Morgunblaðið - 11.02.2009, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.02.2009, Blaðsíða 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 Forval VG í Suðurkjördæmi Vinstrihreyfingin grænt framboð í Suðurkjördæmi auglýsir hér með eftir fólki sem vill bjóða sig fram í eitt af 5 efstu sætum á lista VG í Suðurkjördæmi í kosningum til Alþingis 25. apríl 2009. Framboðsfrestur rennur út kl 17:00 föstudaginn 19. febrúar. Þeir sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til formanns kjörstjórnar Kjartans Ágústssonar, Löngumýri, Skeiðum, 801 Selfoss eða í tölvupósti langamyri@uppsveitir.is og taka fram eftir hvaða sæti eða sætum þeir sækjast. Þeir sem vilja stinga upp á frambjóðendum skulu einnig gera það skriflega til formanns kjörstjórnar fyrir 16. febrúar. Kjörstjórn mun þá leita eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á. Allir þeir sem hafa áhuga á því að koma hugsjónum VG um kvenfrelsi, félagslegan jöfnuð, umhverfisvernd og friðarstefnu í framkvæmd eru hvattir til að gefa kost á sér. Kosningarétt hafa allir félagsmenn í VG í Suðurkjördæmi miðað við 19. febrúar 2009. Kosið verður póstkosningu og skulu atkvæðaseðlar hafa verið póstlagðir eigi seinna en miðvikudag 25. febrúar. Kjördæmisráð Suðurkjördæmis mun annast kynningu á frambjóðendum með sérstöku kynningarefni og standa fyrir fundum dagana 21. til 24. febrúar. Stjórn kjördæmisráðs Vg í Suðurkjördæmi MIKLAR breytingar hafa orðið á útgerðarháttum í Vestmannaeyjum á síðustu áratugum. Má þar nefna að nú rær að- eins einn bátur með net frá Eyjum, Glófaxi, en tveir aðrir bætast vænt- anlega við á næstunni. Gló- faxi er rúmlega 200 tonn að stærð og hefur frá því að hann byrjaði á netum fyrir viku fengið um 100 tonn, mest ufsa. Ólafur Jakobsson skipstjóri á Glófaxa, segir vertíðina hafa byrj- að vel. Þeir voru í gær að veiðum út af Vík í Mýrdal. Yfirleitt er landað annan hvern dag á markað í Eyjum. Þeir leggja 7-10 trossur daglega og eru ellefu um borð. Ólafur segir verð á ufsa vera vel viðunandi. Hann sagðist ekki kunna að skýra hvers vegna svo fáir væru á netum, en margir á trolli. Sjálfur sagðist hann kunna vel við netin, en allt hefði þetta sína kosti. Mann fram af manni Benóný Benónýsson gerir út Portlandið VE ásamt sonum sín- um. Benóný er sonur aflakóngsins Benónýs Friðrikssonar, Binna í Gröf. Hann var sonur Friðriks Benónýssonar sem átti bát með Portlands-nafninu og þangað er nafnið á bátinn sótt. Segja má að sjómennskan sé fjölskyldunni í blóð borin því tveir synir Benónýs eru á Portlandinu, Jóhann skipstjóri og Benóný vél- stjóri. Benóný eldri sagði í gær að margt hefði breyst í Eyjum frá því að hann var að alast upp. „Sem strákur fór ég oft niður á bryggju til að taka á móti pabba á Gull- borginni. Þá voru kannski yfir 100 bátar á línu og svo netum og þá var slegist um löndunarplássin fyr- ir netabátana,“ segir Benóný. Þá var slegist um plássin fyrir netabátana ALLS voru 336 skip á sjó eftir hádegi í gær samkvæmt eftirlitskerfum stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar og Vaktstöðvar siglinga. Skipunum fjölgaði um 100 frá því snemma í gærmorgun og fram undir hádegi. Það segir að mörg smærri skip og bátar sem stunda dagróðra fóru á sjó í blíðviðrinu. Algengt var að um 200 skip væru á sjó í jan- úarmánuði en þeim hefur fjölgað um eða yfir 100 á dag það sem af er þessum mánuði. Á góðum sumardegi geta verið allt að 800 skip og bátar í eftirliti en algeng sumarsjósókn er 400-500 skip og bátar á sólahring. Úr þessu dregur yfir aðalvetrarmánuðina. Samkvæmt upplýsingum frá Ásgrími L. Ásgrímssyni hjá Landhelgisgæslunni, yfirmanni Vaktstöðvar sigl- inga, er fylgst með öllum skipategundum; m.a. fiski- skipum, flutningaskipum og olíuskipum. Bæði er þetta gert í öryggisskyni en einnig til að fylgjast með því að lögum og reglum sé fylgt á hafinu umhverfis Ísland.        