Kristilegt stúdentablað - 01.12.1944, Blaðsíða 13

Kristilegt stúdentablað - 01.12.1944, Blaðsíða 13
B KRISTILEGT STÚDENTABLAÐ Hann kenndi þó ekki skólanum um það, heldur sjálfum sér. Hann átti að verða prestur. Trúuð móðir hafði helgað hann Guði strax eftir fæðinguna. Hann liafði hcyrt kall Guðs til sín hvað eflir annað, en ekki fengið sig til að hlýða því heils hugar. Hann vissi að mesta, já, eina nauðsyn lífsins var að ganga Drottni á hönd, samt ætlaði hann að híða mcð það þangað lil hann kæmi til Halle. Þar, á meðal guðelskandi manna, hlaut það að vera auðvelt, gerast sjálfkrafa. En önnur varð reyndin. Aldrci hafði hann verið jafn óánægður með sjálfan sig og aldrei fundizt hann vera fjarlægari Guði, en einmitt eftir að hann fór að kynnast trúarlífinu í Halle. Hann lagði því harðara að sér við námið sem samvizkan var órólegri. Hann las og las og gat að lokum hvorki neytt svefns né matar. En þegar mest lá við og hann var að því kominn að örvænta, þá hirtist Jesús sjálfur honum. Eftir það varð gleði hans og trúardjörfung enn meiri en hryggð hans og vonleysi hafði áður vcrið. Það hafði slórkostlcg áhrif á Schwartz, ])egar hann fyrst kynntist kristniboðsmálinu í Halle og hlustaði á frásögur kristniboða um neyð heiðingj- anna og um starf sitt og árangur þess. Kristni- boðsvinir buðust til þess að lcosta hann til starfs, ef hann vildi fara til Indlands. En hann ætlaði að verða prestur. Hann fór nú að lcggja þetta fram fyrir Guð í bæn og sannfærðist um það, eftir al- varlega yfirvegun, að Guð ætlaði honum að verða kristniboði. Hann varð að leita samþykkis föður síns. Þegar hann var á lciðinni heim, gafst honum sælurík fullvissa um köllun sína, til að fara til hcið- ingjanna, en þó átti hann erfitt með að stynja því upp við föður sinn, sem honum lá nú á hjarta. Hann svaraði engu í fyrstu, gamli maðurinn. Hann minntist ekki orði á þetta í þrjá daga og hafðist mikið við í einrúmi. Loks kallaði hann son sinn fyrir sig, á fjórða degi, og mælti hátíðlega: „Far þú hurt úr landi þínu og frá ættfólki þínu og úr luisi föður þíns, til landsins, sem Guð mun vísa þér á!“ Síðan lagði hann hendur yfir hann og blessaði hann. Þannig kvöddust þeir hinzta sinni. Schwartz kom til dönsku nýlendunnar Tranke- bar á Indlandi miðsumars 1750 og var vel fagnað af lúthersku kristnihoðunum fimm, sem voru þar fyrir. Og nú hófst starfsferill Schwartz svo viðburða- ríkur og ævintýralegur, að hér vcrður ekki drepið nema á fátt eitt. Starf hans skiptist niður á þrjú tímabil eða þrjá staði á Indlandi: Trankebar 1750 —62, Trichinóborg 1762—78 og loks Tanjore 1778 -98, en þar dó hann eftir að hafa unnið að kristni- boði í 48 ár og aldrei tekið sér hvíld. Trankebar. Fyrstu starfsárin urðu Schwartz erfiðust (eins og flestum kristnihoðum öðrum), meðan hann var að venjast mataræði og loftslagi, læra málið,kynna sér bókmenntir, trúarbrögð, sögu og þjóðlíf lands- manna. Ilann gekk í gegnum mikla sjálfsprófun og háði erfiða baráttu í tvö ár gegn efasemdum og synd, unz sól réttlætisins í Kristi rann upp fvrir honum mcð lækningu fyrir særða samvizku og hann gat aftur glaðzt í frelsara sínum. Samverkamönnum sínum varð hann til því meiri blesunar, sem hann var þeim reyndari á ýmsan hátt. Hann var heittrúaður, kærleiksríkur og fórnfús, neitaði sér um flest lífsþægindi, til þess að gcta helgað sig köllunarverki sínu óskiptur. Schwartz fór í langar trúboðsferðir á þessu tímabili, en vann þó mikið að kennslu. Hann var maður vel lærður og virðist hafa haft jafu mikla hæfileika sem kcnnari og prédikari. Trichinóborg. Eftir að hafa verið lífið og sálin í öllu kristni- boðsstarfi í Trankebar í 12 ár lét Schwartz leið- ast til að flytja um stundar sakir til Trichinó- borgar. Enskur sctuliðsforingi hafði lagt mjög fast að hónum að hefja þar starf. Schwartz varð þar í 16 ár. Borg þessi er í heitasta hluta Indlands. Sé svo tckið tillit til þcss, að Schwartz var alla tíð afar- lieilsutæpur, þá er óskiljanlegt, hve miklu hann fékk þar áorkað. Hann prédikaði Guðs orð í borginni og þorp- unum í umhverfinu, hæði fyrir heiðingjum og Múhameðstrúarmönnum. Trúnemum kenndi liann í marga mánuði, áður en hann skírði þá. Hann stofnaði skóla og kcnndi sjálfur 4 tíma á dag, þegar hann kom því við. Þrjár guðsþjónustur hélt Framh. á bls. 21. 13

x

Kristilegt stúdentablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristilegt stúdentablað
https://timarit.is/publication/734

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.