Morgunblaðið - 03.01.2009, Side 12

Morgunblaðið - 03.01.2009, Side 12
12|Morgunblaðið Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is Margir líta á ársbyrjunsem góðan byrj-unarreit fyrir heil-brigt líferni og hollt mataræði en því miður endist það ekki alltaf út árið. Guðjón Davíð Karlsson leikari viðurkennir að hann sé svolítill túramaður í holl- ustu. „Ég hugsa um hvað ég set ofan í mig en ég er ekkert heila- þveginn af hollustu. Hins vegar missi ég mig stundum alveg í hina áttina og fæ mér sætindi og annað óhollt. Mér finnst það voðalega gott. En svo tek ég mig á og þá líður mér miklu betur en þá þarf ég stundum að sýna mikinn vilja- styrk. Ég þarf að passa mig því ég finn að þegar mikið er að gera má ég ekki missa mig í þungan mat. Það er til dæmis mikið að gera í leikhúsinu um jólin og ég geri mér alveg grein fyrir því að maður má ekki alveg tapa sér í gleðinni. Jólin eru náttúrlega ynd- islegur tími og maður verður að leyfa sér að detta í nammi- skálarnar. Allt er gott í hófi og ég held að það sé gott að hugsa holl- ustuna þannig. Maður má ekki missa sig, í hvoruga áttina, og ég reyni að sigla meðalveginn.“ Erfitt að koma sér í ræktina Guðjón segist reyna að hreyfa sig daglega og er til dæmis í stanslausri hreyfingu þessa dag- ana í sýningunni Fló á skinni í Borgarleikhúsinu. „Það er eins og eróbikktími en utan þess reyni ég að mæta í ræktina en verð að við- urkenna að ég er túramaður í því líka. Ég tek svona góðar syrpur í ræktinni en svo dett ég út aftur. Það er ótrúlega skrýtið hvað get- ur verið erfitt að drífa sig af stað og svo finn ég þegar ég er mætt- ur og kominn í rútínu hvað þetta er ótrúlega þægilegt. Svo ef mað- ur dettur úr taktinum þá getur verið svakalega erfitt að komast í stuð aftur. Það er minn akkilles- arhæll en ég er ekkert sér- staklega svona „í kjólinn fyrir jól- in“ týpa. Ég reyni að komast í kjólinn allan ársins hring. Ég fer í göngutúra og reyni að hreyfa mig. Ég er nýbakaður faðir þannig að það er mjög gott að fara út með barnavagninn og viss hreyfing í því.“ Elda úr góðu hráefni Guðjón segir að þó hann hugsi eitthvað um hollustu þá velti hann því kannski ekki mikið fyrir sér þegar hann eldar. „Ég vildi að ég gæti svarað því játandi að ég hugsi mikið um hvað ég set í matinn en ég geri það nú ekki. Ég hef reynd- ar mjög gaman af því að elda. Ég fer ekki mikið eftir uppskriftum heldur hef ég gaman af til- raunaeldamennsku. Samt elda ég ekki óhollan mat, mér finnst gam- an að elda úr góðu hráefni og gott hráefni hlýtur að vera hollt,“ segir Guðjón og kímir. „Ég er samt oft- ast með hollustu á bak við eyrað og til dæmis þegar ég versla. Svo reyni ég að hafa fjölbreytileikann í fyrirrúmi og borða fisk nokkrum sinnum í viku auk þess að hafa kjöt og kjúkling reglulega.“ Óhollustu í annríki Verst er mataræði Guðjóns þeg- ar mikið er að gera í vinnunni og segist hann eiga erfitt með að finna jafnvægi þá. „Þá þarf ég oft að borða eitthvað á hlaupum og það eru eiginlega verstu stund- irnar þegar ég þarf að grípa eitt- hvað og borða í bílnum á leiðinni á milli staða. Þá er ég að deyja úr hungri og verð að velja eitthvað sem ég get gripið með mér en er líka mettandi og gefur mér orku. Þá líður mér ekkert rosalega vel og ég fæ alltaf móral. Eftir á velti ég síðan fyrir mér af hverju ég fékk mér ekki ávöxt eða eitthvað Þarf stundum að sýna mikinn viljastyrk Guðjón Davíð Karlsson leikari segist ekki heila- þveginn af hollustu þó vissulega hugsi hann um hvað hann láti ofan í sig. Hann reynir líka að vera duglegur að hreyfa sig en viðurkennir að stund- um sé erfitt að koma sér í ræktina. Morgunblaðið/Golli Guðjón Davíð Karlsson: „Allt er gott í hófi og ég held að það sé gott að hugsa hollustuna þannig. Maður má ekki missa sig, í hvoruga áttina.“ Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is Svokallaðar ketilbjöllur verðaæ vinsælli í líkamsrækt ídag en þá eru gerðar æfing-ar í hóptíma með nokkurra kílóa bjöllur, annaðhvort eina eða tvær. Alda Hanna Hauksdóttir íþróttakennari kennir líkamsrækt með ketilbjöllum en hún heillaðist af bjöllunum fyrir ári. „Það sem heill- aði mig við bjöllurnar var fjöl- breytnin í æfingunum og hvað þjálf- unin tók ótrúlega mikið á alla vöðvahópana. Það kom skemmtilega á óvart. Svo finnst mér þetta mjög skemmtileg þjálfun og það er ekki nauðsynlegt að vera lengi með bjöll- urnar. Ég á bjöllu heima og stundum tek ég nokkrar æfingar sem taka bara um tuttugu mínútur, sem er mjög fínt.“ Unnið með allan líkamann Alda Hanna segir að æfingar með ketilbjöllunum dragi fleiri vöðva og liði inn í hreyfinguna en hefð- bundnar æfingar með lóðum og þar liggi sérstaða bjallanna. „Þetta virk- ar eins og keðjuverkun því það er tekið á öllum vöðvahópum og úthald- ið eykst líka. Þetta eru samhæfðar æfingar sem koma inn á alla vöðva- þætti og það myndast svona hreyf- ing á vöðvakeðjunum. Það er alltaf verið að vinna með allan líkamann og sérstaklega miðju líkamans þar sem styrkurinn þarf að vera,“ segir Alda Hanna sem viðurkennir að það sé mikið stuð í tímum með ketil- bjöllur. „Við hreyfum okkur með kúlunum. Fyrst hitum við upp og það gerum við bæði með bjölluna og án hennar. Svo er keyrsla í 30-40 mínútur þar sem við notum bjöll- urnar.“ Töluverð átök Ketilbjöllurnar eru misþungar, léttustu bjöllurnar eru átta kíló og þær þyngstu 36 kíló. „Stundum not- um við tvær bjöllur en stundum bara eina, allt eftir því hversu mikla keyrslu við viljum taka. Það eru ekki margar endurtekningar í æfingum með bjöllunum því um leið og við- komandi getur gert ákveðna æfingu með bjöllu sex sinnum án þess að hafa mikið fyrir því er kominn tími til að fá sér þyngri bjöllu. Viðmiðið er að konur byrji með átta kílóa bjöllur en sterkar og vanar konur byrja kannski með 12 kílóa bjöllu. Óvanir karlmenn byrja með 12 kíló en vanir með 16 kíló. Ég er komin upp í 12 kílóa bjöllu og fer bráðum að prófa 16 kíló en það geri ég hægt og rólega. Það er töluverður munur á þessum fjórum kílóum og því vinn ég með báðar þyngdirnar til að byrja með,“ segir Alda Hanna en bætir við að átökin séu talsverð. „Ég hef feng- ið fólk í tíma hjá mér sem hefur lyft í mörg ár og er svo uppgefið eftir tíma með bjöllunum því þetta er öðruvísi þjálfun.“ Hálftími er nóg Þyngdarpunkturinn á ketil- bjöllum er á öðrum stað en í venju- legu lóði. Formið og sú staðreynd að kúlan getur færst í kringum höndina veldur því að auknar kröfur verða á jafnvægi og samhæfingu þegar æft Samhæfðar æfingar með bjöllum Líkamsrækt með ketilbjöllum verður sífellt vinsælli en kostur bjallanna er helst sá að þær reyna á alla vöðvahópa. Æfingin þarf ekki að taka meira en 40 mínútur enda talsverð átök. Morgunblaðið/Kristinn Alda Hanna Hauksdóttir: „Æfing með bjöllunum virkar eins og keðju- verkun því það er tekið á öllum vöðvahópum og úthaldið eykst líka.“ Krefjandi Þjálfun með ketilbjöllur tekur á en er mjög skemmtileg að sögn Öldu Hönnu Hauksdóttur. Byggð á tilfinningavinnu og slökunaröndun. Sjálfshjálparbók. Námskeið fyrir fagfólk og aðra. Þaulreynd og árangursrík sjálfstyrking! Sjá nánar www.baujan.is Sími 699 6934 Baujan, sjálfstyrking

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.