78 8 8# 8 8 85 8 8 !                                     !"" #$$%   &$' ( %   " $" "$   ) $ "$   &"  & * +,  &%&%"  % %   $* *  "$  $% %   "     * -.   &% & "   (  "  . $ "%   &$ %  $$ ""%   &%  ,&$,"  " $* 336 skip voru á sjó í blíðunni Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is „ÞAÐ gengur bara alveg ljómandi, þakka þér fyrir, það er myljandi fiskur um allt,“ sagði Óskar Jens- son, skipstjóri á Aski GK, 30 tonna báti frá Grinda- vík í samtali eftir hádegið í gær. Þeir voru þá að draga fimmtu og síðustu trossuna á Víkunum aust- an við Reykjanesvitann og áætluðu að vera í Grindavík um fjögureytið. Aflinn var um sjö tonn af slægðum þorski. Í samtölum við skipstjóra í Breiðafirði, við Reykjanes og Vestmannaeyjar í gær var oft sömu svör að fá. Afli er góður eða þokkalegur, en verð fyrir þorsk þyrfti að vera mun hærra. Yfir 300 skip af öllum stærðum og gerðum voru á sjó í gær. Sá fjöldi hefði hæglega getað verið meiri því margir sem eru kvótalausir eða kvótalitlir bíða eftir að þorskverð hækki á mörkuðum eða verð á leigukvóta lækki. Náðu 22 róðrum í janúar Óskar á Aski sagði að vel hefði gengið frá því þeir byrjuðu að róa eftir áramót. „Við höfum róið alla daga frá áramótum og náðum 22 róðrum í janúar,“ segir Óskar. „Við erum komnir með rúm 100 tonn miðað við slægt og fækkuðum netum til að hafa vel við og geta slægt um borð. Við leggjum aftur í dag, en sennilega verður upp- tekt á morgun vegna brælu. Þá kannski vantar ein- hvern fisk og verðið hækkar, ekki veitir af. Mér finnst það óvenjulegt að í endaðan janúar skuli hafa vera komið mokfiskirí. Svona róðrar hafa yfirleitt ekki komið fyrr en í byrjun marz. Mér heyrist á mönnum að það sé alls staðar þorskur,“ segir Óskar Jensson. Það var rólegra hjá Grétari Þorgeirssyni og þeim á Farsæli GK. Þeir eru á dragnót og voru í gærdag. „Ef fram heldur sem horfir þá skrapar maður kannski í þrjú tonn af alls konar fiski. Annars var ágætt fiskirí í janúar, þó það virðist eitthvað vera að þorna upp á dragnótinni. Það er helst verðið sem er að angra okkur. Þeir bölva mikið sem eru á net- unum því þeir fá allt of mikið af þorski,“ sagði Grét- ar. Haukabergið frá Grundarfirði er á netum í Breiðafirði og sagði Gunnar Hjálmarsson skipstjóri að þetta hefði „verið svona nudd og allt svipað og síðustu ár“. Hann sagði að tíðin hefði verið einstök, logn og sólskin dag eftir dag og það á miðjum þorra. Fáir á netum í Breiðafirði „Það hefur verið blíða í meira en hálfan mánuð og það verður svona í að minnsta kosti einn dag enn. Það má eiginlega segja að það sé of gott veður því verðið er skárra þegar það eru brælur, en það verð- ur aldrei á allt kosið,“ sagði Gunnar. Hann sagði að fáir væru á netum í Breiðafirð- inum, sennilega væri hægt að telja þá á fingrum annarrar handar. Afli Haukabergsins hefði yfirleitt verið um 3-500 kíló í trossu frá áramótum. Þeir eru með 7-8 trossur og fer aflinn allur til vinnslu í Grundarfirði. „Myljandi fiskur um allt“  Margir doka við vegna lágs þorskverðs  Verðið skárra þegar það eru brælur  Svipað nudd í Breiðafirðinum og undanfarin ár  Einstök tíð á miðjum þorra Morgunblaðið/RAX Landað í Grindavík Margir voru á sjó í gær og afli ágætur. Skipstjórinn á Aski segir ekki algengt að fá svo góðan afla fyrri hluta febrúar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.