Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 19
Morgunblaðið |19 Eva María Jónsdóttir sjónvarpskona „Ég held að ég hafi ekki verið mjög iðin við heilsurækt undanfarið. En þetta telst vafalaust til ræktar; að lyfta lóð- um einu sinni í viku, að hlusta á tónlist liggjandi, að kitla börn og heyra þau hlæja og að sitja kyrr og góna út í loftið. Svo má einnig tína þetta til; að borða hráar gulrætur, að drekka vatn við stofuhita, að taka multidophilus, að drekka ekki með mat og reyna að tyggja matinn vel. Svo hlýtur nýjasta heilsuræktin að vera að kemba sér með lús- akambi reglulega til að hindra framgang lúsa í hári.“ Morgunblaðið/Valdís Thor Eva María Jónsdóttir: „Ég held að ég hafi ekki verið mjög iðin við heilsurækt undanfarið.“ Hver er þín heilsurækt? Hlusta á tónlist liggjandi Það er mun eðlilegra að bæta mat- aræði sitt með stigvaxandi en var- anlegum breytingum í stað þess að fara í endalausa megrunarkúra. Þeir sem fara í megrun finna oft fyrir hungri og skorti sem getur orðið til þess að viðkomandi fellur á bind- indinu og borðar óhollt á ný. Betri leið er að minnka inntöku kaloría á hverjum degi án þess þó að finna fyrir skorti. Góð byrjun á því getur verið að halda matardagbók dag- lega. Rannsóknir sýna að fólk van- metur hve mikið það borðar daglega og borðar því of mikið án þess að vita af því. Lykillinn að eðlilegri skammtastærð er að lesa merkingar á matvælum. Oft er ákveðin vara mun orkuríkari en viðkomandi hefur talið og því tilvalið að sjá staðreynd- irnar svart á hvítu. Ekki öll fita slæm Þá er mikilvægt að muna að ekki er öll fita slæm. Ákveðnar olíur og hnetur eru til dæmis mjög næring- arríkar og hollar. Hins vegar hefur fita tvöfalt fleiri hitaeiningar á gramm en kolvetni og prótein. Venjulega innbyrðir fólk rangar teg- undir af fitu sem þýðir að fólk inn- byrðir allt of mikið af kaloríum. Það er því mikilvægt að fara sparlega með smjör, dressingu og krem og nota bara nóg til að rétt finna bragð- ið. Eins er hægt að leita að fitulitlum útgáfum af kryddi eða bragðbæti, eins og dressingum og sósum. Einn skammtur af léttmæjonesi hefur helmingi færri kaloríur en hefð- bundið mæjónes en bragð og áferð er svipað. Þá er líka hægt að bragð- bæta mat verulega með því að nota kryddjurtir og þá eru ekki fleiri ka- loríur. Rannsóknir sýna líka að kryddaður matur, með rauðum pip- ar eða chilípipar, getur hraðað efna- skiptunum og orðið til þess að við- komandi hætti að borða fyrr en ella. Sleppa áfenginu Svo er mikilvægt að drekka mikið af vatni í stað þess að drekka áfenga drykki. Það eru sjö kaloríur í hverju grammi af alkóhóli og áfengi hefur líka áhrif á sjálfsstjórn einstaklinga hvað varðar mat. svanhvit@mbl.is Hollt og gott Ekki er nauðsynlegt að líða skort þótt sé verið að skera niður kaloríur. Stigvax- andi breytingar Dagleg streita er óhjákvæmileg. Gefðu sjálfri/um þér heilbrigt samband við streitu í gegnum árangursríka aðferð Phoenix Rising Yoga Terapy. Notuð er aldagömul jóga fræði. Lærðu að kynnast og skilja sjálfan þig betur í 8-vikna hópumgjörð/vinnusmiðju. Í gegnum þessa þekkingu verður auðveldara að þiggja, taka á móti lífinu eins og það kemur fyrir hverju sinni. Rut • Sími 696 4631 • www.pryt.com Snúa streitu í vellíðan. Lítill hópur: 8 vikur, 2½ tími, miðvikud. + 1 heill dagur 1. hópur - 7. jan. - 25. feb. kl. 17:30-20:00 2. hópur 4. mars - 29. apríl kl. 17:30-20:00 Einkatímar. Opnir jógatímar á miðvikud. kl. 16.10-17.10. og styrking Jóga, slökun Dalshrauni 11, Hafnarfirði, sími 565 2212 Ásvöllum 2, Hafnarfirði, sími 565 2712 hress@hress.is www.hress.is Viltu vera í HRESSA liðinu ? G ra fík a 20 09 Tilboð LesMills 10 ár í HRESS Tilbo› 1 – Fjórir mánu›ir á kr. 22.990.- Tilbo› 2 – Átta mánu›ir á kr. 33.990.- Tilbo› 3 – Árskort á kr. 41.990.- Vinaklúbbur Hress á kr. 4.590.- á mánuði. Binditími 12 mánuðir. Tilboðin standa til 10. janúar. Ný tímatafla tekur gildi 12. janúar. Opið hús að Ásvöllum og Dalshrauni 10. janúar. Aðgangur að sundmiðstöðinni fylgir öllum æfingakortum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.