Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.2009, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009
2 LesbókSKOÐANIR
A
nnað kvöld, þegar kosningum verður
lokið og dagskrá sjónvarpsstöðv-
anna því komin í samt lag, er á dag-
skrá Ríkissjónvarpsins bresk heimild-
armynd sem í fljótu bragði virðist nokkuð
áhugaverð. Myndin nefnist Blindsight og
er frá árinu 2006. Hún segir frá sex blind-
um unglingum frá Tíbet sem klífa Lhakpa
Ri-tindinn norður af Mount Everest í Hi-
malajafjöllum. Eins og gefur að skilja var
um mikla háskaför að ræða, enda betra að
hafa öll skynfæri í lagi þegar hæstu fjöll
heims eru klifin.
Margir Tíbetar trúa því að blint fólk sé
andsetið og foreldrar áðurnefndra barna
vilja ekkert af þeim vita, þau eru fyrirlitin í
heimaþorpum sínum og samfélagið hafnar
þeim. Blindur kennari og ævintýrakona
sem stofnaði fyrsta og eina blindraskól-
ann í Tíbet bjargaði hins vegar börnunum.
Fjallagarpurinn Erik Weihenmayer, sem
einnig er blindur, kom í heimsókn í skól-
ann eftir að hann kleif Everest og skipu-
lagði gönguna sem tók þrjár vikur.
Myndin er á dagskrá RÚV kl. 21.25 ann-
að kvöld. jbk@mbl.is
Blind börn í
háskaför
MÆLT MEÐ
Klífa tind í Himalajafjöllum
S
amkvæmt áreið-
anlegum heim-
ildum hefur fjölg-
að mjög í hópi
stjórnleysingja á Íslandi
frá því búsáhaldabylt-
ingin hófst og það er
ekki laust við það að
venjulegt fólk sé allt í
einu farið að velta fyrir
sér grundvallarspurn-
ingum á borð við hversu
gott stjórntæki lýðræði
er í raun og veru. Það
stefnir í uppstokkun og
vinstribeygju í kosningunum í dag en er það
nóg? Förum við ekki fljótt aftur í sama þenslu-
farið? Hvernig væri að prófa eitthvert alveg
nýtt kerfi til að stjórna þessu landi? Við erum
ekki það mörg sem búum þar og fer að sögn
fækkandi. Við gætum prófað að í stað þess að
hagsmuna- og minnihlutahópar reyni stöðugt
að hafa áhrif á þingheim fengju þeir eitt kjör-
tímabil á 20 ára fresti eða svo. Þannig gætu ör-
yrkjar og fatlaðir fengið eitt kjörtímabil, sam-
kynhneigðir annað og þar fram eftir götunum
og kjósendur gætu einungis kosið fólk úr þeirra
röðum fyrir hverjar kosningar … kannski ekki
svo gott í framkvæmd en því ekki að vera svolít-
ið djörf, höfum við einhverju að tapa nema
skuldunum úr því sem komið er?
dagurfoto@gmail.com
ÞETTA HELST
Nýtt kerfi?
Stjórnleysi Er kominn
tími á nýtt kerfi?
eins og ekkert væri sjálfsagðara og deila
flokkafulltrúarnir með sér öskubakka og
vindlapakka.
Faðir minn var einn þeirra sem aðstoðuðu
fólk við að koma á kjörstað. Í Siglufirði var
m.a. konan Bína, sem útsendarar flokkanna
lögðu metnað sinn í að ná taki á. Einn kjördag-
inn var faðir minn fyrstur. Undir öfund-
araugum hinna kaus Bína og þegar faðir minn
leiddi hana út af kjörstaðnum spurði hann
stundarhátt svona til að strá salti í sár hinna:
„Þú hefur kosið Framsóknarflokkinn, Bína
mín?“ „Ja, það var nú það, Jóhann minn,“
svaraði Bína. „Ég gat ómögulega gert upp á
milli svo ég krossaði bara við þá alla.“ Andlitið
er mér sagt að hafi hrunið af föður mínum, en
fulltrúar hinna flokkanna brostu breitt og
skellihlógu þegar pabbi og Bína voru farin af
kjörstað. freysteinn@mbl.is
Komið á kjörstað
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Kosningaframkvæmd var með miklu persónulegri hætti
áður fyrr þegar flokkarnir fylgdust með kjósendum
Þ
ær eru orðnar nokkrar kosningarnar í
minni tíð. Og hefur margt breytzt frá
þeim fyrstu fram til kosninganna í
dag. Áður fyrr finnst mér að hafi verið
gengið mun harðar fram í kjósendaveiðum og
fulltrúar flokkanna voru á kjörstað og merktu
við þá sem kusu svo hægt væri að hringja í
hina og hvetja þá til þess að mæta á kjörstað.
