Lesbók Morgunblaðsins - 05.09.2009, Síða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 05.09.2009, Síða 12
Í nýju smásagnasafni Þórarins Eldjárns eru ellefu smásögur sem allar bera sterk ein- kenni höfundarins. Þær eru vel byggðar, skrifaðar á fallegu máli, fíngerðar og háðsk- ar og sögumenn og aðalpersónur eru yfirleitt karlar. Fyrsta sagan í bókinni, Kauði, er alger- lega dæmigerð Þórarinssaga. Sögumaður lýsir ókunnugum manni, dregur upp einstrengings- lega mynd af honum í huga sér, fær manninn á heilann án þess að skeyta um hann að öðru leyti. Þegar kauði deyr kemur allt annað hljóð í strokkinn. Svipað þema er á ferð í Sillu á Klömbrum, fordómar byggðir á útliti og fram- komu annars fólks koma í veg fyrir frekari kynni. Síðasta sagan í safninu, Flökkusaga, ber líka sterk höfundareinkenni. Hamskipti og sam- runi hafa löngum verið Þórarni hugleikin, þ.e. hvernig fólk breytist, skarast eða rennur saman við eitthvað annað, t.d. hugmynd, þráhyggju eða persónu. Nafnið er tvírætt, þetta gæti verið flökkusaga, hún segir frá tveimur félögum sem taka að sér að endurlífga forna þjóðhætti með því að flakka um landið og skemmta fólki í eins konar útrásarprókjekti til eflingar ferðaþjón- ustu. Annar þeirra starfaði í blómlegu fyrirtæki, fékk feitan starfslokasamning en gerist föru- maður eftir fortölur félaga síns. Hann lifir sig svo inn í hlutverkið að hann leggst út í alvör- unni. Það er leitt að þessi persóna heitir bæði Sigurgeir og Sigurjón (155) en slík villa má ekki fara framhjá forleggjaranum. Í Skáldu fær hundtík mál og mannlega skynsemi, ritstíflað skáld fær innblástur frá tíkinni sem liggur yrkj- andi fram á lappir sínar og gruflar í því hvernig skáldinu tekst að klúðra öllum góðu hugmynd- unum sem hún sendir honum. Og hún hugsar með sér: „Hann er ansi fastur í þessu hvimleiða hagmælskufari sem ég held að sé reyndar stærri partur af hans vandamáli en honum er ljúft að viðurkenna“ (48). Hugur manns og tíkur sameinast í ljóðlistinni, samband er komið á þótt það sé „brenglað“ (enn tvíræðni). Tíkin yrkir alveg snilldarlega um skáldið að strauja skyrtu: Þó járnsins lófi glói geri sléttar og felldar flíkur allar tekst mér eigi allt að einu mitt líf að slétta (48) Smásögur Þórarins geta sumar virkað sléttar og felldar og látið lítið yfir sér í einfaldleika sín- um og fáguðum húmor. En þær geta líka verið lúmskar og beinskeyttar og ýtt harkalega við lesanda sem er að sofna á verðinum. Samfélags- gagnrýni er víða finna í verkum Þórarins og nokkrar sagnanna í safninu sækja efnivið sinn í firringu og bankahrun. Þar segir frá borgum sem taka ekkert mið af fólkinu sem í þeim býr og frá mönnum sem eru hugtómir og rauntómir, „holmenni“ (79) en hefjast til vegs og virðingar í samfélagi sem horfir mest á hylkið og ytra byrð- ið. Það væri gaman að heyra meira um hol- mennin, þeir eru gott efni í skáldsögu. Í Draugaborg talar fólk ekki um annað en peninga, „Já, það var til svo mikið af peningum og svo mikið af ríku fólki. Að minnsta kosti að því er talið var þótt fæstir hefðu séð það…“ (115). Og í Hvaðefsögu er á yf- irborðinu gert góðlátlegt grín að hrepparíg og byggðastefnu en undir er táknræn mynd af holu fjalli