Árroði - 01.05.1944, Blaðsíða 7

Árroði - 01.05.1944, Blaðsíða 7
JÓN BLÖNDAL Staðleysa auðvaldsskipulagsins Hinn frægi brezki rithöfundur Bernhard Shaw hefir eitt sinn komist að orði eitthvað á þá leið, að af öllum staðleysum (utopia) á sviði þjóðfé- lagskerfa, sem fram hafi komið, sé auðvalds- skipulagið (kapitalisminn), óraunhæfasta stað- leysan. Vitanlega á hann hér ekki við sjálft þjóð- félagsskipulag auðvaldsins, sem vissulega er raunveruleiki, er segir til sín, heldur það hug- mynda- eða hugsjónakerfi, sem formælendur auðvaldsskipulagsins hafa haldið og halda að almenningi í áróðri sínum fyrir ágæti hinna ríkj- andi þjóðskipulagshátta. Það er þetta þjóðfélags- kerfi, sem aldrei hefir verið annað, en óraun- hæf staðleysa, óskadraumiur, sem aldrei hafði neina möguleika til að rætast. Allir þekkja slagorð þessa hugmyndakerfis, frjáls samkeppni, framtak einstaklingsins, ein- staklingsrekstur á sviði framleiðslunnar. í þessu þjóðfélagi keppa einstaklinarnir, hver við ann- an um að framleiða sem bezta og ódýrasta vöru 'forstjóranna. Vinnustúlkurnar voru kátar og spaugsamar, en verst þótti honum að fara aft- ur og aftur á sama staðinn og kaupa rjóma- kökur og berlínarbollur! En nú var vinnu hætt þennan föstudag og fólkið átti frí daginn eftir og ætlaði í skemmti- ferð austur á Þingvöll. Bara að það yrði gott veður! Margir litu til lofts og allir spáðu góðu veðri. Verkafólkið hafði safnast í portinu hjá bíl- unum og var að tala um, hverjir ættu að vera saman í bíl. „Hefir þú komið til Þingvalla, Hreiðar?“ spurði Pétur; hann var líka sendisveinn, tveim- ur árum eldri en hinn. ,,Nei“, sagði Hreiðar. „Ég fór þangað í fyrsta skipti í fyrra. Það «r ákaflega gaman að koma þangað. Ég á að vera í fyrsta bílnum. Hvar átt þú að vera?“ ,,Ég veit það ekki“, sagði Hreiðar. Bnn þurfti að snúa Hreiðari ýmislegt, þótt aðrir væru hættir að vinna og hann gerði sér far um að vera íljótur í öllum ferðum. Hreiðar bað um að fá lánaða kænuna um kvöldið og það var veitt umyrðalaust. Hann reri einn út að kolabarkinum og veiddi vel, nokkra þyrsklinga og litla lúðu! Það var góður fengur. Mamma hans varð ákaflega glöð, þeg- ar hún sá hana. Það var. ekki nákvæmlega rétt, sem sagt var í upphafi sögunnar, að „allt starfsfólkið“ ætlaði að fara í skemmtiferðina. Einn maður varð að vera eftir og gæta símans og sá var til þess valinn, sem ekki kærði sig um að fara. Hreiðar þurfti að snúast fyrir ferðafólkið um morguninn, rétta því ýmislegt upp í bílana og fara með skilaboð á milli þeirra. Loks var allt tilbúið og allir komnir í sæti sín. Þá var lagt af stað og veifað glaðlega til þeirra, sem eftir urðu. Það var einn maður, sem ekki langaði til að fara — og lítill, þrettán ára drengur, sem sem aldrei hafði séð Þingvelli og engum hafði dottið í hug að bjóða að vera með. ÁRROÐI 5

x

Árroði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árroði
https://timarit.is/publication/758

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.