Kristilegt stúdentablað - 01.12.1944, Page 23
KRISTILEGT STÚDENTABLAÐ
legum grundvelli. Þó hefir liirzl bréf í sænska
kristilega stúdentablaðinu, „Vi tro“, frá einum
af framkvæindastjórum kristilegu stúdentahreyf-
ingarinnar í Noregi, Olav Egeland, þar sem liann
segir frá áframhaldandi andlegu Jífi í starfinu
meðal stúdenta og menntaskólanemenda í Nor-
cgi. En fréttir þessar eru frá árinu sem leið,
1943. Þá um sumarið voru lialdin hvorl<i meira
né minna en 11 sumarmót með yfir 2000 þátt-
takendum alls. Árið áður jóksl tala launaðra
framkvæmdastjóra úr 3 upp 1 4. En nú segir
Egeland frá því, að þeir liafi orðið að bæta við
einum, vegna vaxtarins í starfinu.
1 bréfinu segir meðal annars:
„Við liöfum ckld haldið aðeins eitt mót í sum-
ar, heldur ellefu, með yfir tvö þúsund þálttak-
endum alls. Ég liefi lelcið þátt í finun þeirra og
finnst eindregið að „gæðin“ í ár liafi verið jafn-
mikil og þátttakan. Eg liefi aldrei orðið var við
jafnmikla sálusorgun og djúpa, sanna syndaineð-
vitund.
Við lítum Iiugdjarfir til vetrarstarfsins. Auk
okkar fjögurra fastra l'ramlevæmdastjóra, höfum
við ráðið Ingar Hagen, cand. tlicol., svo við cr-
um nú fimm .... Við útvegum stúdentunum
bæði fæði og Jnisnæði, og það krefst einnig tíma.“
Eitt af þvi, sem liefir stuðlað mjög að fram-
gangi kristilegu stúdentahreyfingarinnar í Noregi,
er það, að Norðmenn Iiafa átt kristilegan mennta-
skóla í Oslo, síðan 1913, og hefir hann þvi verið
rekinn í yfir 30 ár, undir frábærri stjórn Ilans
Höeg, rektors. Það gera sér ef til vill fáir grein
fyrir hvílíka blessun þessi skóli hefir haí't í för
með sér fyrir norsku þjóðina, auk allra hinna
mörgu kristilegu æskidýðsskóla víðs vegar um
landið og kristilega kennaraskólans, sem einnig
er í Oslo.
Nú hafa Svíar einnig eignazt kristilegan
menntaskóla. Kennsla hófst í honum nú í haust.
Skólinn verður í tveim deildum, þriggja ára gagn-
fræðadeild og fjögra ára lærdómsdeild. Skólinn
hefir aðsetur í Restanás, á undurfögrum stað, 7
mílur fyrir norðan Gautaborg. Rektor skólans
hefir verið ráðinn séra Nils Rodén, dr. theol. og
fil. kand.
Nokkrir áhugasamir menn keyptu landareign-
ina Restanás í byrjun desember 1935. Stofnuðu
þeir félag, sem kallað var Restenásstiftelsen.
Markmið þess var „að reka kristilegt skóla- og
æskulýðsstarf á evangelisk-lútherskum grundvelli
og í sambandi við Evangeliska Fosterlands-stif-
telsen.“
Hvenær koma þcir tímar, að við lslendingar
eignumst kristilega skóla, þangað scm foreldrar
geta óhrædd sent börn sín, án þess að þurfa að
óttast, að þau niðurrifsöfl, sem nú ríkja í skól-
um lands okkar, vcrði þcim að andlegu og sið-
ferðilegu fjörtjóni?
Hér er bænarefni fyrir þá, sem trúa á þann
Drottin, sem hefir heitið. bænheyrslu í nafni
Jesú Krists.
Ég vildi heldur trúa á sannleika kristindómsins og
skjállast í þvi — en að trúa þvi, aö kristindómurinn sé
ekki sannur og skjátlast svo í því. (Blaise Pascal).
l'að er jafn þýðingarmikið, að þekkja einn sannleika
eins og annan. hað er jafn hættulegt að þekkja Guð, án
þess að þekkja sína eigin eymd, og að þekkja eymd sína,
án þess að þekkja Frelsarann, sem getnr tæknað hana.
(Blaise Pascal).
Kristur er hin mikla „sönnun“ kristindómsins, sem
sannfærir með mætti sannteikans þá, sem koma í návist
hans. (Olfert Ricard).
Það er betra að ganga í dimmn með Guði en að ganga
einsamall alsjáandi. (Phillips' Brooks).
Reynslan er ekki undirstaða sannleikans. Sannleikur-
inn er undirstaða reynslunnar.
(Dr. W. Graham Scroggie).
Lampinn taiar ekki, en hann lýsir. Vitinn hefir ekki
hatt, hann ber ekki i humhur, cn sjómaðurinn sér
Ijós hans á hafinu margar milur í burtu. Láttu verk þín
bera birtu af trú þinni. Láttu predikun þina vera upp-
Ijómaða af daglegri hegðun þinni. (C. II. Spurgeon).
23