sem hrynur á sautjánda júní. Íþróttabyltingin er dæmisaga þar sem hag- ræðing, hagnaður, vöruþróun og kostun halda innreið sína í íþróttaiðkun með undraverðum árangri. Eftirlit með lyfjanotkun hafði lengi taf- ið fyrir framförum og var það því lagt niður. Í kjölfar þess þöndust markhópar út, ný met voru sett og allir urðu jafnir og frjálsir. Einhverjir nöldrarar börðust gegn þessari þróun en áttu engin rök „gegn sigrandi viðhorfum nýrra tíma“ (93) og voru álitnir fordómafullir afturhalds- seggir. Þetta má auðveldlega heimfæra upp á atburði síðustu mánaða hér á landi. Um snilld- artök Þórarins á smásagnaforminu þarf ekki að fjölyrða. Samfélagsgagnrýni hans hefur hins vegar aldrei verið eins beitt og í þessum sögum enda er hlutverk skáldskaparins nú sem aldrei fyrr að skilgreina veruleikann, fletta ofan af svikunum og segja satt. Morgunblaðið/Golli Þórarinn Eldjárn „Um snilldartök Þórarins á smásagnaforminu þarf ekki að fjölyrða. “ BÆKUR STEINUNN INGA ÓTTARSDÓTTIR Samfélagsgagnrýni hans hefur hins vegar aldrei verið eins beitt og í þessum sögum enda er hlutverk skáld- skaparins nú sem aldrei fyrr að skilgreina veru- leikann, fletta ofan af svikunum og segja satt. SMÁSÖGUR | Alltaf sama sagan Eftir Þórarin Eldjárn. Vaka-Helgafell 2009. 159 bls. bbbbn Já það var svo mikið til af peningum... MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009 12 LesbókGAGNRÝNI Leiklist Þjóðleikhúsið – Utan gátta eftir Sigurð Pálsson „Ótrúlega margt þarf að gerast til að leiksýning nái flugi. Leikarar þurfa að fara á kostum, texti, hreyfing, hljóð og mynd þurfa að renna saman í eina heild svo úr verði samfellt listaverk. Allt þetta gerist í Utan gátta. Það má vart á milli sjá hver hinna listrænu þátta er bestur en í því er einmitt galdur verksins fólginn og þá ekki síður „skipstjórans“ Kristínar Jóhannesdóttur. Þegar upp er staðið fer áhorf- andinn með þá tilfinningu út í kvöldkulið að hann hafi upplifað eitthvað óumræðilega fyndið, satt, beitt, fallegt – og ljótt. Eitthvað sem hefur jafna skírskotun í hefðina og samtímann, í hið kvenlega og karllæga, hið háfleyga og alþýð- lega. Og samt er engin leið að segja frá því sem sýningin fjallar um. Til þess hefur hún of víða skírskotun. En hún á mikið erindi við okkur öll í dag, því þar er tekist á við sammannlegan veru- leika venjulegs fólks, ótta þess, vonir og veik- leika á einstakan máta.“ Fríða Björk Ingvarsdóttir Dans Hafnarfjarðarleikhúsið – Húmanimal eftir Ég og vinir mínir „Verkið er afar áhuga- vert. Það er eins konar leiðangur þar sem verið er að kanna hvatir mannsins, þ.á m. kyn- hvötina og hvar mun- urinn liggur á ást og of- beldi. T.a.m. er atriði milli karls og konu þar sem þau slást heiftar- lega. Síðar í verkinu er annað atriði sem sýnir sama fólk elskast. Munurinn er ekki ýkja mikill. Margt í verkinu er ekki ný sannindi, þó kemur ýmislegt á óvart því hópurinn nálgast viðfangs- efnið með öðrum hætti en maður sér hvers- dags. Kannski erum við dýrslegri en við þorum að viðurkenna. Hópurinn sýnir með skemmti- legum hætti að maðurinn er vissulega dýr og ekki eingöngu í hegðun sinni heldur einnig lík- amlega, eins og í ógleymanlegu atriði þar sem leikarar sýna bök sín á þann hátt að allt mann- legt við líkama þeirra hverfur nánast.