Prentarinn - 01.12.1944, Qupperneq 10

Prentarinn - 01.12.1944, Qupperneq 10
manni, sem ég að visu hafði verið samtíða, og taldi mig þekkja svo lilið en var ómann- blendinn og skipti sér að jafnaði lítið af öðrum. Upp frá þessu tók ég að kynnast Gabriel. Varð okkar kunningsskapur því meiri sem ég dvaldist lengur með þeim mæðginum. Vitanlega forðaðist ég að gera þessum hús- bændum mínum nokkurn átroðning, en ekki leið á löngu þar til húsmóðirin tók að líta inn um dyrnar til mín, þær voru beint á móti, og bjóða mér að koma yfir um og þiggja kaffibolla. Það er ekki að orðlengja það, þessar heimsóknir urðu að föstum vana og ég kunni betur og betur við mig í félags- skap þeirra mæðgina. Við fyrstu kynni og eftir lýsingu sumra, þeirra sem aldrei kynntust Gabriel nema i umgengni á vinnustofunni, mátti ímynda sér, að heimilislíf þeirra mæðgina væri þannig, að Gabríel kæmi skálmandi frá vinnunni, þeytti af sér hlífðarfötum, en tæki síðan að rása fram og aftur á gólfborðunum, haf- andi allt á hornum sér, urrandi með kryppu upp úr bakinu, og hárin standandi í allar áttir, en gamla konan fæli sig bak við stól eða rúmgafl eða þar sem helzt væri lífvæn- legt. Engu sliku var til að dreifa. Gamla konan hugsaði um húsið, en Gabriels fyrsta verk, þegar heim var komið var það, að taka til við lestur, en bókasafn átti hann mikið og vandað, sérstaklega sögulegs efnis en einnig skáldskaparlegs og var ötull að afla þeirra bóka i safn sitt, er voru honum hug- leiknar, og trauðla var hægt að hugsa sér friðsamlegra heimilislíf. Þegar ég kom inn til lieirra, hóf Gabriel vanalega að segja frá ýmsu, mönnum eða málefnum, úr bæiarlíf- inu frá hans yngri árum, var það bæði fróð- legt og skemmtilegt, þvi Gabríel sagði vel frá og var stálminnugur og skemmtilegur i frá- sögnum. Hann hafði verið sandiðarmaður Steingríms Thorsteinson, Benedikts Grön- dal og þeirrar tíðar manna og jafnvel oft verið sendur með prófarkir heim til þeirra af verkum sem fyrir ])á voru prentuð og hafði hann frá ótalmörgu að segia af hátt- um þessara manna og fleiri, en Gabríel tók vel eftir þvi. sem honum þótti þess vert. Var hann þá ekki þurr á manninn, en lék á als oddi og var hinn glaðværasti, en hversu oft sem ég kom á þessa „kvöldvakt“ varð aldrei þurrð á skemmtilegum frásögnum Gabríels og alltaf var mér það óblandin ánægja að vera velkominn á heimili þetta, en ég var það upp frá þessu og til hins siðasta. Gabríel hélt sig mikið lieirna framan af meðan móður hans naut að; mundi hann hafa getað sagt um heimili sitt það sama og Englendingar segja: „My home is my castle". Hann var óvanalega ómannblendinn maður og fór hjá sér i margmenni, en fyrir- leit allt slentur á götum úti, sökkti sér al- gerlega niður í hugðarefni sín, en var ókunn- ugur tilveru þess, sem þar var fyrir utan. Lif hans framan af varð því mest kyrrsetur. Gabríel gat samt verið atorkusamur ferða- maður ef því var að skipta og kom það mér mjög á óvart í gönguför sem við fórum árið 1919 upp Mosfellsdal, niður Ivjós og á Kjalarnes en þaðan til Reykjavíkur. Ég varð ekkert hissa á því, að hann þekkti alla bæi og öll örnefni og sögu þeirra og gat frætt mig um þetta allt, en ekkert af þessu hafði hann áður séð öðruvisi en af lestri og sýndi þetta bezt með hversu mikilli athygli hann las er hann kaus að fræðast. Hitt kom nr>' á óvænt hversu þolinn göngugarpur hann var og átti ég fullt í fangi að fylgja honum þótt ég væri vanur gönguferðum í þá daga. í þessari ferð lét Gabríel sig ekkert muna um það að skreppa heim að bæ eða upp á einhverja hæðina, ef hann fyrir það fékk gleggra yfirlit yfir það sem hann vildi fræð- ast um. Benedikt Gabríel Benediktsson var lengst- af prentari og féll það slarf vel, en hann var lika afburða ættfræðingur og hefur sam- ið mesta fjölda ættartalna, en sögufróður var hann svo af bar um islenzk efni og það var metnaður hans, sjálfs sín vegna og fyrir hönd stéttar sinnar, að gutla þar ekki ein- vörðungu á yfirborðinu. Furðaði mig oft á því hve nenninn hann var að tala við mig um þessa hluti annað eins kálhöfuð og ég er á þessu sviði, en það sýnir bezt hversu hug- leikin honum voru þessi mál. Ég veit til þess að Gabríel safnaði drögum að sögum ýmissa merkra manna og er það verk sögufróðra að gaumgæfa það og nýta. Sjálfur viðurkenndi Gabríel að hann væri ekki rithöfundur eins og það orð vanalega er skilið og hefði ekki 20 Prentarinn

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.