Prentarinn - 01.12.1944, Page 3

Prentarinn - 01.12.1944, Page 3
Reykjavlk des. 1944 23. árgangur 2. tölublað PREMTARINM BLAÐ HINS ÍSLESZKA PRESTAHAFÉLAGS • HITSTJÓRI ÁRNI GUÐLAUGSSON Stefán Ögmundsson: í verkfallslok Baráttu þá, sem nú er lokið, eftir rúm- lega mánaðar verkfall, hóf Prentarafélagið með þau áform í huga að jafna launakjör stéttarinnar innbyrðis og afla henni réttinda til jafns við þá launþega þjóðfélagsins, sem fengið liafa viðurkenningu drýgstra hlunn- inda. Flestuin þeim, sem kynntu sér kröfur okkar við þessa samninga, mun hafa þótt þær hóflega byggðar og þannig fram settar að auðvelt mundi að ná um þær samkomu- lagi á friðsamlegan hátt. Og enda þótt svo yrði ekki munu jafnvel andstæðingar ekki telja ósanngirni í kröfum liafa valdið þeirri stefnu, sem deilan tók. Til þess lágu ber- sýnilega aðrar og dýpri orsakir: hin tvíráða aðstaða, sem valdastéttin hafði um þessar mundir. Hún stóð á krossgötum og átti leiða- val, annarsvegar um samvinnu við verka- lýðsstéttina til friðsamlegrar þróunar um málefni þjóðarinnar, hinsvegar vettvang harðvítugra átaka milli stéttanna, þar sem styrkur beggja var slikur að tvísýna hlaut að rikja um úrslit. Kröfurnar, sem fyrir lágu frá hinum ýmsu félögum, sem í deilu stóðu, voru þó hið sjá- anlega þrætuepli, sem um var deilt og áttu úrslit þeiri ar deilu að marka þá stefnu, sem valin yrði í stjórnmálunum. Svo glöggt sýndu þessi átök hvert stefndi að þau á skömmum tíma leystu úr læðing öll þau öfl, sem ósk- uðu samstarfs um friðsamlega lausn þjóð- málanna í nánustu framtíð og úrslit hinna einstöku vinnudeilna urðu að sjálfsögðu i nokkru hlutfalli við þau áhrif, sem þær höfðu haft á þessa skipan stjórnmálanna. Kröfur prentaranna voru að því leyti mið- ur fallnar til harðra átaka en annara, sem i deilum stóðu, að kaupkröfurnar allar (nema aukavinnan) voru miðaðar við hækkun hjá minni hluta sveinanna, konum og nemum, en ekki hreyft við grunnlaunum vélsetjara, þótt hlunnindakröfurnar snertu að nokkuru leyti stéttina alla. Ég hef heyrt menn, sem bera gott skyn- bragð á verkalýðsmál, halda þvi fram að þetta væri svo einstæð samningabarátta, og reyndi svo mjög á þroska einstaklinganna, að slíkt væri ekki á færi nema allra traust- ustu stéttarfélaga. Það er hverju orði sannara, að hinar ýmsu kröfur, sem komu aðeins ákveðnum liluta stéltarinnar að beinu gagni, kröfðust skiln- ings þeirra, sem minna hlutu að bera úr býtum. En þessi skilningur kom glöggt í Ijós í verkfallinu, sem háð var i fullri ein- ingu og án nokkurra úrtöluradda, sem mark væri takandi á. Prkntarinn 13

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.