Morgunblaðið - 11.02.2009, Síða 12

Morgunblaðið - 11.02.2009, Síða 12
12 FréttirALÞINGI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 „ÉG held að það hljóti að vera einhver mis- skilningur í þessu. Það er alveg ljóst að við munum standa við allar þær skuldbind- ingar sem við höfum gengist undir á alþjóð- legum vettvangi. Það er engin breyting á því.“ Þetta voru viðbrögð Jóhönnu Sigurð- ardóttur forsætisráðherra við ummælum sem Financial Times Deutschland hafði eft- ir Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í gær á þá leið að hann hafnaði því að þýsk- um sparifjáreigendum yrði bætt tap, sem þeir hefðu orðið fyrir vegna innlagna á Edge-reikninga Kaup- þings í Þýskalandi. Fréttin olli miklum titringi í gær. Viðskiptaráðherra sendi frá sér yfirlýsingu um að afstaða ríkisstjórnarinnar varðandi innstæður útibúa íslenskra banka á Evrópska efnahagssvæð- inu hefði ekki breyst síðan í nóvember 2008. Samningaviðræður stæðu yfir og mundi þeim vonandi ljúka fljótlega. Gamla Kaupþing sendi frá sér frétta- tilkynningu þar sem sagði að bankinn hefði tryggt nægilegt fjármagn til að greiða langflestum eigendum Edge-sparireikn- inga í Þýskalandi inneignir sínar og ítrekað er að innstæðurnar verði greiddar úr sjóð- um bankans og falli því ekki á skattgreið- endur. Ólafur Ragnar lýsti því svo yfir í gær að orð hans hefðu verið tekin úr samhengi í viðtalinu. Sendi skrif- stofa forseta þýskum fjölmiðlum yfirlýsingu þar sem segir að viðtalið við FT Deutschland hefði verið villandi. Íslendingar stæðu við alþjóðlegar skuldbindingar sínar. omfr@mbl.is „Einhver misskilningur í þessu“ Jóhanna Sigurðardóttir Ólafur Ragnar Grímsson Ummæli sem höfð voru eftir forsetanum í FT Deutschland ollu miklum titringi ÞINGMENN munu á næstunni kljást við tvö frumvörp um heimild til að nýta séreign- arsparnað vegna fjárhagserfiðleika. Árni M. Mathiesen, fyrrv. fjármálaráðherra, mælti í gær fyrir frumvarpi þingmanna Sjálfstæð- isflokks um millifærslu fjármuna úr séreign- arsparnaði til niðurgreiðslu skulda. Á næstu dögum er svo væntanlegt frumvarp Stein- gríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra um út- greiðslur séreignarsparnaðar. Steingrímur gagnrýndi frumvarp sjálfstæðismanna. Þýð- ingarlaust væri að leggja upp í vegferð sem leiddi til þess að sjóðirnir þyrftu að skipta sjóðunum upp í laust og bundið fé. Pétur H. Blöndal sagði ráðherra misskilja málið. Séreignarsparnaður og skuldir væru fastar í kerfinu. „Menn taka ákveðna fasta upphæð í kerfinu og flytja hana yfir í aðra fasta upphæð í kerfinu. Það verður engin breyting á sparnaði.“ Tvær ólíkar leiðir Árni M. Mathiesen. Millifærsla eða útborgun séreignar Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „MEÐ þessari samþykkt ríkisstjórn- arinnar tel ég að það séu mörkuð mikilvæg þáttaskil í endurreisn fjár- málakerfisins,“ segir Jóhanna Sig- urðardóttir forsætisráðherra en rík- isstjórnin hefur samþykkt að stofna eignaumsýslufélög sem hafi það hlutverk að yfirtaka eignir í bönkum, þar sem starfsemin er komin í þrot. Jóhanna sagði á fréttamannafundi í gær að þarna væri um að ræða „stærstu fyrirtæki“ sem gætu verið 15 til 20 talsins. Hugsanlega verði þetta gert í áföngum. „Markmiðið er að tryggja með þessu uppbyggingu atvinnustarfsemi, sem nauðsynleg er fyrir gangverk samfélagsins og forða því að verðmæti fari til spillis. Það kemur að sjálfsögðu ekki í veg fyrir að bankarnir sjálfir séu með sín eignaumsýslufélög en það yrði þá fyrir minni og meðalstór fyrirtæki. Fyrirtæki sem eru með miklar skuldir verða teknar út,“ segir Jó- hanna. Lögð verða fram tvö frumvörp á Alþingi um eignaumsýslufélögin og um slit á fjármálafyrirtækjum, sem felur í sér að eignir fyrirtækja geti verið lengur í gjaldþrotameðferð til að koma í veg fyrir að þær verði seld- ar á óhagstæðum kjörum. „Við mun- um setja fram raunhæfa tímaáætlun um endurfjármögnun bankanna, sem hefur að okkar viti tekið allt of langan tíma,“ sagði Jóhanna. