Morgunblaðið - 03.01.2009, Síða 13

Morgunblaðið - 03.01.2009, Síða 13
hollara. Svo er eitt sem ég er að vinna í núna en það er sú stað- reynd að ég verð alltaf rosalega svangur eftir sýningar. Við sýnum oft tvær sýningar á föstudögum og laugardögum og þá er ég búinn upp úr klukkan eitt. Þá er ég allt- af orðinn ofboðslega svangur og það er ekki besti tíminn til að belgja sig út af mat. Ég stend á gati hvernig ég leysi þetta en hlýt að finna úr því,“ segir Guðjón Davíð að lokum. Ritzkjúklingur Góa 2 sætar kartöflur 1 poki spínat 1 krukka Fetaostur Fjórar kjúklingabringur Ritzkex Mangó chutney Aðferð: „Kartöflurnar eru hreinsaðar, skornar í sneiðar og lagðar í eldfast mót. Því næst er spínatinu dreift yfir og fetaost- urinn fer svo yfir spínatið. Það er allt í lagi að smá af olíunni fari með. Þessu næst eru kjúklinga- bringurnar teknar og skornar í þrennt og þeim lokað á pönnu ásamt mangó chutneyinu. Bring- urnar eru svo lagðar í eldfast mót og ritzkexið mulið yfir. Eldfasta mótinu er svo stungið inn í ofn og þetta eldað í um það bil 30 mín- útur. Þetta er einstaklega fljótleg og þægileg uppskrift sem ég fékk hjá tengdó. Þetta á alltaf vel við og fer afskaplega vel í maga. Gott er að bera þennan rétt fram með fersku salati.“ Morgunblaðið |13 Hausinn þarf að vera í lagi þegar erf- iðar áskoranir banka upp á. Ef hug- urinn er ekki upp á sitt besta eru meiri líkur á að teknar séu rangar ákvarð- anir og brugðist of hratt við. Til að halda huganum ferskum er ekkert sem jafnast á við góðan svefn. Sumir segja að undirmeðvitundin vinni á vandamálunum á meðan líkaminn hvílist og þess vegna sé auðveldara að finna réttu lausnina að morgni. En kannski er það vegna þess að heilinn er virkastur eftir góðan nætursvefn. Í stað þess að vaka lengi kemurðu meiru í verk með því að fara í rúmið og loka augunum. Þannig helst hug- urinn ferskur og þú getur útilokað vandann þegar þú þarft að sofa. Því ef þú ert þreytt/ur allan daginn og við það að sofna um eftirmiðdaginn gæt- irðu verið að búa til fleiri vandamál en þú leysir. Svefn er mikilvægur Ferskur hugur Það er ekkert sem jafnast á við góðan svefn. er með kúlunum, að sögn Öldu Hönnu. „Þegar æft er með lóðum er því frekar verið að einangra og vinna með einn vöðva en í bjöllunum er unnið með alla vöðvana. Það er verið að styrkja allan líkamann og það er mikið byggt upp á því að vera með miðjuna spennta.“ Alda Hanna segir að bjöllurnar henti byrjendum jafnt sem vönum en þó þurfi byrjendur að fara í kynn- ingartíma. „Þetta geta allir gert, hvort sem það er vanur íþróttamað- ur eða óþjálfaður einstaklingur en sá síðarnefndi fer bara hægar af stað. Hins vegar er þetta svolítil tækni þannig að allir þurfa að fara í grunn- tíma sem eru reglulega fyrir þá sem hafa áhuga. Um leið og tæknin er komin er lítið mál að gera æfingar út frá henni,“ segir Alda Hanna sem kennir tíma í ketilbjöllum í Vegg- sporti auk þess sem hún er afleys- ingakennari í Mjölni. „Kosturinn við ketilbjöllur er að það er ekki nauð- synlegt að þræla sér út í einn eða tvo klukkutíma. Hálftíma keyrsla með bjöllunni er meira en nóg.“ Ketilbjöllur Bjöllurnar eru frá 8 kíló að þyngd og allt að 36 kíló. ókeypis smáauglýsingar mbl.is Lúxusnámskeið NordicaSpa er hannað til að koma þér af stað á mjög árangursríkan og einfaldan hátt. Tilgangur ámskeiðisins er að koma þér á æðra stig hvað varðar líkamlega og andlega heilsu. Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur 3 öflugir brennslutímar 2 styrktartímar í sal undir handleiðslu þjálfara Vikulegar mælingar Ítarleg næringarráðgjöf Fyrirlestur – Borðaðu til að léttast og auka orkuna Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu Hollustudrykkur eftir hverja æfingu Takmarkaður fjöldi 6:30, 7:30, 10:00, 12:00, 16:30 og 18:30 fimm sinnum í viku Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon 1. vika – Orkuhleðsla Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi. 2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem mest út úr holla matnum sem þú ert að borða. 3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem mun hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft. 4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja líkamann á náttúrulegan hátt. Ný námskeið hefjast 5. janúar Skráning er hafin í síma 444 5090 eða nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is Hilton Reykjavík Nordica Hotel Suðurlandsbraut 2 Sími 444 5090 nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is fyrir konur og karla María Másdóttir Við systurnar ætluðum einungis á eitt námskeið en þau urðu þrjú og árangurinn lét svo sannarlega ekki á sér standa. Misstum 23 kíló til samans á þremur mánuðum. Það eigum við Gunnari Má þjálfara og starfsfólkinu á Nordica Spa að þakka. Frábært aðhald, skemmtun, útrás og vellíðan. Við gátum þetta og því getur þú þetta líka. Frábær leiðsögn, frábær stöð og mesta aðhald sem hægt er að fá. Betra en einkaþjálfun! Svo er líka fínt að kílóin fuku og orkan hefur aukist og almenn vellíðan. Ég missti 6,2 kg á 4 vikum. Ég gerði þetta af skynsemi og þú getur það líka! MISSTUM 23 KÍLÓ ÉG GERÐI ÞETTA AF SKYNSEMI ÞÚ GETUR ÞAÐ LÍKATIL SAMANS Á 3 MÁNUÐUM Kristbjörg og Guðbjörg Sveinbjörnsdætur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.