Morgunblaðið - 11.02.2009, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 11.02.2009, Blaðsíða 43
Menning 43 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Ég las texta sem var umþað hvernig hægt væriað gera vilja guðs.Texta sem ég fann á netinu … Ég bjó til einskonar vinnuferli fyrir gerð þessa verks og ég hafði enga hugmynd um hvað yrði. Ég held ég hafi tekið inn í um tíu daga, var opinn fyrir einhverju sem höfðaði til mín að taka mynd af, skissa, kaupa eða gera eitthvað og svo eftir þann tíma var ég kominn með safn af leiðum og útgangspunktum. Út frá þessu kom fram þetta tæki til að kalla fram ásýnd guðs.“ Þarna er myndlistarmaðurinn Steingrímur Eyfjörð að tala um margbrotið verk sitt, Ásýnd Guðs, í viðtali í skrá sem fylgir sýningunni Við erum hinir / hinir erum við, sem stendur yfir í Gall- erí 100º. Tækið sem hann talar um er stigi með 77 rimum, sem mjókkar upp, og er hluti af verk- inu. Steingrímur segir aðalverkið vera það sem fólk gerir sjálft, viðbrögð sýningargesta, teikning- arnar og málverkin séu „afgang- ur sem leiðir af þessum turni“. Ásýnd Guðs er eitt þriggjaverka á sýningunni og þóttgott pláss sé gefið undir viðbrögð gesta, sem eru eins og nokkuð hófstillt gestabók, sverja vegghlutar verksins sig svo sann- arlega inn í kunnuglegan mynd- MYNDVERKIÐ Ordrur frá Gretti sterka heim Steingríms. Listamaðurinn var fulltrúi okkar á síðasta Fen- eyjatvíæringi og virðist vera í hamnum þessi misserin og skap- ar afar forvitnileg verk; þessa dagana má líka sjá óvenjulega sýningu á skissum hans og teikn- ingum í Gallerí Ágúst. Í tíu daga segist Steingrímur hafa verið opinn fyrir „einhverju“ sem höfðaði til sín, að „gera eitt- hvað“. Og þetta „eitthvað“ sem birtist í verkinu er forvitnilegt. Vekur spurningar og skemmtir sýningargestum um leið. Eins og fyrri daginn eru verk Steingríms mjög persónuleg í formgerðinni – með skrafli, rissi, klippimyndum, límböndum, maleríi og textum – og hægt að njóta þeirra út frá hreinu formrænu sjónarhorni, en það bætir óskaplega miklu við að leggjast í heim verkanna. Þetta verk snýst að vissuleyti um fyrirmælin semSteingrímur er að leika sér með. Og þau eru forvitnileg, furðuleg, ólíkindaleg, og bráð- fyndin. Á einni teikningunni eru Oprah Winfrey og Magnús Sig- urðsson, á annarri er heimspek- ingurinn „Zizek að tala um vir- túalið“, svo er ein með röð kyrramynda úr sjónvarpsóper- unni Vikivaka. Það tengist síðan verkunum á álplötunum, þar sem eru „ordrur“, sem listamaðurinn fær frá Hrafni Gunnlaugssyni, Sveini Einarssyni, Gretti Ás- mundarsyni og Alexöndru David Neal. „Ordrurnar“ hverfast á einn eða annan hátt um aðra þætti verksins, sem allt reyrist saman á þéttan, en þó absúrd hátt, í myndunum og textunum. Í þessu verki hér tala menn- ingarheimar og áhrifamenn í menningunni saman. Fyrir miðju er þrútið höfuð Grettis sterka Ásmundssonar, og eins og fram kemur efst gefur hann fyr- irmælin. Í talblöðru í anda teikni- mynda, sem er miðill sem Stein- grímur hefur ætíð unnið með, er birtist vinstra megin segir: „Láttu skera út stjörnu með gati (þá kemur mynd af stjörnu) merkt Thór og Atli. Stórstjörnur við háborð menningarinnar.“ Í talblöðru frá munni Grettis til hægri segir: „Það vantar Thór. Vilhjálmsson. Hvað heitir hann aftur? Tónskáldið. Já! Atli Heim- ir.