Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.2009, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009 Lesbók 11
É
g fór á frumsýningu Draumalandsins um dag-
inn; myndin stóðst mínar væntingar og er
alls ekki síðri en bókin. Þetta er efni sem all-
ir Íslendingar verða að sjá. Mér finnst í raun að það
ætti að sýna Draumalandið í öllum skólum lands-
ins, til að vega upp á móti öllum heilaþvotti í þjóð-
félaginu sem miðar að því að hleypa erlendum
auðjöfrum með stórskerta siðferðiskennd óheft
inn í landið.
Ég horfi mjög lítið á sjónvarp en tek tarnir þar
sem ég horfi á heilar sjónvarpsseríur í einum rykk.
Ég var að klára sjónvarpsþáttaröðina Mad Men, þar sem umfjöllunar-
efnið er auglýsingabransinn í New York á sjöunda áratugnum. Hönnun
sjöunda áratugarins er í miklu uppáhaldi hjá mér, en hún birtist í þátt-
unum á mjög fágaðan máta, bæði í tísku og húsgögnum. Þá er sú
verkaskipting eftir kyni og kynþáttum sem tíðkaðist á þessum tímum
ekki síður áhugaverð og eitt af því sem límir augun við skjáinn.
Ég hef minnkað bíóferðir töluvert undanfarin ár því mér leiðist veru-
lega langar auglýsingar áður en mynd hefst, og líka þetta séríslenska
hlé, sem brýtur upp söguþráðinn og kemur manni úr stuði. Ég fór þó í
bíó í New York nýlega og sá The Wrestler, mynd með eftirminnilegri
endurkomu Mickeys Rourkes, sem gerði garðinn frægan í mínu ung-
dæmi í myndinni 9½ Weeks. Í Wrestler er hann virkilega sannfærandi
sem úrræðalaus glímukappi í leit að nýrri vinnu eftir frægðarferil. Það
sem mér finnst þó eftirminnilegast við myndina er hversu táknrænn
söguþráðurinn er um líf margra sem festast í starfi, eins og ofurfyr-
irsætur, fótboltahetjur og poppstjörnur, til dæmis, þar sem frægðin
varir stutt og menn þurfa að lifa í skugganum af sjálfum sér.
GLÁPARINN | Katrín Elvarsdóttir
Mér finnst í raun að það
ætti að sýna Draumalandið
í öllum skólum landsins, til
að vega upp á móti öllum
heilaþvotti í þjóðfélaginu. Höfundur er ljósmyndari.
U
ndanfarin ár hefur mér alltaf þótt ánægju-
legt að hlusta kantötur Bachs þegar
stærstu hátíðir kirkjuársins nálgast. Þær
geyma ýmsa fjársjóði sem alltaf er jafngaman að
og veita manni alveg sérstaka innsýn inn í heim
Bachs. Ekkert síður en í stóru passíuverkunum og
öðrum viðamiklum verkum eins og h-moll messu.
Ein kantata sem ég hlustaði mikið á fyrir
nokkrum árum heitir Ich hatte viel Bekümmernis
og hefur lengi verið uppáhaldi hjá mér. Nú nýverið
hlustaði ég á hana aftur og fannst hún jafnvel
sterkari en áður. Kannski á boðskapurinn alveg sérstaklega vel við
þessi misserin. Við höfum jú öll miklar áhyggjur. Ég ætla nú samt að
áhyggjur Bachs hafi að mestu verið af öðrum toga en þær sem Ís-
lendingar hafa nú um stundir en samt er samhljómur í ýmsu. Það
ótrúlega við tónlistina í kantötunni er það að þrátt fyrir að sungið sé
hástöfum og margradda „Ich hatte viel Bekümmernis“ fær tónlistin
mann til að gleyma áhyggjum hvort sem er af daglegu amstri eða
hinum dýpri vandamálum sem til að mynda þjóðarskútan stendur
frammi fyrir og snertir daglegt líf okkar allra.
Flutningurinn er frá 1976 og er það Bachsveit Helmuth Rillings
sem annast hann. Ég verð að segja að mér finnst alveg ótrúlegt hvað
þessar upptökur Rillings eldast vel. Vissulega er flutningurinn mjög
rómantískur og leikið er á nútímahljóðfæri en ekki upprunaleg hljóð-
færi en það kemur ekki að sök því að tilfinningar tónlistarinnar kom-
ast allar til skila enga að síður. Að vísu væri gaman að heyra Ich
hatte viel Bekümmernis með mönnum eins og Maasaki Suzuki eða
Philippe Herreweghe og sjá hvort þeirra túlkun er mjög frábrugðin en
þeir leita báðir mjög að hinum upprunalega tóni tónlistar Bachs.
Þær geyma ýmsa fjár-
sjóði sem alltaf er jafn-
gaman að og veita manni
alveg sérstaka innsýn inn
í heim Bachs.