Á myndinni bíður kjósandinn þolinmóð, því
kjörseðill var ekki afhentur fyrr en tryggt var
að fulltrúar flokkanna hefðu lokið sínu bók-
haldi. Myndin er tekin í Miðbæjarskólanum
1978, en í þeim alþingiskosningum töpuðu
stjórnarflokkarnir; Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur, fylgi, en A-flokkarnir; Al-
þýðubandalag og Alþýðuflokkur, unnu stóra
sigra og varð af vinstristjórn undir forsæti
Framsóknar, þótt minnsti flokkurinn væri. Við
sjáum á myndinni að menn reyktu á kjörstað
Þ
að hefur verið gósentíð í fjölmiðlalandi
þessa síðustu viku fyrir kosningarnar,
engin gúrka þar. Fyrir utan kosn-
ingaslaginn bar þá frétt hæst að Land-
helgisgæslan eyddi síðustu aurum sínum í æsi-
spennandi eltingarleik við harðsvíraða
smyglara í mikilli ölduhæð úti á ballarhafi. Sér-
sveitarmenn eru ekki öfundsverðir af því hlut-
skipti að þurfa fyrst að láta sig síga úr þyrlu nið-
ur í varðskip og skoppa síðan í slöngubát og
klöngrast um borð í skútu gráir fyrir járnum.
Það fór svolítið glamúrinn af þessari svaðilför í
nákvæmri lýsingu Fréttablaðsins á fimmtudag-
inn var en þar er því lýst hvernig einn sérsveit-
armaður hékk í stálvír utan á smyglskútunni en
var svo þungur á sér vegna alvæpnis og útbún-
aðar að hann komst ekki upp fyrir eigin ramm-
leik en félagi hans í gúmbátnum átti bágt með
að ýta undir rassinn á honum sökum þess að
björgunarvestið hans bilaði. Vestið blés út í
óþökk sérsveitarmannsins og hamlaði öllum
hreyfingum. Á meðan stóðu smyglararnir þæg-
ir og prúðir og gátu væntanlega ekki hjálpað til
þar sem þeim hafði verið skipað að lyfta hönd-
um í uppgjöf sinni.
Fjölmiðlar fylgdust grannt með elting-
arleiknum við smyglarana og útvarpað var beint
frá blaðamannafundi lögreglu og landhelg-
isgæslunnar. Lögreglan stendur sig vel í al-
mannatengslunum og það að sýna staflana af
vel innpökkuðum fíkniefnum sem víti til varn-
aðar er klárlega góður leikur en hverjum datt í
hug að það væri smart að stilla lögreglukonum
sitthvorumegin við stæðurnar? Blaðaljósmynd-
urum og sjónvarpstökumönnum er vorkunn,
þeir hamast við að mynda stæður af hassi á eins
áhugaverðan máta og mögulegt er en lögreglan
reynir að lífga upp á þessa dauflegu vöruútstill-
ingu með teinréttum lögreglukonum. Þær
standa líkt og um heiðursvörð sé að ræða, stara
út í loftið og láta flössin og ljósmyndasmellina
ekkert á sig fá. Væri ekki áhugaverðara að leyfa
blaðamönnum að mynda lögregluna að rann-
saka innihaldið að hætti CSI í stað karlrembu-
legrar uppstillingar með þeim örfáu konum sem
hafa valist í þetta fag?
