Morgunblaðið - 30.01.2009, Side 4

Morgunblaðið - 30.01.2009, Side 4
4 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2009 HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Ró- bert Wayne Love og Arnar Óla Bjarnason í tveggja og hálfs árs fangelsi hvorn fyrir frels- issviptingu, hús- brot og rán. Þar með þyngdi Hæstiréttur tveggja ára og átján mánaða dóm héraðsdóms sem þeir höfðu áfrýjað. Arnar Óli og Róbert ruddust ásamt þremur öðrum inn í íbúð fórnarlambsins að kvöldi 29. janúar 2007. Þeir kefluðu hann og bundu, kýldu hann í andlit og spörkuðu í hann. Þá hellti Arnar Óli eldfimum vökva yfir hann og hótaði m.a. að mölva í honum tennurnar og brjóta hnéskeljarnar á honum, en Róbert lamdi manninn með járnstöng í vinstra hnéð. Allt var þetta gert til að þvinga hann til að vísa á verð- mæti í íbúðinni. Eftir að hafa mis- þyrmt honum óku þeir brott á bíl mannsins, fullum af þýfi úr íbúð hans. Fram kom að árásin var ekki vegna skulda heldur kvennamála. Þyngri dómur í Hæstarétti Hæstiréttur Þyngdi dóminn. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is VEGAGERÐIN er byrjuð að bjóða út verk á nýjan leik, eftir rúmlega tveggja mánaða hlé sem gert var vegna óvissu í ríkisfjármálunum. Fyrsta útboðið var auglýst í þessari viku og á mánudag verða tvö stór verk boðin út. Reiknað er með að meginþungi framkvæmda í sumar verði á Suðvesturlandi. Vegna minni fjárveitinga til vega- mála á fjárlögum verður dregið úr framkvæmdum frá því sem áformað var á vegaáætlun. Hreinn Haralds- son vegamálastjóri vekur þó athygli á því að árið verði næst mesta fram- kvæmdaár í vegagerð frá upphafi. Vegagerðin hefur 21 milljarð til nýframkvæmda í ár. Þar af hefur 14 milljörðum þegar verið ráðstafað í verk sem byrjað var á í fyrra eða jafnvel fyrr. Verður því hægt að bjóða út ný verk fyrir 6-7 milljarða kr. Fystu útboðin auglýst Ekki hefur verið ákveðið hvaða verk verða boðin út. Byrjað verður á þeim verkefnum sem komin voru á útboðsstig þegar hlé var gert á út- boðum. Þá hefur Vegagerðin fengið tilmæli um að horfa einkum til mannaflsfrekra verkefna á suðvest- urhorni landsins, vegna atvinnu- ástandsins. Reiknað er með að um helmingur fjármagnsins fari til verka á þessu svæði. Fyrsta útboðið sem auglýst er á þessu ári er endurgerð Rang- árvallavegar en það verk var dregið til baka í haust. Næsta mánudag verða boðin út tvö stór verk, Vest- fjarðavegur úr Vatnsfirði í Kjálka- fjörð og tenging Vopnafjarðar. Síðan verða tilboðin auglýst eitt af öðru á næstu vikum og mánuðum. Jarðgöngum frestað? Reiknað er með að ráðist verði í breikkun Vesturlandsvegar um Ull- arnesbrekkuna í Mosfellsbæ og að Þingvallavegamótum og jafnvel að lokið verði við þá kafla nær Reykja- vík sem ekki hafa verið tvöfaldaðir. Búist er við áfanga í breikkun Suður- landsvegar um Hellisheiði, end- urbyggingu Álftanesvegar og lagn- ingu Arnarnesvegar frá Reykjanesbraut að Fífuhvammsvegi. Engar ákvarðanir hafa verið tekn- ar um jarðgöng. Miðað við gefnar for- sendur er ekki líklegt að ráðist verði í ný jarðgöng og því þurfi Norðfjarð- argöng, Vaðlaheiðargöng og Dýra- fjarðargöng að bíða enn um sinn. Aftur byrjað að bjóða út Meginþungi nýrra framkvæmda í vega- gerð í sumar verður á suðvesturhorninu Morgunblaðið/Júlíus Vegagerð Tvöföldun þeirra kafla á Vesturlandsvegi um Mosfellsbæ, sem eftir eru, er eitt af forgangsmálunum í framkvæmdum á þessu ári. KOMI fram beiðni um greiðslu- stöðvun eða krafa um gjald- þrotaskipti einstaklings er hægt að krefjast riftunar á