Árroði - 18.10.1933, Side 1
Útg. Ásm.Jónsson
frá Lyngum.
Kemur út 1—2 bl.
á mánuði.
1. ár.
Reykjavík, 18. oktt. 1933.
tbl.
Andleg hugleiðing.
Drottinn send oss Ijós og anda
pinn, sem séu leiðtogar vorir á
hinum sanna lífsins og Ijóssins
vegi. (48. sálm. Davíðs).
Góð og fullkomin Guðs öll gjöf
gjafara ljóssins streymir frá,
um geyma alheims grund og höf
göfgist hans náðar vegsemd há.
Enginn skuggi né umbreyting
hjá alföður mildum sór á stað,
lífs um gjörvallan himinhring,
hans heilög orðin vitna bað.
Lifandi straumar lambs frá stól,
lífið alt frjóvga gleði list.
Keppumst í himins sælu sól,
sigrarann fyrir Jesúm Krist.
(Sbr. Jak. 1, 14).
Ásm. Jónsson.
Mikaelsmessa.
Gangið þá stund þér hafið ljós-
ið, svo myrkrið höndli yður ekki.
Hver, sem gengur í myrkri, veit
ekki hvert hann gengur. (Jóh,
12, 35).
Jesús kallaði til sin barn eitt,
og setti pað mitt á meðal þeirra,
og sagði: Nema þér takið sinna-
skifti og gjörist svo sem smá
börn, munuð þér ekki inn ganga
í Guðs ríki. Ilver sem lítillækk-
ar sjálfan sig eins og ungmenni
þetta, mun mestur í ríki himn-
anna, og hver sem meðtekur eitt
slíkt ungmenni í mínu nafni, sá
meðtekur mig. Sjáið til að þér
forsmáið ekki einn af þessum
sinælingjum, því ég segi yður,
að þeirra englar á himnum sjá
jafnan míns föðurs auglit, sem
er á himnura. (Matth. 12).
Pessi orð ritningarinnar eru
skrifuð í guðspjalli eða texta
fyrir Mikaels messu, lestri í pró-
dikanabók okkar ódauðl. kenni-
manns, herra Jóns biskups Vída-
líns, og var sá dagur þá hald-
inn heilagur messudagur, ásamt
fleiri messudögum, og þriðja helgi-
degi stórhátíða vorra, sem nú er
úr lögum numinn, sökum manna-
setninga.
Ég ætla ekki að fara langt út
í efni þetta að þessu sinni, en
get þó ekki orða bundist að
spyrja: Eru þetta framför krist-
indómsmálefnisins Iandi voru?
Ber ekki framar að hlýða Guði
en mönnum?