“ Fyrir ofan höfuð Grettis sem mælir má síðan sjá gula stjörnu með ásjónu Atla Heimis Sveins- sonar í miðjunni, og í annarri stjörnu fyrir neðan höfuð Grettis er teiknuð mynd af Thor Vil- hjálmssyni. Þessar tvær gulu stjörnur birt- ast aftur svífandi fyrir framan verkið í álplötunni, en þær hafa verið skornar út úr plexígleri og límdar saman, með hringlaga gati í miðjunni. Gegnum gatið má skoða verkið, en það má einnig skoða stjörnuna sem enn einn þáttinn í heildarverkinu. Og hvað á þetta allt svo aðmerkja? Gaman væri aðgeta svarað því á einfaldan hátt – en list Steingríms Eyfjörð býður ekki upp á einföld svör eða lausnir. Sem betur fer. Hún er margbrotin og persónuleg, flókin og heimspekileg, írónísk og á stundum hreinlega spreng- hlægileg. Í það minnsta skellti ég oft upp úr í heimsóknum mínum á þessa sýningu, og naut þess jafn- framt að reyna að koma mér inn í hugmyndaheiminn sem birtist í verkunum – þótt ég hafi ekki fundið nema nokkra af þeim lykl- um sem vantar. Fyrir vikið er túlkunin brotakennd og persónu- leg, en sjón sögu ríkari. Myndverkið er hluti umfangsmikils verks Steingríms Eyfjörð, Ásýnd Guðs, frá 2008, sem er um þessar mundir sýnt í Gallerí 100º, sýningarsal Orkuveit- unnar á Bæjarhálsi 1. Ásýnd Guðs var sett saman fyrir og sett upp í Listasafninu á Akureyri í fyrra, á sýningunni Orð Guðs, í sýningarstjórn Þóru Þórisdóttur. Verkið samanstendur m.a. af 77 rima stiga í kassa á hjólum, stól sem gestir eiga að sitja í og yfir honum hangir vatnsfata, borði með blöðum sem gestir geta tjáð sig á og veggpláss fyrir myndir og hugleiðingar gesta; þá eru á veggjum teikningar rammaðar inn í plexígler og álplötur með textum, ljós- myndum, teikningum og máluðum myndum eftir Steingrím. Allt snýst það um hugmyndina um að „gera vilja guðs“ og fara eftir fyrirmælum. Sá hluti verksins sem hér er fjallað um er texti og málaðar myndir á álplötu, og fyrir framan plötuna hangir í vír appelsínugul stjarna úr plexígleri. Úr Ásýnd Guðs Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is ÁHUGAMENN um krossgátuna fá sjaldgæfan glaðning á morgun þegar kerfisfræðingurinn Ásdís Bergþórsdóttir heldur fyrirlestur um forsögu hennar og tengsl við tilurð og þróun stafrófsins. Fyr- irlesturinn fer fram í Sögufélag- inu við Fischersund þar sem áhugamenn krossgátunnar hittust í fyrra á svokölluðum kross- gátukvöldum. „Krossgátan á sér frekar stutta sögu en það vantar mikið af rann- sóknum um hvernig menn hafa leikið sér með ritað mál í gegnum tíðina,“ segir Ásdís. „Krossgátan byggist á þeirri hefð að leika sér með ritað mál en þetta hefur ekki verið nægilega rannsakað, þó svo að eitthvað sé vitað.“ Fjallað verður um þróun kross- gátna og þá útlitsbreytingu sem gerð var á krossgátuforminu til að þyngja þær og þá breytingu er hefur orðið á gerð vísbendinga. Orðaleikir í frumkristni Krossgátan barst hingað til Ís- lands frá Danmörku þá í banda- rísku krossgátuformi en fjallað verður um hvernig regluleiki ís- lenskra orða skapaði að lokum mikinn vanda fyrir íslenska kross- gátuhöfunda. Þó svo að krossgátan sjálf sé ekki ýkja gömul má rekja forsögu hennar aftur til frum- kristni en Ásdís segir sérfræðinga eiga erfitt með að greina hvenær fólk hóf að leika sér með ritað mál. „Það fylgja kristninni ýmsir orðaleikir á rituðu máli. Fisk- táknmynd Krists er sú sem er best þekkt.