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra leggur væntanlega fram á Alþingi í þessari viku frum- varp sem veitir sjóðfélögum lífeyr- issjóða heimild til að taka út hluta séreignarsparnaðar síns vegna fjár- hagsörðugleika. Ríkisstjórnin sam- þykkti frumvarpið í gær. Steingrím- ur greindi frá því að opnað yrði fyrir tiltekna möguleika á að taka út sér- eignarsparnað á ákveðnu tímabili en gert er ráð fyrir að lögin geti öðlast gildi 1. mars. Tímabilið sem um ræð- ir yrði þá til hausts árið 2010 en á þeim tíma geti menn sótt um að fá greiddan séreignarsparnaðinn sem dreift yrði með jöfnum greiðslum yf- ir eitt ár. 80-90 milljarðar af séreign- arsparnaði til útgreiðslu? Hann sagði mikilvægt að jafnræð- is yrði gætt þannig að þessar greiðslur yrðu ekki á kostnað þeirra sem geyma sitt fé áfram í sjóðunum. Ráðherrann segir að miðað við þær takmarkanir sem settar verða í lög, gæti hámarksupphæðin á þessu tímabili orðið 80-90 milljarðar. ,,Við gerum að sjálfsögðu aðeins ráð fyrir því að hluti af því verði tekinn út, bæði vegna þess að þetta er hagstætt sparnaðarform og vegna þess að menn þurfa að greiða skatt þegar út- greiðslur eiga sér stað […].“ Fjár- málaráðherra tók skýrt fram að sér- eignarsparnaður sem tekinn yrði út, væri ekki aðfararhæfur. Stórfyrirtæki með miklar skuldir í sérstakt félag Morgunblaðið/Kristinn Hugsi Jóhanna og Steingrímur á fréttamannafundinum í gær. Aðgerðir kynntar um endurreisn fjármálakerfisins Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is ÞAR SEM eftirlaunasjóður starfs- manna Glitnis er ekki lengur bak- tryggður hefur Fjármálaeftirlitið ákveðið að taka starfsleyfið af hon- um. Í lögum um lífeyrissjóði þurfa í það minnsta 800 að greiða í sjóði en einungis 600 greiða í þennan. Það var í lagi samkvæmt lögum á meðan sjóðurinn var baktryggður, segir Friðbert Traustason, framkvæmda- stjóri Samtaka starfsmanna fjár- málafyrirtækja. Bréf um leyfissvipt- inguna barst sjóðnum í janúarlok. Sjóðnum er nú gert að semja við annan lífeyrissjóð um að yfirtaka eftirlaunagreiðsl- urnar. „En með því er bakábyrgð- in farin.“ Þessir sex hundruð fyrrver- andi og núverandi starfsmenn Glitn- is eru meðal þeirra elstu innan fyrirtækisins. Efirlaun þeirra voru baktryggð sem þýðir að áunnin rétt- indi skertust ekki þó sjóðurinn næði ekki að ávaxta fé sitt fyrir skuldbind- ingunum. Bakábyrgð sjóðsins varð eftir í gamla Glitni við fall bankans. „Við berjumst í málinu með lög- manni okkar. Við viljum ekki una þessari niðurstöðu,“ segir Friðbert. Því stefni í málaferli. „Ég sé ekki annað í stöðunni. 600 eiga réttindin í sjóðnum. Þar af eru 250 nú þegar á eftirlaunum. Aðrir 200 eiga geymd réttindi og treystu á að sjóðurinn væri með bakábyrgð. Þessi hópur mun aldrei una því að við förum ekki alla leið með málið.“ Friðbert segir að hann trúi því ekki að óreyndu að ríkisbanki neiti starfsmönnunum um réttindi sín. Bankinn hafi staðið fullkomlega við bakábyrgðina í einkaeigu og það vel að þegar sjóðurinn var reiknaður út nú í október átti hann fyrir skuld- bindingum sínum. „Svo þegar ríkið yfirtekur starfsemina ætla þeir að brjóta samninga.