Morgunblaðið - 03.01.2009, Side 15
Morgunblaðið |15
Góð heilsa byrjar með einum göngutúr enda
margar ástæður fyrir því að göngutúrar
eru frábær hreyfing. Það þarf engin sérstök
áhöld til að ganga, það má ganga nánast
hvar sem er og flestir geta farið í göngutúr.
Þar að auki er það frábært fyrir heilsuna.
Reglulegir göngutúrar geta haft jákvæð
áhrif á of háan blóðþrýsting og of mikið kól-
esteról, en hvort tveggja stuðlar að hjarta-
sjúkdómum. Göngutúrar hafa líka áhrif á
jafnvægi og þjálfa upp jafnvægisskynið
þannig að minni hætta er á að viðkomandi
detti. Þetta er sérstaklega mikilvægt í ell-
inni því eldra fólk hefur minna jafnvægi.
Auk þess styrkja göngutúrar bein og liði.
Göngutúrinn er mun betri fyrir liðina en
hlaup eða eróbikk því höggin eru minni.
Aðrir kostir reglulegra göngutúra eru
þyngdartap, meiri orka og betri svefn.
Photos
Heilsurækt Það er hollt og gott að ganga reglulega.
Góðir
göngutúrar
Það getur tekið sinn tíma að venja
börn á aðra fæðu en brjóstamjólk.
Mikilvægt er að gefa sér nógan
tíma til að venja barnið á matinn
og vera viðbúinn því að hann gæti
endað víðar en uppi í munni barns-
ins, til dæmis á veggjum og gólfi!
Góður tími dagsins
Gott er að velja tíma dags þegar
barnið er ekki of þreytt eða svangt
og í byrjun getur verið góð hug-
mynd að gefa því smá brjósta-
mjólk eða mjólkurblöndu skömmu
áður til að það verði ekki jafn
pirrað á að borða úr skeið. Gefðu
þér nægan tíma og ekki neyða
barnið til að borða, taktu frekar
smá hlé og reyndu aftur seinna.
Hitaðu aðeins lítið magn matar í
hvert skipti og hvettu barnið til að
borða sjálft um leið og það hefur
aldur til.
Ullabjakk Gefa þarf börnunum
tíma til að venjast nýju fæði.
Gott fyrir
barnið
Talað er um að 90 prósent þess sem
við höfum áhyggjur af verði aldrei
að veruleika. Hvort sem það er töl-
fræðilega nákvæmt eða ekki er það
veruleiki sem margir kannast við.
Hve miklum tíma sóum við í að
þjást yfir einhverju sem gæti mögu-
lega gerst? Hve oft bregðumst við
ekki rétt við því við hræðumst
mögulegar afleiðingar? Að hafa
áhyggjur af framtíðinni leysir ekki
yfirvofandi vandamál heldur lamar
það gjörðir okkar í nútímanum.
Það veldur álagi, gerir það að verk-
um að viðkomandi er líkamlega og
andlega þreyttur og eyðileggur það
sem annars gæti verið góður dagur.
Næst þegar áhyggjur banka upp á
er gott að hafa í huga að allir geta
undirbúið sig fyrir framtíðina en
fáir geta sagt fyrir um hana. Best
er því að gera það sem maður getur
og gleyma því sem maður hefur
enga stjórn á.
Áhyggjur Stöðugar áhyggjur geta
haft lamandi áhrif.
Engar óþarfa
áhyggjur
ókeypis
smáauglýsingar mbl.is
Árskort
í líkamsrækt og sund
Á 29.990 kr.
ÁRSKORTið Á 27.990 kr.
Tveir saman
aðeins 2.499 kr. á mánuði. Bjóðum Visa/Euro léttgreiðslur
kortið gildir í líkamsrækt og
sund á Báðum stöðVum nautilus
í kópaVogi – sundlaug kópaVogs
og íþróttamiðstöðinni salahVErfi.
sundlaug kópavogs / sími 570 0470
íþróttamiðstöðin Versalir / sími 570 0480
www.nautilus.is
ný nautilustæki // stórir salir með
lausum lóðum // mikill fjöldi hlaupabretta
fullkomin þrektæki // ný sjónvörp
salur fyrir spinning-/hjólatíma
Ókeypis prufutími undir leiðsögn þjálfara.
panta þarf tíma með fyrirvara – 16 ára aldurstakmark.
aðeins 2.333 kr. á mánuði á mann. Bjóðum Visa/Euro léttgreiðslur.
tilboðið gildir til og með 2.-12. janúar 2009