“ Ásdís segir sagnfræðinga deila um hvort þessir orðaleikir hafi verið leið kristinna manna til þess að forðast ofsóknir með því að dul- kóða skrif sín. Krossgátur fara inn á vítt svið og segir Ásdís því auðvelt að gera þær að umtalsefni. „Ég ætla þó að afmarka mig. Ég ætla í almennan sögulegan hluta en ekki í sérhæfða sögu kryptísku krossgátunnar, heldur sögu hennar almennt. Það verður þó einhver sérhæfing.“ Fyrirlesturinn hefst klukkan 20 en ekki hefur verið ákveðið hversu lengi hann stendur. „Ég tala bara þar til ég hef ekkert meira að segja, geri ég ráð fyrir,“ segir Ás- dís sposk að lokum. Krossgátan rannsökuð Fyrirlestur um krossgátugerð hjá Félagi ís- lenskra fræða Morgunblaðið/Kristinn Ásdís Bergþórsdóttir Kerfisfræðingur með áhuga á krossgátum. GAMAN er að segja frá því að at- hyglisverðasta verkið á tónleikum í Salnum á sunnudaginn var einnig það nýjasta. Þetta var Calculus 2 fyrir flautu og píanó eftir Kjartan Ólafsson. Kjartan hefur hér fundið sér efni- við í gömlum klisjum, sem oft skjóta upp kollinum í kvikmynda- tónlist. Þarna mátti heyra hæg- ferðuga píanóhljóma í Satie-stíl, Debussykenndar tónahendingar og íhugul stefbrot skreytt ótal þögnum, rétt eins og mörg tónverk fyrir tveimur áratugum eða svo. Kjartan náði að skapa sannfærandi heild úr þessum ólíku þáttum. Sú framvinda sem varð til úr kunn- uglegum minnum var einmitt ekki klisjukennd, heldur þvert á móti innblásin. Útkoman var nokkurs konar næturljóð, noktúrna sem kom stöðugt á óvart og var afar ljúf áheyrnar. Annað gott verk á tónleikunum var Krummavísa fyrir einleiks- flautu eftir Mist Þorkelsdóttur. Hún einkenndist af hugvits- samlegum spuna út frá einföldu þjóðlagi. Spuninn var notalega af- slappaður en samt skemmtilega lit- ríkur og valsinn í lokin var hrein snilld! Hin verkin á tónleikunum voru upp og ofan. Þar sem þau hafa áð- ur verið flutt er óþarfi að fjalla um þau sérstaklega hér. Þó verður að segjast að takmörkuð endur- ómunin í Salnum lék sumar tón- smíðarnar grátt. Martial Nardeau flautuleikari spilaði vissulega frá- bærlega vel, en hann var í aðal- hlutverkinu á tónleikunum. Sömu sögu er að segja um Guðrúnu Birg- isdóttur flautuleikara og Snorra S. Birgisson tónskáld og píanóleikara. Frammistaða þeirra breytti engu um að flestar tónsmíðarnar, sér- staklega samleiksverkin, hefðu þurft meiri glans sem aðeins rétti hljómburðurinn getur skapað. Hlið við Hlið eftir Snorra fyrir tvær flautur var t.d. óttalega þurrt og kom mun verr út en á nýlegum geisladiski með sömu flytjendum. Endurómunin var ekki nægileg, sem gerði að verkum að dulúðin í tónlistinni náði ekki inn í túlk- unina. Það var enga þrívídd að finna, enga dýpt, ekkert undir yf- irborðinu. Svipaða sögu er að segja um Afagull eftir Mist, einnig fyrir tvær flautur. Salurinn í Kópavogi er á margan hátt gallað tónleika- hús og sumt hljómar þar ekki vel. Greinilegt er að flautudúettar eru þar á meðal. Innblásið næturljóð Salurinn í Kópavogi Myrkir músíkdagar Kammertónleikar bmnn Mist Þorkelsdóttir: Krummavísa, Afa- gull; Snorri Sigfús Birgisson: Partíta, Hlið við hlið; Kjartan Ólafsson: Calcu- lus, Calculus 2 (frumfl.); Klaus Ager: Zweite Elegie. Flytjendur: Martial Nar- deau, Guðrún Birgisdóttir og Snorri S. Birgisson. Sunnudagur 8. febrúar. JÓNAS SEN TÓNLIST

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.