gjafagjörn- ingum viðkomandi til nákominna einstaklinga. Verður gjöfin að hafa verið af- hent innan tveggja ára fyrir þann dag er krafa um greiðslustöðvun eða gjaldþrotaskipti er gerð. Í lög- um um gjaldþrotaskipti eru makar og sambýlisfólk talin til nákominna í þessum skilningi. Í frétt Sjónvarpsins á miðvikudag kom fram að sjö núverandi og fyrr- verandi yfirmenn hjá Kaupþingi hefðu afsalað, með einum eða öðr- um hætti, eiginkonum sínum eða sambýliskonum helmingi húseignar sinnar. Fari svo að þessir menn verði gjaldþrota er hægt að gera kröfu um að þessum afsalssamn- ingum verði rift. Samningarnir voru gerðir 31. ágúst til 22. októ- ber, en Kaupþing lagðist á hliðina aðfaranótt 9. október. Lögfræðingar, sem Morg- unblaðið ræddi við, segja að yrði slík riftunarkrafa gerð þyrfti skuldarinn að sýna fram á að ann- aðhvort hafi hann fengið eðlilegt verð fyrir eignina, eða að hann hafi verið gjaldfær þrátt fyrir gjöfina. Í raun snýst sönnunarbyrði því við í þessum málum, því sá sem ger- ir kröfu um riftun þarf ekki að sanna að þrotabúið hafi orðið fyrir tjóni, heldur ber skuldaranum að sanna að svo hafi ekki verið. Samkvæmt þinglýsingarvottorði frá sýslumanninum í Hafnarfirði hefur eignarhald á fasteign Krist- jáns Arasonar og Þorgerðar Katr- ínar Gunnarsdóttur ekki breyst. bjarni@mbl.is Morgunblaðið/Golli Afsal Tveir yfirmannanna afsöluðu húsum sínum daginn fyrir hrun. Möguleiki á riftun NÁMSMENN fylktu liði fyrir framan Alþingis- húsið í gær og ítrekuðu kröfur frá því fyrr í vet- ur um að stjórnvöld drægju til baka skerðingu á framlögum til Lánasjóðs íslenskra námsmanna og Háskóla Íslands. Meðal mótmælenda var Sig- urður Kári Árnason, oddviti Röskvu, sem sagði að ekki yrði slegið af kröfunum eftir stjórnar- skiptin. „Við hjólum í hvern þann sem stendur í vegi fyrir hagsmunum stúdenta,“ sagði hann. Kröfuspjöldin enn á lofti Morgunblaðið/Kristinn Nemendum verði hlíft í niðurskurðinum „VIÐ erum að vinna að því að fá verkefni til Íslands í samvinnu við að- ila í Noregi í stað þess að atvinnu- lausir verkfræðingar og tæknifræð- ingar fari utan til vinnu,“ segir Árni Björn Björnsson, framkvæmdastjóri félaga verkfræðinga og tæknifræð- inga. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Vinnumálastofnun voru 68 verkfræð- ingar og 52 tæknifræðingar á at- vinnuleysisskrá í desember. „Upp- sögnum hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarna mánuði og ég er hrædd- ur um að ástandið eigi eftir að versna, “ segir Árni. Töluvert hefur borist af atvinnutilboðum frá Noregi en fáir hafa flutt utan, að því er Árni telur. „Við álítum að það sé betra að menn hafi þetta eins og þegar farið er á síld, það er að þeir flytji ekki með fjölskyldu með tilheyrandi raski heldur komi heim með reglulegu millibili. Við megum ekki missa þetta fólk auk þess sem best væri fyrir fyr- irtækin að fá verkefni svo að þau lifi. Það er hægt að stórum hluta í mörg- um tilfellum.“ Að sögn Árna hafa margir verk- fræðingar misst vinnuna í bönkum. Þeim hefur einnig verið sagt upp á verkfræðistofum og í öðrum fyrir- tækjum. Verktakar hafa sagt upp mörgum tæknifræðingum. Samkvæmt könnun Félags sjálf- stætt starfandi arkitekta um mán- aðamótin október og nóvember hafði tæpum 50 prósentum launþega á arkitektastofum verið sagt upp störf- um. Staðan er verri nú, að sögn for- mannsins, Aðalsteins Snorrasonar. ingibjorg@mbl.is Vinnan heim frá Noregi Vilja ekki missa fólkið úr landinu 30 - 70% afsláttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.