Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 27
Morgunblaðið |27 Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is Það er gríðarlega mikilvægtfyrir konur að mæta íkrabbameinsskoðun ogekki síst síðari ár þar sem tíðni forstigsbreytinga sem getur leitt til leghálskrabbameins hefur hækkað mikið undanfarin ár. Í krabbameinsskoðun eru frumustrok- ur nýttar til að kanna hvort konur hafi þessar forstigsbreytingar. Krist- ján Sigurðsson, yfirlæknir á leit- arstöð Krabbameinsfélagsins, segir að forstigsbreytingar hjá konum hafi aukist eftir árið 1980. „Upp úr 1980 urðum við varir við að það varð mikil uppsveifla í leghálskrabbameini tíma- bundið. Þegar þetta var kannað betur þá kemur í ljós að það varð samtímis mikil uppsveifla í greindum forstigs- breytingum hjá konum og þetta var bein afleiðing af breytingum í kynlífs- hegðan ungs fólks á þeim tíma. Upp- sveiflan sem varð í leghálskrabba- meini tengdist einnig því að konur mættu mjög illa til leitar á þeim tíma, regluleg mæting var mjög léleg fyrir 1980 en eftir það gjörbreyttum við skipulagi leitarinnar. Í dag erum við því með mjög öflugt eftirlitskerfi en því miður hefur borið á því að mæt- ingin hefur dalað hjá okkur und- anfarin ár. Samt sem áður er hún um 75 prósent sem er miklu betra en það var 1980 en hún mætti vera betri og sérstaklega hjá yngri stúlkunum en það er einmitt hjá þeim sem tíðni for- stigsbreytinganna er að aukast.“ Karlmenn veikjast líka Rúmlega 80 prósent kvenna sem stunda kynlíf fá einhvern tímann svo- kallaða HPV-veiru sem getur mynd- að forstigsbreytingu sem getur síðan þróast yfir í leghálskrabbamein, sé ekkert að gert. Kristján talar um að tíðni HPV-smits sé hæst hjá yngri konum sem hafa nýlega byrjað að stunda kynlíf. „Það er beint samband á milli fjölda rekkjunauta og smitsins því ef viðkomandi rekkunautur hefur stundað kynlíf með öðrum konum og þar af leiðandi smitast þá aukast lík- urnar. En þó svona margar konur sýkist á sinni lífsleið, og jafnvel oftar en einu sinni, þá losna flestar við veir- una jafnharðan. Það er ekki nema innan við örfá prósent kvenna sem þróa áfram forstigsbreytingar. Tíðn- in er þó hærri á meðal yngri kvenna og lækkar með aldrinum. Eldri konur eru yfirleitt komnar með ónæmi gegn þessari veiru. Það eru um 8-9 konur af hverjum 100 þúsund konum sem fá leghálskrabbamein árlega en mun fleiri eða um 1.600 konur sem fá for- stigsbreytingar árlega,“ segir Krist- ján og bætir við að karlmenn fái líka veiruna. „Þessi veira er marg- breytileg því hún veldur ekki bara leghálskrabbameini. Hjá konum get- ur hún líka valdið krabbameini í leg- göngum, burðarbarmi, endaþarmi, öndunarvegi og svo framvegis. Hjá karlmönnum getur hún valdið enda- þarmskrabbameini og í einstaka til- fellum krabbameini í getnaðarlim en slíkt er mun sjaldgæfara en hjá kon- um.“ Bóluefni dregur úr líkunum Það eru meira en 100 stofnar af HPV veirunni en einungis um 17 þeirra eru tengdir beint við krabba- mein, að sögn Kristjáns. „Veiran er margþætt en hún er nokkuð stöðug í eðli sínu. Í mörg ár hefur verið unnið við þróun á bóluefni gegn HPV- veirunni en það eru þó aðallega tveir stofnar sem eru tengdir legháls- krabbameininu. Ef bólusett er gegn þessum tveimur veirum er kannski hægt að reikna með að það verði 60 prósent lækkun á nýgengi legháls- krabbameins en lækkun á tíðni for- stigsbreytinga verður mun minni. Rannsóknir hafa sýnt fram á að ár- angur af bólusetningu er langmestur ef stúlkur eru bólusettar áður en þær byrja að stunda kynmök og þess vegna er best að bólusetja 11-12 ára stúlkur vegna þess að virkni bóluefn- isins er mjög lítil þegar konan er þeg- ar smituð. Bóluefnið dregur úr líkum á leghálskrabbameini en kemur alls ekki í veg fyrir að stúlkur geti ekki fengið forstigsbreytingar og legháls- krabbamein. Þrátt fyrir bóluefni er því mjög mikilvægt að halda áfram að fara í krabbameinsskoðun.“ Lítil áhrif í litlum hópi Kristján talar um að áhrif bólu- setningar séu hins vegar háð því hve margar konur komi í bólusetningu. „Ef einungis er verið að bólusetja lít- inn hluta 12 ára stúlkna hefur bólu- setningin lítil áhrif því veiran mun þá smitast áfram á milli kynja. Aftur á móti ef að minnsta kosti 80 prósent af 12 ára stúlkum eru bólusett í hverjum árgangi er byggt upp svokallað hjarð- ofnæmi sem leiðir til þess að vírusinn hverfur smám saman úr þjóðfélag- inu,“ segir Kristján og bætir við að þetta muni þó taka mörg ár. „Flestar vægar forstigsbreytingar hverfa af sjálfu sér en ef það eru endurteknar breytingar þá er gripið til aðgerða. Þá eru konur konur kallaðar í svokall- aða leghálsspeglun þar sem við skoð- um leghálsinn með stækkunargleri og tökum vefjasýni. Í framhaldi af niðurstöðu vefjasýnisins ákveðum við hvort það sé óhætt að halda áfram að fylgjast með konunni eða hvort við eigum að senda hana í keiluskurð. Keiluskurður er þegar við tökum neðsta hlutann af leghálsinum í burtu en á því svæði er yfirleitt mikil og ör frumuskipting og þar kemst veiran inn og getur valdið truflun. Ef mjög stór keila er tekin getur það valdið því að síðar meir fæði konan fyrir tímann. Þess vegna er mjög mik- ilvægt að þessir keiluskurðir séu framkvæmdir af vönum mönnum.“ Einungis 75 prósent kvenna fara í krabbameinsskoðun Morgunblaðið/Valdís Thor Kristján Sigurðsson: „Rúmlega 80 prósent kvenna sem stunda kynlíf fá einhvern tímann svokallaða HPV-veiru sem getur myndað forstigsbreyt- ingu sem getur síðan þróast yfir í leghálskrabbamein.“ Það er beint samband á milli fjölda rekkjunauta og HPV-smits en HPV er veira sem getur valdið leghálskrabba- meini. Það eru einungis um 75 prósent kvenna sem fara reglulega í krabbameinsskoðun en þar er leitað eftir for- stigsbreytingum sem geta leitt til legháls- krabbameins. Ungt fólk Tíðni forstigsbreytinga hjá ungum stúlkum er að aukast.                  Skvass – frábær íþrótt fyrir alla!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.