Prentarinn - 01.12.1944, Síða 6
Ólafur Sveinsson:
Þrjátín ára afmæli
vélsetningar liér á landi
í ár eru 30 ár liðin síðan fyrsta setningar-
vélin fluttist hingað til lands og tók til starfa.
Okkur ritstjóra „Prentarans“ kom saman
um að vel ætti við — og væri jafnvel skylt —
að minnast að nokkru þessarar iðnsögulega
merkilegu vélar, einkanlega þar sem starfs-
ferill hennar endaði á þessu ári, og þetta
geta því talizt nokkurskonar eftirmæli henn-
ar. Sá maður, sem sjálfsagðastur hefði verið
til að rita þessi eftirmæli er nú ekki hér á
landi, svo að ég hef tekið það að mér. En
því miður kynntist ég vélinni og rekstri
hennar ekki fyrr en rúmum tveim árum
eftir að hún kom og vissi því lítið eða ekkert
um fyrstu byrjunarörðugleikana; ef til vill
liafa þeir þó verið sögulegastir. En síðan.
allan starfstíma hennar, var allnáið samband
milli okkar og ég vann að staðaldri við hana
í 11 ár.
Vél þessi — Linotype, Model 10 — kom
hingað fyrri part árs 1914 í Prentsmiðjuna
„Rún“, er þá hóf starfsemi sína. Maður sá,
er „kom með“ þessa fyrstu setningarvél hing-
að til lands, var Jakob Kristjánsson prentari,
er áður hafði verið verkstjóri um tíma í Fé-
lagsprentsmiðjunni og þar áður hjá Oddi
Björnssyni á Akureyri. Forgöngumaður um
kaup á vélinni — og stofnun „Rúnar“ — mun
hafa verið Jón heitinn Þorláksson, þá lands-
verkfræðingur, og í félagi með lionum um
prentsmiðjuna voru þeir Pétur heitinn Hall-
dórsson bóksali og Þorsteinn heitinn Gísla-
son ritstjóri og ef til vill einhverjir fleiri.
Jón Þorláksson hafði kynnzt Jakobi, eins og
ýmsum fleiri ungum iðnaðarmönnum á þeim
árum, því að hann var þá forstöðumaður
Iðnskólans, og Jakob var þar einn vetur.
Gatzt Jóni svo vel að honum, að hann réð
hann síðar sem forstjóra að þessu nýja fyrir-
tæki þeirra félaga. Jakob hafði mikinn hug
á að mennta sig sem hezt, og þegar hann
fór úr Félagsprentsmiðjunni, sigldi hann til
Danmerkur og fór á lýðháskólann i Askov
og var þar einn vetur. Um sumarið eftir
var hann í Danmörku og vann um tíma i
prentsmiðju i Khöfn, en þá uin sumarið réðst
hann sem forstjóri þessa nýja prentsmiðju-
fyrirtækis. Um haustið fór hann til Lundúna,
á fagskóla Linotype-félagsins og lærði þar
á setningarvél, uppsetningu þeirra og rneð-
ferð. — Síðar lærði hann einnig, á þessum
sama skóla, að fara með aðra nýtizkuvél
á þessu sviði, sjálf-íleggjandi prentvél („Cen-
turette“). Báðar þessar vélar voru þá alger
nýjung hér á landi.
Model 10 — fijrsta setningarvélin hér á landi.
16 Prentarinn