Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1942, Blaðsíða 31
29
LÖG
um tannlæknakennslu við læknadeild háskólans.
1. gr.
Stofna skal til tannlæknakennslu við iæknadeild
háskólans.
2. gr.
Þeir stúdentar, sem leggja vilja stund á tannlækna-
nám og ljúka tannlæknaprófi, skulu hafa lokið mið-
hlutaprófi i læknisfræði. Að öðru leyti skal kveðið
á um tilhögun kennslunnar i reglugerð.
3. gr.
Til þess að annast tannlæknakennsluna skal skipa
sérstakan dósent við læknadeildina og tannsmið. Auka-
kennslu má fela stundakennurum. Dósentinn nýtur
sönnx réttinda og aðrir dósentar háskólans. Ráðherra
ákveður tannsmið og stundakennurum laun, er greið-
ast úr rikissjóði.
4. gr.
Lög þessi öðlast gildi þegar i stað.
Samþykkt á Alþingi 13. maí 1941.
ÞAi), sein hér fer á eftir.skýrir nokkuð skilning hins
háa Alþingis (og sérstakl. flutningsm.) á hags-
munum tannlæknastéttarinnar árið 1942, ög þykir þvi
rétt að birta allt, sem þetta mál varðai-, í Árbókinni.
Þó skal sérstaklega vakin athygli á eftirfarandi i
greinargerðinni:
„Óli Baldur Jónsson hefur stundað tannlækninga-
nám i Þýzkalandi um 5 ára skeið.“
Skýring á þessu „5 ára tannlækninganámi“ fæst við
lestur bréfs T.F.í. lil landlæknis.
Enn fremur segir: „Hingað til munu ekki aðrir
skólar en tannlæknáskólinn í Khöfn hafa hlotið slíka
viðurkenningu."
Eins og tannlæknum er kunnugt, starfa hér 4 tann-
læknar með fullkomnu tannlæknaprófi frá þýzkum