Prentarinn - 01.12.1944, Síða 8

Prentarinn - 01.12.1944, Síða 8
húsnæðinu var háttað þarna, var þetta fyrir- komulag sérstaklega óheppilegt. Stór kola- ofn var hafður til að hita upp allan þennan stóra geim og hann var í endanum fjarst setningarvélinni. Veturinn eftir að eg byrj- aði í „Rún“ var frostaveturinn mikli, 1917 —18. Þá var oft svo kalt, að maður varð að standa upp frá vélinni alltaf öðru hverju, til að berja sér!, og einn daginn, er við mæld- um „hitann", komst mælirinn aldrei hærra en í 2 stiga frost á vélarborðinu, allan dag- inn! og úti við gluggann var 7 stiga frost. Þetta var á mánudegi. Það er kalt verk, að sitja í frosti við vélsetningu marga klukku- tíma á dag. Var undravert, að maður skyldi ekki hiða varanlegt heilsutjón af þessari að- búð. Mér vitanlega varð þó engum okkar, sem þá unnu i „Rún“, meint af þessu. Eg get getið þess t. d., að þótt kyrrseturnar við vélina lentu einna mest á mér, þá vann eg Víðavangshlaupið um vorið. — Eftir af Fé- lagsprentsmiðjan keypti „Rún“ — þenn- an sama vetur, — fengum við olíuofn til að hita upp horðið og í kringum okkur. En einn morgun hafði ofninn hitað svo mikið, að snertifletir ýmsra stafanna á borðinu höfðu hálfbráðnað, svo að vélin bar þess alllengi menjar. Má því segja, að vélar- greyinu var margt misjafnt boðið þennan vetur. Auk þess sem þetta ólag á upphitun vinnustofunnar olli okkur miklum töfum og óþægindum, hafði það auðvitað mikil áhrif á gang vélarinnar; allt var dræmt, og hæði setning og aflagning gekk seint og silalega. Og þegar svona var kalt, var ógerningur að prenta neitt. Eins og allir vita var elds- neyti þá rándýrt, svo að kostnaður við upp- hitun var gífurlegur, þótt árangurinn yrði svona lélegur. — Svo var gashreyfillinn. Hann átti það til, að stöðvast þegar hlaðið — „Lögrétta" — var alveg tilbúið til prent- unar; kannske eftir að setja einhverja smá- klausu eða að leiðrétta nokkrar linur. Þá varð maður að fara að koma honum á stað aftur — og auðvitað ata sig allan út við það. Þetta gat stundmn tekið 1—2 eða jafnvel 3 tíma, eftir atvikum. Það má segja, að til þess að vera vélsetjari þá, þurfti maður líka að vera „mótoristi", eða a. m. k. að þekkja kenjar þessa hreyfils; það var óhjákvæmi- legt. Þrátt fyrir alla þessa annmarka og örðug- leika, var samt mikið unnið á vélina og talsvert prentað í „Rún“ af bókum og tíma- ritum, auk „Lögréttu", sem var vikublað. Auðvitað átti dugnaður Jakobs og starfshæfni mikinn þátt í afköstum vélarinnar, en það, að unnt var að reka prentsmiðjuna undir þessum aðstæðum, sýndi, hve möguleikar vélsetningar væru hér miklir, ef aðstæður breyttust svo, að þær kæmust á eðlilegt stig, t. d. þegar rafmagn fengist. En svo brást gasið; Gasstöðin gat aðeins selt gas til bæjarbúa 3—4 tima á dag. Og þá var rekstur prentsmiðju, sem eingöngu hyggði vinnu sína á gasvélarekstri algerlega stöðvaður. Þá varð að handsetja „Lögréttu“ í Félagsprentsmiðjunni og upp úr þeim vand- ræðum keypti Félagsprentsmiðjan „Rún“. Nokkru síðar lagaðist eitthvað með gasið og hægt var að halda áfram rekstri vélarinnar, eins og áður, og nú var önnur vél komin, sem Félagsprentsmiðjan hafði keypt frá Ame- riku. Félagsprentsmiðjan bætti nokkuð að- stöðu sína í þessu efni, er hún keypti stóran hreyfil, sem luin lét framleiða rafmagn og safna í geyma handa vélunum; ])ó gekk það nokkuð skrikkjótt, því að geymarnir vildu tæmast fljótt á kvöldvaktinni. Það var ekki fyrr en Reykjavikurbær byggði rafmagns- stöðina við Elliðaár (1922) sem rekstur setn- ingarvéla komst í það horf, sem hann nú er í, og teljast má nokkurnveginn eðlilegt og hliðstætt erlendum aðstæðum. Nú í ár, 1944, 30 árum eftir að hún hóf starfsferil sinn, var „Rúnar“-vélin „tekin úr umferð“ og verður ekki notuð framar. Hún hefði að vísu getað enzt lengur, með endur- nýjun á ýmsum stykkjum, en hún varð að víkja fyrir „yngri kynslóðinni“, og ln'in var búin að vinna sitt dagsverk vel. Hún hafði áreiðanlega borið eigendum sínum góðan á- vöxt, og ekki aðeins eigendum sinum, lield- ur líka „stétt sinni“; íslenzku prentarastétt- inni, sem tók henni með kulda og leit hana illu auga og hefði helzt viljað henda henni út i hafsauga, þvi hún hélt i einfeldni sinni og skammsýni, að hún væri komin til þess að taka vinnuna úr höndum hennar og brauð- ið frá börnum hennar. En hún gerði hvorugt. Hún gerði hið gagnstæða. Hún færði þeim 18 Prentarinn

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.