Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1942, Blaðsíða 15
13
aðslæknisins og staðgöngumaður hans, er hann viki
sér frá. 1 minnstu héruðunum gæti slkur ferðatann-
læknir tekið að sér liéraðslæknisstörfin, á meðan
hann dveldst þar, og gert héraðslækninum kleift að
bregða sér frá sér til upplyftingar. Jafnvel tannlækn-
ar, sem aðeins hefðu lokið miðhlutaprófi i almennri
læknisfræði, væru héraðslæknum betri en engir að
þessu leyti. Má fyllilega ætla, að héraðslæknum yrði
með þessu móti betur tryggð aðstoð og þeim hent-
ugir staðgöngumenn í forföllum þeirra og sumarleyf-
um, er þeir liera nú sumir fram mjög ákveðnar kröf-
ur um, en þó að stofnuð yrðu eitt eða tvö aukalæknis-
embætti, sem vafasamt er, að fengjust skipuð, nema
því meiri laun væru í boði, og næsta erfitt yrði að
láta koma að almennum notum.
4) Offjölgun tannlækna ætti ekki að þurfa að ótt-
ast, þó að til þessarar kennslu yrði stofnað, bæði
fyrir það, að gert er ráð fyrir, að námið verði erfitt
og taki langan tíma, og siðan er óhjákvæmilegt að
taka aðeins við takmörkuðum fjölda nemenda i einu,
eftir þvi sem húsakynni og tæki segja til. En þau
eru áætluð við liæfi fjögurra nemenda í einu. Mundu
þá í hæsta lagi 4 Ijúlca pófi annað hvert ár, eða 2
á ári. Með þessu móti ætti og að mega velja úr nem-
endum, sem ásamt öðru mundi tryggja góðan árang-
ur kennslunnar. En verði að því horfið að krefjast
jafnmikils og erfiðs náms af íslenzkuin tannlæknum
og hér er gert ráð fyrir, mun ekki verða komizt hjá
að veita þeim þá atvinnuvernd að krefjast samsvar-
andi náms (þ. e. miðhlutalæknaprófs) af þeim, er er-
lendu læknaprófi ljúka og æskja tannlæknaleyfis hér
á landi, enda liafi þeir hafið námið, eftir að þessi
fyrirhugaða stofnun tekur til starfa, og lokið þvi á
eðlilegum tíma.
Mál þetta hefir verið undirbúið í samráði við lækna-
deild háskólans, sem kaus til þess tvo prófessora
sína, þá Guðmund Thoroddsen og Níels Dungal, að
hafa um það samv'innu við landlækni. Fer hér á eftir
umsögn læknadeildarinnar (fskj. 4), svo og bréf
Læknafélags Reykjavíkur, sem og hefur tjáð sig hlynnt