Kristilegt stúdentablað - 01.12.1944, Qupperneq 22

Kristilegt stúdentablað - 01.12.1944, Qupperneq 22
KRISTILEGT STÚDENTABLAÐ FRÉTTIR — VÉR GLEÐJUMST Hinn 18. júní s.l. var merkisdagur í sögu Kristi- legs Stúdcntafélags. Þann dag vígði biskupinn yí'ir Islandi, herra Sigurgeir Sigurðsson, 9 guðfræði- kandídata til prestsþjónustu í liinni íslenzku evan- gelísku lúthersku kirkju. Er það álitlcg viðbót í starfsmannahóp kirkj unnar. En það, sem gerði þennan viðburð merkastan fyrir Kristilegt stúdentafélag, var þó það, að fjór- ir kandídatanna eru félagar þcss. — Ungu prest- arnir fjórir eru þessir: Síra Sigmar Torfason að Skeggjastöðnm, síra Sigurður Guðmundsson að Grenjaðarstað, sira Guðmundur Guðmundsson að Brjánslæk og síra Jón Árni Sigurðsson að Stað á Reykjanesi. Vér samgleðjumst þessum félögum vorum yfir þeim miklu forréttindum, sem þeim hafa veitzl: að mega sem þjónar kirkju vorrar flytja fagnað- arerindið um náð Guðs í Kristi Jesú, um fyrir- gefning syndanna fyrir Hans blóð. Vér samgleðjumst sóknarbörnum þeirra yfir því, að hafa fengið til þjónustunnar ])rcsta, sem — trúir heiti sínu — flytja boðskap Bililiunnar óskoraðan, þann boðskap, scm veitt gctur speki til sáluhjálpar. NYR KENNARI 1 GUÐFRÆÐI Síðastliðið vor losnaði kennaraembætti í sam- stæðilegri guðfræði við Háskólann. Sr. Sigurður Einarsson lét þá af dócentsembætti. Var embættið þegar auglýst laust til umsóknar á stuttum fresti, tæps mánaðar, en sá frestur lengdur seinna til 1. ágúst. Umsækjendur urðu þrír: séra Björn Magn- ússon, prófastur á Borg, séra Gunnar Árnason, sóknarprestur á Æsustöðum og séra Sigurbjörn Einarsson, sóknarprestur í Hallgrímssókn i Reykjavík, er gegndi dócentsembætti í forföllum Sigurðar Einarsson í fyrra vetur. Fimm inanna nefnd dæmdi um hæfni sækjcnda, fyrir hönd Há- skólans: sr. Ásmundnr Guðmundsson, prófessor, sr. Árni Sigurðsson, fríkirkjuprestur og sr. Frið- rik Rafnar, vígslubiskup, en biskupinn herra Sig- urgeir Sigurðsson, og sr. Bjarni Jónsson, skip- aðir í nefndina af kennslumálaráðherranum. Kom allri dómnefndinni saman um, að þeir sr. Björn TVIngnússon og sr. Sigurbjörn Einarsson væru hæfir. Þó gerði sr. Bjarni Jónsson það sér- álit, að allir væru umsækjendur hæfir til kennara og fræðslustarl's við Háskólann, cn sr. Sigurbjörn sérstaklega hæfur til þess embættis. — Enn- fremur mæltu prófessorarnir við Guðfræði- deildina sérstaklega með sr. Birni Magnús- syni. Ráðherra bar nú að veita embættið, er hann hafði fengið umsögn nefndarinnar, en auk þess hafði hann leitað umsagnar Guðl'ræði- deildarinnar. Veitti hann sr. Sigurbirni Einarssyni embættið. Þessu mótmælti báskólaráð, þar eð réttur liáskólans væri fyrir borð borinn. Utvarpið birti mótmælin ásamt sluttri athugasemd frá ráð- herranum, cr kvað sig vera í rétli sínum að lögum, að j)ví við bættu, að sr. Sigurbjörn liefði undan- farið gegnt embættinu við góðan orðstír. Margir voru óánægðir með úrslit málsins, skáru upp hcrör, söfnuðu undirskriftum meðal presta og sendu Alþingi áskorun um að stofna annað dócentsembætti við Guðfræðideildina, er tryggi sr. Birni Magnússyni kennslustarf þar, enda hafði dómnefndin lagt til, að dócentum yrði fjölgað í tvo og jafnframt aukin kennsla i samanburðar- trúarbrögðum og fleiri grcinum. Kristilegt stúdentablað fagnar því, að svo vel tókst til um skipun embættisins, að það var veitt sr. Sigurbirni Einarssyni. Hinn jákvæði skilningur hans og menntun, einknm í grísku, frummáli Nýja testamentisins, og trúarbragðafræðum, mun gel'a honúm hæfni, sem reynast muii happadrjúg við vísindastörfin og fræðslu prestsel'na. Mætti hann vcrða giftnríkur í starfi guðsríki til eflingar. FRÁ NORÐURLÖNDUM Fáar fregnir hafa horizt frá Norðurlöndum af starfi kristilegu stúdentahreyfingarinnar á bibliu- 22

x

Kristilegt stúdentablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt stúdentablað
https://timarit.is/publication/734

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.