Árroði - 01.05.1944, Blaðsíða 6

Árroði - 01.05.1944, Blaðsíða 6
Smásaga eftir JÓN H. GUÐMUNDSSON SKEMMTIFERÐ Allt starfsfólkið hjá H.f. Hengli ætlaði að fara í skemmtiferð. Félagið hafði lánað því þrjá vöruhíla og gefið frí einn dag, laugardag. Undanfarin kvöld höfðu piltarnir, með aðstoð smiðanna, verið að smiða bekki á bílanna. Það voru ekki sérlega mjúk sæti, en á þeim tím- um var fólk svo óvant því, að fá frí á virkum degi til þess að fara í bíl til Þingvalla að eng- in hætta var á því, að kvartað yrði undan sætunum. Allir hlökkuðu til fararinnar og það var létt yfir fólkinu. Það var komið föstudagskvöld. Undirbún- ingnum var að mestu lokið og Fordbílarnir þrir stóðu í portinu, með þessum líka forláta békkjum. Það var verið að enda við að þvo bílana. Þetta voru ljómandi falleg og virðuleg farartæki! Svo fannst að minnsta kosti sendi- sveininum. Hann var að þvo síðasta bílinn og leit yfir hann allan, til þess að sjá, hvernig það væri gert. En það var enginn ánægjusvipur á andliti hans. Hann var búinn að sendast mikið þenn- an dag, hafði vaknað klukkan rúmlega fimm og verið kominn til vinnunnar um sexleytið. Fyrstu tvo tímana vann hann við að losa blaut- an saltfisk úr hestvögnum. Hann þoldi saltið illa. Það fór í smáskeinur á höndunum á hon- um, svo hann logsveið og hafði grafið í öllu saman. Það var ekkert gaman að vera svona hörundsveikur. Miklu var þó verra að bera kol- og saltpoka á bakinu og allra verst að vera í helvítis sementinu. Það var óþokkalegasta vinna, sem Hreiðar litli lenti í. Hann var á fjórtánda árinu og hafði fengið frí til að ganga til spurninga um vorið og var nú feginn því að fermingunni var aflokið. Um áttaleytið þvoði hann gólfin í skrifstof- unni, dimma ganginn og stigann niður. Það voru ljótu óhreinindin; ekki mjög leiðinlegt verk, miklu skárra en saltfiskvinnan. Svo byrjuðu sendiferðirnar. Fyrst að kaupa í matinn handa forstjórunum; fara með olíu- brúsa, kartöflupoka eða annað til heimilanna. róa með skipstjóra í litlu kænunni út í tog- arann; sækja mjólk fyrir konu verkstjórans og ýmsar aðrar sendiferðir. Hjólið var sæmi- legt og gaman að þjóta á því, en vagninn af- leitur, alltof þungur, þó að ekkert væri á hon- um. Hreiðar var aumur í öxlunum undan band- inu. Brekkan neðan frá sjónum var erfið. Hún var löng og vegurinn holóttur. Það væri ekki amalegt að hafa vél í svona vagni. Ef hlé varð á sendiferðunum, þá var Hreiðar látinn losa af saltfiskvögnunum, svo að ekki var um það að ræða að vera þokkalega til fara í sendiferð- unum. Milli tólf og eitt mátti hann borða. En ekki fékk hann að fara heim' til þess. Litla systir hans kom með matinn og stundum sat hún hjá honum meðan hann borðaði. Hann kunni bezt við að borða í dimma ganginum. Þennan dag hafði verkstjórinn komið óvenjusnemma úr mat og sá ekki Hreiðar í myrkrinu, rak tána í annan fótinn á drengnum, bölvaði og sagði: „Ætlarðu að vera i allan dag að éta, drengur!“ Hreiðar þagði, en systir hans varð hrædd og þorði ekki annað en fara strax. Eftir hádegið brenndi hann kaffi úti í skúr. Það var erfitt að snúa kúlunni meðan kaffið var að brenna. Annars þótti honum ekkert leiðinlegt að vera í skúrnum og snúa og snúa. Það var hreinlegt verk, og þá gat hann hugsað í ró og næði og dundað við að búa til vísur. Stundum söng hann, en ekki hátt, það mátti ekki. Það kom fyrir, að einhver af strákunum skauzt inn til hans og sagði eitthvað skemmti- legt. Þá var oft hlegið að litlu. Seinna um daginn sótti hann kaffi langt út í bæ fyrir einn verkstjórann. Það var skemmti- leg ferð. Fólkið var gott við hann, bauð honum sæti í eldhúsinu meðan hann beið og kaffi og kökur. Verkstjórinn átti ljómandi laglega systur; hún var góðleg og brosti hýrt til Hreið- ars. Þangað var gott að koma. Það gat líka verið gaman að fara’í sendferðir fyrir heimili 4 ÁRROÐI

x

Árroði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árroði
https://timarit.is/publication/758

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.