Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1942, Blaðsíða 39
37
lækni, og sé nemendum greitl nokkurt kaup eftir getu
þeirra og afköstum, t. d. minnst kr. 65.00 og kr. 97.50
að viðbættri verðlagsuppbót, pr. mánuð. Aðstoð nem-
andinn einhvern hluta námstinians á vinnustofu tann-
læknisins, skal námstíminn lengdur sem þvi svarar.
Laun fyrir aðstoðarstarfið fari eftir samkomulagi.
4. gr. Að loknu námi fái nemandi vottorð frá tann-
lækni þeim, er hann hefir lært hjá, að hann hafi
unnið tilskilinn tíma, og hafi hlotið nægilega leikni
og kunnáttu til að geta unnið þau störf sjálfstætt, er
umsamið var að kenna.
5. gr. Tannsmiðum sé greitt kaup þannig:
a. Byrjunarlaun að nýloknu námi séu ki’. 227.50, að
viðbættri verðlagsuppbót, pr. mánuð fyrir kaut-
chuktækni, en kr. 291.25, að viðbættri verðlags-
uppbót, pr. mánuð fyrir gull- og kautchuktækni.
Síðan hækki kaupið smátt og smátt þannig, að
vinnuþiggjandi hafi fullt kaup eigi síðar en að
þrem árum liðnum frá prófi, enda teljist þeir
þá fyrsl fullkomnir.
b. Tannsmiðir, sem eru fullkomnir í hvorutveggja,
hafi minnst kr. 447.50, að viðbættri verðlagsupp-
bót, pr. mánuð. Þeir, sem aðeins vinna að kaut-
chuktækni, hafi minnst kr. 385.00, að viðbættri
verðlagsuppbót, pr. mánuð.
Eftirvinna greiðist þannig: 120. hlutinn af grunn-
kaupi hvers mánaðar pr. klukkustund.
c. Fyrir tímavinnu greiðist kr. 2.60 pr. klukkustund
við kautchuktækni, kr. 3.25 pr. klukkustund við
gulltækni, að viðbættri verðlagsuppbót.
6. gr. Vinnutími sé miðaður við 38 klukkustundir
á viku — 7 tíma 5 daga vikunnar og 3 tíma á laugar-
ilögum. Skiptingin á vikudaga gildir ekki utan Reykja-
víkur.
7. gr. Verði tannsmiður frá störfum vegna veik-
inda, skal honum þó greitt fullt kaup í einn mánuð,
en ý> kaup í annan mánuð, enda sýni liann læknis-
vottorð um veikindi sín.