Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1942, Qupperneq 38
3G
sem setjasl i neðsta bekk skólans á hverju ári og
þeini svo, fylgt eftir upp í gegn um skólann og þannig
áfram koll af kolli, þannig að eftir vissan árafjölda
hafi öll börn skólans orðið tannlækninga aðnjótandi.
Taxti fyrir skólatannlækingar sé minnst kr. 8.00 +
dýrtíðaruppbót, og reiknast gjaldið fyrir öll börn i
þeim bekkjum skólans, sem koma eiga til tannlækn-
inga.
Verði tekin til tannlækinga skólabörn, sem ekki
koma inn undir framanskráð kerfi, skal greiða fyrii
þau samkvæmt lágmarkstaxta Tannlæknafélags ís-
lands, þó sé tannlækni heimilt að gefa allt að 20%
afslátt frá taxtanum.
Tannlæknum er heimilt að laka til tannlækninga
nemendur úr skólum, öðrum en barnaskólum, gegr,
allt að 20% lægra gjaldi en lágmarkstaxta Tannlækna-
félagsins, ef viðkoinandi skóli eða skólar semja um
almennar tannlækningar fyrir ncmendur sina.
Samþykkt á aðalfundi T.Í.F. 23. júní 1941.
SAMNINGUR.
Tannsmiðafélag íslands og Tannlæknafélag ís-
lands gera með sér svohljóðandi
Samning:
1. gr. Meðlimir T.Í.F. veiti ekki öðrum atvinnu
en meðlimum Tannsmiðafélags íslands, enda vinni
meðlimir Tannsmiðafélags íslands elcki hjá öðrum en
meðlimum T.F.í.
2. gr. Ekki sé aðrir teknir til náms í tanntækni
en þeir, sem að reynslutima loknum, 0 vikum, hafa
sýnt ótviræða hæfileika til starfsins, en hafa auk þess
hlotið nokkra menntun, t. d. kunni eitthvert erlent
tungumál, til þess að geta veitt sér bóklega þekkingu
á starfinu.
3. gr. Námstimi í tanntækni sé minnst 2 og 3 ár —
2 ár í kautchuktækni, en 3 ár i gull- og kautchuk-