Það var ekki laust við að frásögnin af elting-
arleiknum við smyglarana minnti töluvert á
glæpafléttur úr fjölmörgum barna- og unglinga-
bókum frá seinni hluta síðustu aldar. Smygl-
aratemað var algengt í þessum bókaflokki þó að
það rímaði ekki sérlega vel við íslenskan veru-
leika. En nú ættu barnabókahöfundar að geta
yddað blýantana og látið bólugrafna spæjara
taka til við smyglarahasar á nýjan leik.
Fregnir af hinum misvitru smyglurum sem
töldu sig geta trítlað í land í fámennu plássi
austur á fjörðum í síðustu viku vetrar með
hundrað kíló af fíkniefnum án þess að nokkur
tæki eftir því rak á fjörur fjölmiðla um leið og
hin nýja og lítt ígrundaða stefna Sjálfstæð-
isflokksins í gjaldmiðilsmálum landsmanna. Ill-
ugi Gunnarsson tilkynnti í lok síðustu viku á
fundi um Evrópuskýrslu síðustu ríkisstjórnar
að réttast væri fyrir Íslendinga að láta Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn hafa milligöngu um málið og
að þannig gætum við tekið upp evru án aðildar
að Evrópusambandinu. Í Morgunblaðinu síðast-
liðinn sunnudag birtist síðan heilsíðuauglýsing
þar sem formaður flokksins, Bjarni Benedikts-
son, telur þetta vera „trúverðuga leið að upp-
töku evru“. Daginn eftir var þessi hugmynd
skotin í kaf eins og hver önnur smyglskúta í
Speglinum, fréttaskýringaþætti RÚV. Percy
Westerlund, sendiherra ESB í málefnum Nor-
egs og Íslands, sagði yfirlýsingar Sjálfstæð-
isflokksins á misskilningi byggðar. Hann sagði
að stefna ESB væri skýr og að ekki kæmi til
greina að leyfa ríki sem hefði ekki aðild að taka
upp evru og að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefði
í þokkabót ekkert með málið að gera. Þetta var
ennfremur staðfest af Joaquín Almunia, pen-
inga- og efnahagsmálastjóra ESB. Jón Karl
Helgason, dósent við Háskóla Íslands, fjallaði
um umræðuna um aðild Íslands að ESB í
Fréttablaðinu í vikunni sem leið og líkti viðhorfi
margra stjórnmálamanna til aðildarumsóknar
við söguna af manninum með tjakkinn. Maður
sá sannfærir sjálfan sig á langri göngu um að
bóndinn á næsta bæ muni örugglega ekki vilja
lána sér tjakk og byrjar samtalið við bóndann á
því að hreyta í hann ónotum. Sú líking er nokk-
uð góð, margir hafa áhyggjur af því fyrirfram að
ESB muni heimta aðgang að auðlindum Sjálf-
stæðisflokksins … afsakið þjóðarinnar, en nið-
urstaða í þær vangaveltur fæst að sjálfsögðu
ekki fyrr en sótt verður um. Í lok kosningabar-
áttunnar verður að gefa Sjálfstæðisflokknum
prik fyrir kaldhæðna kímnigáfu fyrir þá hug-
mynd að láta þá Kasper, Jesper og Jónatan
skemmta fyrir sig á fjölskylduhátíð á sum-
ardaginn fyrsta. dagurfoto@gmail.com
FJÖLMIÐLAR
DAGUR GUNNARSSON
Morgunblaðið/Júlíus
Fjölmiðlafundur „...hverjum datt í hug að það væri smart að stilla lögreglukonum sitthvorumegin við stæðurnar?“
Sjálfstæðisflokkurinn fær
prik fyrir kímnigáfu fyrir
þá hugmynd að láta þá
Kasper, Jesper og Jónatan
skemmta fyrir sig.
Tekst að smygla evrum
um borð í þjóðarskútuna?
Lesbók Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi menningar Fríða Björk Ingvarsdóttir, fbi@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent
Merkt við kjósandann Öskubakki á borði og kaffibrúsinn bak við borð. Flokkarnir fylgdust með sínum.