Hlustarinn | Matthías Birgir Nardeau
Höfundur er óbóleikari
É
g er loksins að koma mér í kynni
við bækur Einars Kárasonar,
Óvinafögnuð og Ofsa, í tilefni af
sjónvarpsviðtali sem ég átti við hann
fyrir flunkunýjan vef: http://
www.sagenhaftes-island.is . Þetta er
auðvitað Meistaradeildin. Einar opnar
söguheim Sturlungu og hugmynda-
fræðina um ferðalag hetjunnar upp á
gátt. Frásagnarhátturinn svolítið eins-
og í raunveruleikaþáttunum Survivor eða Hell’s Kitchen,
og mannlegt eðli samt við sig hvort sem er 1209 eða
2009. Ég var látinn lesa Njálu sem refsingu fyrir óþekkt
þegar ég sat eftir í Laugarnesskólanum í gamla daga og
hef verið þétt þreyttur á fornsögum síðan. Þetta stöff
kveikir aftur á móti rækilega í mér, hittir rakleitt fyrir í
bókasafninu mínu ritsafn Josephs Campbells og skrif
hans um goðsögur og ævintýri. Einar skrifast á við kjarn-
ann í Sturlungu, með rétta stafsetningu og það sem Lax-
enss var hengdur fyrir út af Gerplu, svona sló og slær
hjarta þjóðarinnar. Það er mikill galdur að geta sagt
sögu, þetta var löngum frægur frasi í kvikmyndaheim-
inum: ,,Ég er fyrst og fremst að segja sögu“ sögðu allir
leikstjórar í viðtölum. En það þarf meira til en bara: Einu
sinni var … Góður sögumaður er eins og góður málari,
fléttar saman litum og formum, en erfitt að sjá nákvæm-
lega í hverju snilli liggur. Það er líka skuggalegt, en
spennandi að tengja söguefnið í Óvinafagnaði og Ofsa við
pólítík í tilefni af kosningunum í dag, niðurlagið í Óvina-
fagnaði sem sýnir að sagan endurtekur sig alltaf og án
undantekninga: „Og skálmöldin hófst á ný, blóðugri en
nokkurntíma fyrr …“
Lesarinn | Þorsteinn Joð
Einar skrifast á við kjarnann í
Sturlungu, með rétta stafsetn-
ingu og það sem Laxenss var
hengdur fyrir út af Gerplu, svona
sló og slær hjarta þjóðarinnar. Höfundur er sjónvarpsmaður
Draugasetrið Stokkseyri
Draugar fortíðar,
hljóðleiðsögn og sýning
Opið allar helgar frá kl. 14-18
Opnum fyrir hópa á öðrum tímum
www.draugasetrid.is
draugasetrid@draugasetrid.is
sími 483-1600 895-0020
Icelandic Wonders
Safn um álfa, tröll og norðurljós
Opið allar helgar frá kl. 14-18
www.icelandicwonders.com
info@icelandicwonders.com
sími 483 1600, 895 0020.
Á Landnámssýningunni í Aðalstræti 16
mætast elstu minjar um búsetu í Reykjavík
og nýjasta margmiðlunartækni.
Úrval af fallegri gjafavöru í safnbúðinni.
Opið alla daga frá kl. 10-17.
www.minjasafnreykjavikur.is/www.reykjavik871.is
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ÍSLANDS
Endurfundir – fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna!
Þrælkun, þroski, þrá? Ljósmyndir af börnum við vinnu.
Leiðsögn á íslensku alla sunnudaga kl. 14.
Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17.
Aðgangur ókeypis fyrir börn.
www.thjodminjasafn.is
Söfnin í landinu
Setrin í landinu
Görðum, 300 Akranes
Sími: 431 5566 / 431 1255
www.museum.is
museum@museum.is
Listasafn: Hulda Vilhjálmsdóttir
Byggðasafn: Völlurinn
Bátasafn: 100 bátalíkön
Bíósalur: Verk úr safneign
Opið virka daga 11.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Ókeypis aðgangur
reykjaensbaer.is/listasafn
LISTASAFN ASÍ
Bjargey Ólafsdóttir
Stungið af til Suður-Ameríku
og Keiko Kurita
tree/sleep
Síðasta sýningarhelgi
Opið 13-17 alla daga nema mánud.
Freyjugötu 41, 101 Rvk
www.listasafnasi.is
4. apríl – 10. maí 2009
Veðurskrift:
Guðrún Kristjánsdóttir
Fjölskylduleiðsögn
sunnudaginn 26. apríl kl. 14
Síðdegisdjass í kaffistofu
26. apríl kl. 15
Opið 11-17, fim. 11-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is • Sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
NOKKRIR VINIR 13.2.-3.5. 2009
LEIÐSÖGN Sunnudag kl. 14-15 í fylgd Halldórs B. Runólfssonar safnstjóra
DIETER ROTH – PUZZLE Heimildarmynd Hilmars Oddssonar
um myndlistarmanninn Dieter Roth er sýnd í sal 2.
UNG BÖRN NJÓTA MYNDLISTAR - Sýning á verkum nemenda
Myndlistaskólans í Rvík á jarðhæð.
SES - design: Kynning á hönnuðinum Sigríði ELfu Sigurðardóttir í Safnbúð
Hádegisleiðsögn þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10-12.40
Opið kl. 11-17 alla daga, lokað mán. Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR.
www.listasafn.is