Prentarinn - 01.01.1944, Síða 11

Prentarinn - 01.01.1944, Síða 11
letrið eða í myndirnar, sem við erum að prenta, og mynda stórar og smáar klessur, svo við þurfum oft að stanza vélina til þess að þvo og hreinsa þennan ósóma. Okkur hættir við að kenna þetta slæmri steypu, en orsökin er oftast önnur. Þegar við prentum forma, sem ekki fylla út í vélina, þá kemur liturinn sem seitlast út til hliðanna í litakassanum ekki að not- um við prentunina, en safnast á valsaend- ana og myndar þar húð. Af snúningshraða vélarinnar hitna svo valsarnir og afleiðing- in verður sú, að þeir byrja að molna. Gott ráð við þessu er að láta svolítið af olíu, feiti eða þunnu fernis á valsaendana, meðan vélin gengur. Ef um stór upplög er að ræða, er ráðlegt að láta tusku vætta með olíu í litakassann. Prentarinn verður að gæta þess, að valsarnir hitni ekki. Ef hann gerir það, endast þeir betur en ella. Eg vil aftur taka það fram, að góðir og vel hirtir valsar eru höfuðskilyrði fyrir góðri prentun; er því sjálfsagt að skipta um, þegar þeir eru farnir að grennast og harðna eða molna. Þvoið valsa að loknum vinnudegi, ef þið eruð með Iit í vélinni, sem hætta er á að þorni yfir nóttina. Það sparar bæði valsa og vinnu. Þvoið með steinolíu en ekki benzini. Munið, að losa um valsana að kveldi, svo að þeir liggi ekki saman yfir nóttina. — Gætið valsanna vel, það léttir og fegrar vinnuna. Geymið þá valsa, sem þið ekki notið daglega, í lokuðum skápum, og gætið þess, að smyrja þá vel með hreinu vaselíni. BENDLAR OG SNÚRUR. Það eru ýmis óþægindi, bæði stór og smá, sem prentarinn verður fyrir við vinnu sína, þar á meðal er það, þegar bendlar eða snúrur slitna, skemma bæði sats og tilrétt- ingu og þvælast utan um valsana. Til þess að komast hjá þessum vandræðum, er eina og sjálfsagða ráðið það, að gæta öðru hvoru að hvort þessir hlutir eru í lagi. Það er hægara að skipta um bendlana eða snúrurn- ar áður en þeir slitna alveg, með þvi að festa þeim nýja við þann gamla og með honum færa hinn nýja á sinn stað. Þegar nýr bendill er settur á, er betra að festa hann við hinn gamla með nálspori heldur en prjóni, því þá er síður hætta á að hann snúist, en snúnir bendlar eru leiðinlegir. Ef þessa er gætt, sparast hæði tími og leið- indi. Ef bendlar eða snúrur eiga að endast vel, þarf að gæta þess vandlcga, að ásar og rúll- ur snúist vel og liðugt, allt sé vel smurt, og ekkert of spennt. — Þegar færa þarf rúll- ur, þá varizt að slá í þær með berum hamr- inum eða lykli, því það skemmir á ýmsan hátt, skekkir rúllurnar, myndar ójöfnur á ása, svo að erfitt verður að færa til á þeim síðar. Hafið heldur tréklossa á milli eða notið tréhamar. Skennndir ásar og rúllur valda öru sliti á bendlum og snúrum. — Ef bendlar sem slitna, valda skemmdum á „dekki“ (án þess að „knúsa“ letrið) þá má oft hæta úr því með því að væta bælda staðinn með vættri tusku eða tvisti; við það ýfist og bólgnar pappírinn og fyllir upp. Ef það ekki stoðar, verður auðvitað að skipta um „dekk“. — Það er hægara að koma fyrir nýjum bendli eða snúru, ef maður veit hver lengdin er. Skrifið því hjá ykkur málið, svo þið getið fyrirfram klippt i ákveðnar lengdir. FÍNASTI PAPPÍRINN. f Síam er búinn til fínasti pappír, sem þekkist. Hann er framleiddur úr tré, sem heitir „Jon-Koi“. Börkurinn er soðinn, án þess að nokkuð sé saman við, hvorki lím né annað, og síðan valsaður í arkir. Síam- búar nola þenna pappír sérstaklega til þess að búa til úr honum hinar sérkennilegu Musterisbækur sinar, sem eru lagðar sam- an á svipaðan hátt og harmoníka. Áður en pappírinn er notaður, er hann gerður gljáandi með Kræklingsskeljum, og strax á eftir má skrifa á hann með bleki eða mála á hann með allskonar litum. Þessi pappír er mjög hentugur fyrir teiknara og málara; það sýna hinir undraverðu, lýsandi blóma- og jurtalitir í hinum máluðu musterisbók- um þeirra Síamsbúa. Hvað eftir annað hefur ríkisstjórnin i Síam fengið fyrstu verðlaun fyrir þennan pappír á stórum sýningum víða um heim. Prentarinn 25

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.