Árroði - 01.05.1944, Blaðsíða 20
Ný útgáfa af Heimskringlu
Snorra Sturlusonar
Hinn sívaxandi áhugi þjóðarinnar fyrir íslenzkum
bókmenntum og þó sérstaklega fornbókmenntum, er
glæsilegt tákn um vakandi sjálfstraust hennar og
iþjóðernisvitund. Fer á vel á því, að sá áhugi láti á
sér bera einmitt nú, er öll þjóðin býr sig undir að
verða stjórnarferslega alfrjáls.
Helgafellsútgáfan hefir um þessar mundir í undirbún-
ingi vandaða útgáfu á einu glæsilegasta öndvegis-
verki norræns anda, Heimskriglu Snorra Sturluson-
ar. Hefir útgáfan fengið leyfi til að nota um þrjú
hundruð myndir, er sex frægustu málarar Norðmanna
gerðu fyrir síðustu aldamót í hina stóru, norsku heim-
ilisútgáfu af Heimskringlu og munu þær hafa átt
sinn þátt í því að greiða götu þessa mikla snilldar-
verks inn á svo að segja hvert einasta norskt heim-
ili, enda eru myndirnar hin ágætustu listaverk og
ein stakar í sinni röð.
Það hefir lengi verið oss mikil vanvirða, hversu þetta
höfuðafrek frægasta og mesta ritsnillings íslendinga
hefir fram að þessu verið í fárra höndum í sjálfu ætt-
landi höfundarins, þó Heimskringluútgáfa Fornrita-
félagsins, sem hafin er fyrir nokkrum árum, kunni
að hafa bætt þar nokkuð úr. Aldrei hefir þó verið
brýnni þörf á því en einmitt nú, að æskulýður lands-
ins kynnist slíku riti og sæki þangað heilbrigðan
metnað og ást á tungu sinni og þjóðerni. Það er því
í alla staði vel til fundið, að þessu fullveldisári verði
fagnað með vandaðri og veglegri útgáfu þessa ómet-
anlega ísleinzka snilldarverks.