“ Ingibjörg Þórisdóttir Kvikmyndir Karlar sem hata konur – leikstjóri Niels Arden Oplev bbbbn „[Larsson] fær sannkallaða víkingaútrás fyrir andúðina á spillingunni á meðal auðmanna- aðalsins. Karlar sem hata konur er árás á kyn- þáttafordóma, siðleysi og úrkynjun með hrika- legu, ofbeldisfullu ívafi sem er sannkallaður vítiskokteill úr fáguðum ófögnuði; Lömbin þagna með slettu úr subbumyndum á borð við Saw og Hostel.“ Sæbjörn Valdimarsson Í GANGI SVARTBÓK KOMMÚNISMANS Ýmsir höfundar/Hannes H. Gissurarson þýddi Kommúnisminn var einn afdrifaríkasti þátturinn í sögu tuttugustu aldar. Eftir fall hans í Mið- og Austur- Evrópu varð aðgangur að upplýsingum greiðari og það hafa höfundar þessarar bókar nýtt sér, og áætla þeir, að kommúnisminn hafi kostað hátt í 100 milljónir manna lífið. Honum hafi hvarvetna fylgt fjöldamorð, hungursneyðir, nauðungarflutningar stétta og þjóðflokka, sýndarréttarhöld, aftökur og þrælkunarvinna. Bókin hefur komið út á öllum heimstungum, víða verið á metsölulistum og leitt til fjörugra umræðna. 828 bls. AUÐGINNT ER BARN Í BERNSKU SINNI. Fyrning kynferðisbrota gegn börnum. Svala Ísfeld Ólafsdóttir, Gerð er grein fyrir refsipólitískum sjónarmiðum sem lágu að baki breytingum á fyrningarreglum almennra hegningarlaga vorið 2007. Samkvæmt þeim skulu tiltekin alvarleg kynferðisbrot gegn börnum ekki fyrnast. Aðdragandi breytinganna og rökin fyrir þeim bera vitni um ný viðhorf til slíkra brota þar sem aukið tillit er tekið til brotaþola og sérkenna brot- anna. Í bókinni er að finna margvíslegan fróðleik um þennan brotaflokk, sérkenni hans og afleiðingar brot- anna fyrir þolendur. 149 bls. SAGA VIÐSKIPTA- RÁÐUNEYTISINS 1939-1974 Hugrún Ösp Reynisdóttir Hér er saga viðskiptaráðu- neytisins rakin frá upphafi til ársins 1994. Dregið er fram hvernig viðskiptastefna stjórnvalda þróaðist frá höft- um til viðskiptafrelsis þar sem frjáls samkeppni fyrirtækja, valfrelsi neytenda og leiðbein- andi hlutverk ríkisins eru ráðandi. Lýst er þætti ráðu- neytisins í mótun umræddrar stefnu og framkvæmd hennar. Sérstök áhersla er lögð á þá málaflokka sem lítið hefur verið fjallað um í fræðiritum, s.s Marshall- aðstoðina, verðlagsmál, viðskipti við Austur-Evrópuríkin og efnahagssamvinnu Norðurlandanna. 218 bls. H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N haskolautgafan.hi.is – hu@hi.is – s. 525 4003 ALMANAK FYRIR ÍSLAND 2010. Auk dagatals flytur almanakið margvíslegar upplýsingar, s.s. um sjávarföll og gang himin- tungla. Lýst er helstu fyrir- bærum á himni, sem frá Íslandi sjást. Einnig stjörnu- kort, kort sem sýnir áttavita- stefnur á Íslandi og kort sem sýnir tímabelti heimsins. Þar er að finna yfirlit um hnetti himingeimsins, mælieiningar, veðurfar, stærð og mannfjölda allra sjálfstæðra ríkja og tímann í höfuðborgum þeirra. Fjallað er um vetrarbraut- ina, björtustu fastastjörnurnar, tímaskiptingu jarðar- innar, reikistjörnurnar ofl. Þá má nefna grein um Góupáska, sem eru mjög sjaldgæfir, og sumarpáska. Loks eru í almanakinu upplýsingar um helstu merkis- daga fjögur ár fram í tímann.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.