti aldrei orðið annað. A sjöttu samkomunni ræddi Hallbjörn um ..leturgerðir (gerði samanburð á fornumletur- gerðum og nýjum), línuskipanir á titlum, kenningar Einsteins liins þýzka um viðmið- að gildi hlutanna o. fl. Mesta athygli vakti mál hans um línuskipanir. Skipti hann jieim í þrjá aðalflokka: hina jöfnu línuskipan, þrí- skiptu og trektarlöguðu. Kvað liann liina jöfnu linuskipan vera elzta, eldri en prent- listina sjálfa og upprunna frá bókritunarlist miðaldanna. Hinni þrískiptu línuskipan skipti liann í fjóra flokka og kvað hana nær ein- ungis koma fyrir i sátri titla og atfella. Trekt- arlöguðu línuskipanina greindi hann í tvo flokka, hina réttu og öfugu.“ Eins og menn sjá á framanrituðu, er það ekki litill fróðleikur, sem prentarar gætu sótt til Hallbjarnar, og ættu þeir, sem geta, að borga honum fyrirhöfn hans og áhuga með því að fjölmenna vel á samkomur Prentlistar- sóknarinnar. Það mun hann þiggja bezt að ómakslaunum. Samkomum í sókninni er nú frestað fram yfir nýjár, en munu hefjast aftur fyrsta mið- vikudagskvöld í janúar næsta ár. Listin lifi! um umræðum innan stéttarinnar og lika óánægju af hálfu hinna gömlu félaga, sem ekki verða styrks njótandi. Það eru því allar líkur til þess, að þessu ákvæði verði breytt bráðlega, þannig að styrkurinn nái' til allra þeirra, er látið liafa af vinnu fyrir ellisakir. Að styrkurinn ekki er hærri, stafar af því, að ellistyrktarlögin ákveða, að styrkþegar megi ekki liafa hærri aukatekjur en svarar þeirri upphæð (360 kr. á ári), er hér hefur verið greind. Þótt styrkur þessi sé ekki hærri, kemur hann þó að góðum notum. Það standa nú samningar fyrir dyrum. Nú- gildandi samningar milli prentara og prent- smiðjueigenda eru útrunnir 1. febr. 1937. Hvað aðalsamningsatriðið verður, er örðugt að svara, eins og stendur, sennilegt, að það verði stytting vinnutimans og aukið sumar- leyfi. Hvað snertir stytting vinnutímans, þá má sjálfsagt fullyrða, að flestir séu þeirrar skoðunar, að um það geti ekki verið að tala, nema því aðeins, að launin haldist óbreytt. En skoðun manna er þó nokkuð skipt, hvað þetta snertir, einnig innan stjórnar félagsins. Það hefur seinustu árin verið gert talsvert lil þess að gera móttöku nýsveina hátíðlegri og hátiðlegri en tíðkazl liafði áður fyrri, ekki aðeins innan prentarafélagsstéttarinnar, held- ur líka innan ýmsra annara iðngreina. Prent- arafélagið hefur boð inni fyrir alla nýsveina einu sinni á ári. Býður formaður þá vel- komna i hóp hinna eldri sveina, og svo setjast menn að snæðingi (pylsugildi) og skemmta sér með samræðum fram að mið- nætti. Ég minnist í þessu sambandi „sveina- gildis“ míns: Heilflaska af 3- stjörnu koníaki, sem við drukkum við vaskinn í ísafold, kost- aði víst kr. 3,50, en síðan eru lika 30 ár! Khöfn, í nóvember 1936. Þorf. Kristjánsson. GJALDKERI HÍP er til viðtals á þriðjudögum kl. 6—7, í Alþýðuhúsinu, 4. liæð.

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.