Kristilegt stúdentablað - 01.12.1944, Síða 20

Kristilegt stúdentablað - 01.12.1944, Síða 20
KRISTILEGT STÚDENTABLAÐ Reynsla Augusts Strindbergs. Það var einu sinni menntaskólaneinandi, sem kom hvern sunnudaginn á fætur öðrum i Betle- hemskirkjuna i Stokkhólmi og hlustaði á Rose- nius. Iiann var álitinn ákveðinn, trúaður og krist- inn piltur. Hann var hyrjaður að vitna um trú sína, og hann liaí'ði fengið köllun til þess að verða kristnihoði . . . En svo fór sætið hans að verða autt. Hann hafði komizt i efascmdir og vantrú. Hann var farinn að elska heiminn og var glap- inn af ginningum hans og gagntekinn af girnd- um lians. Hann sökk dýpra og dýpía i syndina, Jafnframt varð hann hitur andstæðingur, sem réðist með hatri og kaldhæðinni óskammfeilni á kristindóminn, krossinn og endurlausnarblóðið. .. . En barátta hans var ekkert annað en har- átta gegn innri sannfæringu lians sjálJ's. Við endalok lífs síns situr hann aftur í sömu kirkju og hlustar á sama íagnaðarerindið um krossinn og endurlausnarblóðið. Þá verður hann að játa með sorg: „Hreinskilnislega sagt, ég kenni alla óhamingju mína þeirri einu orsök, að ég licf verið guðlaus .... lig gæti regndar mér til afsökunar nefnl kennara minn í æsku, sem afneitaði kristindóm- inum. En ég vil taka sektina 11 sjálfan mig, þá finn ég ef til vill EINN, sem vill hera hana fgr- ir mig . .. . “ Maðurinn ákvað líka, að kross skyldi rcistur á gröf sinni, og að krossinn skyldi boða reynslu hans um hinn eina veg til hjálpræðis: Hcill þér kross, einasta von mín! Nafn mannsins var August Strindberg. Hversu margir eru þeir, sem liafa farið burtu sömu leið. Oft var efanum kennt um, þó að raun- verulega orsökin væri ef til vill kærleikur til syndarinnar. Margir komast ef til vill fyrr eða siðar til bernskutrúar sinnar, cn hvílíkur sökn- uður og sorg er fólgin i þessu, að þeir hafa sóað dýrmætum æskuárum sínum og glatað mann- dómsárum sínum. Ilversu margir eru þeir, sem yfirgefa Guð á námsárum sinum og verða andlegir örkumla- menn .... Það var einmitt á þessum árum, sem skapgerðin átti að mótast, hugsjónirnar að skap- ast og markmið lífsins verða að veruleika! En menn voru svo óhrifagjarnir, svo hræddir við að standa einir og hæddir, svo huglausir, að þeir jiorðu ekki að skera sig úr hópnum .... (Tekið úr lengri grein eftir Dr. Fride Hylander i Missionstidning Budbáraren). Kirkjufundur. Gamall bóndi sótti kirkjufund. Hann hlýddi með gaum- gœfni á allar umrœður og tillögur fundarins. Þetta var ekki i fyrsla skiptið, sem hann var á slíkum fundi, en alltaf höfðu umræðurnar snúizt um svipað efni. „Sjáið þér nú til, séra minn,“ sagði hann við sóknarprestinn sinn. „Það er eitt, sem mér finnst skrítið, þegar þið kirkjunnar menn komið saman. Þið hafið nú i allan dag verið með umræður og tillögur um j)að, hvernig þið eigið að auka kirkjusóknina. Eg veit ekki til, að við bænd- urnir höldum nokkurn tíma fundi til að ræða um, hvernig við eigum að fá skepnurnar okkar að jötunni. En við leggjum okkur fram til að hafa fóðrið sem bezt. Og svo datt mér í liug, að ef þið hefðuð það eins og eydduð meiri alúð Og tíma til að vanda það, sem í jötuna er látið, þá mynduð þið liklega ekki þurfa að eyða eins miklum tíma í umræður um, hvernig þið eigið að fá fólkið til að koma. (Christian Digest). Ath. Þeir, sem tekið hafa trú á Jesúm Krist og lifað hon- um, votta það allir sem einn, að hjá honum hafi þeir öðiazt fyliingu Jífs og öryggi, sem þeir Jiafi hvergi ann- ars staðar fundið. Vitnisburðirnir um það, að lif í sam- félaginu við hann sé þreytandi, dautt oog dapurlegt, ber- ast aftur á móti frá þeim, sem aldrei liafa reynt það. Hvorir heldur þú, að séu dómbærari í þessu efni? Ilvor- ir hlutlausari? Hvorum finnst þér réttara að treysta? Að sannleikanum um jietta kemstu fy.rst, ef þú reynir livortlveggja. Þú þekkir lífið án trúar á Krist. Iivernig væri að reyna hitt ,og vita, livað til er í því? Þú eignast þá reynslusönnun, sem þú getur vitnað til og það skað- ar ekki. 20

x

Kristilegt stúdentablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt stúdentablað
https://timarit.is/publication/734

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.