“ Friðbert segir að þeir sem nú eru í starfi séu með grunnlífeyrishluta sinn í Lífeyrissjóði verslunarmanna þannig að þann hluta fái þeir sem eru 65 ára og eldri greiddan. „Þeir eiga því geymdu réttindin eftir hjá Glitni. Það má því segja að þeir séu í limbói.“ Líklegt sé að stjórnin verði að hlíta fyrirskipun fjármálaeftirlit- isins þó að hún fari í mál fyrir hvern einstakling eftir það. „Stjórn sjóðs- ins er því sett í mjög vonda stöðu.“ FME afturkallaði starfsleyfið Bakábyrgðin fallin og eftirlaunasjóður hjá Glitni verður því að sameinast öðrum Friðbert Traustason Orðrétt á Alþingi ’Mér finnst nær óskiljanlegt aðeinhver trúnaður þurfi að ríkja umþessar athugasemdir [Alþjóðagjald-eyrissjóðsins] og að Alþjóðagjaldeyr-issjóðurinn hafi eitthvað á móti því að þingið fái aðgang að þessum upplýs- ingum [...] BIRGIR ÁRMANNSSON ’Við munum svo sannarlegabeita okkur fyrir því, að afléttaþeim leyndarhjúp sem hefur umluk-ið stjórnarathafnir Sjálfstæð-isflokksins hér í 18 ár, innmúraðar og innvígðar. ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR. ’Það er gjörsamlega óásættanlegt,hæstvirtur forseti, að þingið sémeðhöndlað með þeim hætti af hálfuframkvæmdavaldsins að við fáum ekkiaðkomu eða aðgengi að mikilvægum trúnaðarskjölum. BIRKIR JÓN JÓNSSON. ’Á skömmum tíma hefur það gerstí íslensku samfélagi sem veldurþví að ekkert er eins og áður [...]. Þaðá líka við um ýmiss konar leynd eðatrúnað og samskipti af því tagi sem hér hafa verið á milli Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins þeirrar ágætu stofnunar og þings eða stjórnvalda [...] MÖRÐUR ÁRNASON ’Þegar þau gögn sem við höfumþegar í höndum eru lesin þávirðist vera óljóst hvort það var Al-þjóðagjaldeyrissjóðurinn sjálfur semhafði frumkvæði að því að koma á framfæri athugasemdum við forsæt- isráðuneytið útaf frumvarpinu eða hvort embættismenn í ráðuneytinu leituðu til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins [...]. SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON. ’Hvaða leynipukur er þetta eig-inlega? Hvað er það í þessu bréfisem menn telja hugsanlega að sé afþeim toga að það þurfi að sveipa þaðeinhverjum leyndarhjúp? EINAR K. GUÐFINNSSON. SAMÞYKKT var í ríkisstjórn í gær að ráðnir yrðu alþjóðlegir ráðgjafar. Eiga þeir að aðstoða ríkið í samningaviðræðum við skilanefndir gömlu bankanna vegna krafna um hlutdeild í eignum og verðmætum sem flutt hafa verið úr gömlu bönk- unum til þeirra nýju. ,,Kröfuhaf- ar eru með mjög sterka aðila sem semja fyrir þá og ríkið þarf að koma mjög sterkt inn í þá mynd,“ segir forsætisráðherra. Ráðgjafar aðstoði NÝ Nautastöð Bændasamtaka Ís- lands var vígð í gær að Hesti í Borg- arfirði. Margt góðra gesta var við- statt. Þeim bauðst um leið að kynna sér byggingarferil stöðvarinnar og starfsemi hennar en megintilgang- urinn er kynbótastarf í íslenskri nautgriparækt. Gamla Nautastöðin á Hvanneyri var byggð árið 1960 og Nautaupp- eldisstöð í Þorleifskoti í Flóa byggð árið 1977. Nýja stöðin á Hesti mun taka við hlutverki þeirra beggja en nautin verða flutt frá gömlu Nauta- stöðinni á Hvanneyri eftir nokkrar vikur og kálfar frá Þorleifskoti á sama tíma. Í tilkynningu um vígsl- una segir m.a. að nýja stöðin muni gjörbæta aðstöðu í nautgriparækt. Ný nauta- stöð á Hesti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.