Morgunblaðið - 11.02.2009, Side 27

Morgunblaðið - 11.02.2009, Side 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 Hulda var besti vin- ur minn. Vinátta okkar hefur staðið í yfir 20 ár. Mig langar að skrifa nokkrar línur til að minnast hennar. Við Hulda áttum góðar stundir saman. Ég kíkti oft í kaffibolla til hennar og hún hringdi í mig. Við töl- uðum um daginn og veginn. Fyrir nokkrum árum, þegar hún greindist með krabbameinið, kom í ljós hversu sterk hún var. Hún kvartaði aldrei og brosti alltaf. Eitt sinn þegar hún var nýkomin úr aðgerð og var að jafna sig hringdi hún í mig og vildi fá mig í heimsókn. Ég kom að sjálfsögðu. Hún var hress og brosmild og við áttum fjögurra klukkustunda gott spjall. Ég sagði við hana að ég hefði áhyggjur af því að ég væri búinn að vera of lengi hjá henni en hún svaraði nei það er gott að hafa þig hérna. Mér þótti vænt um að heyra það. Fyrir einu og hálfu ári bauð ég Huldu og Sigrúnu í óvissuferð. Þær héldu að ég myndi keyra þær á Stokkseyri á humarhátíð en ég svar- aði „nei hvaða vitleysa“. Við fórum hina leiðina. Ég bauð þeim út að borða á Hótel Valhöll. Veðrið var ynd- islegt og sólsetrið ógleymanlegt á heimleiðinni. Ég er þakklátur fyrir að hafa farið með Huldu í þetta ferðalag. Þetta er mikilvæg minning fyrir mig. Vinátta okkar var ekki lítil, hún var mikil, mjög mikil. Missirinn er því stór. Það verður að erfitt að halda áfram án Huldu. Ég mun hugsa til hennar á hverjum degi. Ég sendi innilegar samúðarkveðjur til Kidda, Brynju og Ívars. Einnig sendi ég kveðju til foreldra hennar, Ívars og Sigrúnar, og bræðra hennar, Lárusar og Einars. Ólafur Karl Siggeirsson. Í dag kveðjum við starfsfólk Keldna kæran starfsfélaga og vin- konu, Huldu Lilju Ívarsdóttur. Hulda okkar náði ekki háum aldri, hún var nýorðin 36 ára er hún lést. Eftir sitjum við með spurn í huga og skiljum ekki tilgang eða sanngirni lífsins þegar ung, hraust og yndisleg ung kona, sem að öllu jöfnu ætti að eiga allt lífið framundan, veikist og er horfin fjölskyldu sinni og vinum eftir erfiða baráttu. Hulda var ung að árum er hún hóf fyrst störf á Keldum en hún var fljót að ávinna sér vináttu starfsmanna. Hulda bjó nefnilega yfir sérstökum eiginleikum. Hún var einstaklega ein- læg og vingjarnleg, dugleg og ósér- hlífin, heiðarleg og hreinskilin og hafði sérstakt lag á að koma öllum í gott skap með umhyggju sinni og glaðværð. Í mörg ár var Hulda í stjórn starfs- mannafélags Keldna og þar komu eiginleikar hennar vel í ljós. Alltaf var hún boðin og búin til að vinna fyrir samstarfsfólk sitt og sparaði þar ekki sporin. Hulda hætti um tíma að vinna á Keldum eftir að hún eignaðist annað barn sitt en okkur til mikillar gleði hóf hún störf þar aftur og vann þar til hún veiktist. Það er mikil eftirsjá í Huldu og er hugur okkar hjá fjölskyldu hennar sem missir svo mikið. Megi minning Huldu lýsa ykkur leiðina og vera ykk- ur styrkur gegnum lífið. Í haust bárust okkur þær gleði- fregnir að Hulda og Kiddi ætluðu að ganga í hjónaband og héldu þau veg- legt brúðkaup. Skömmu síðar kom Hulda til okkar á Keldum með ljós- myndir af þeim brúðhjónunum og börnum þeirra, þar mátti líta ákaflega fagra brúði og samglöddumst við þeim af öllu hjarta. Þannig viljum við minnast Huldu okkar. Einnig vildi Hulda af rausn sinni ekki láta okkur á Keldum fara alveg á mis við herleg- Hulda Lilja Ívarsdóttir ✝ Hulda Lilja Ívars-dóttir fæddist í Reykjavík 6. janúar 1973. Hún andaðist á kvennadeild Land- spítalans 14. janúar síðastliðinn og fór út- för hennar fram frá Bústaðakirkju 23. janúar. heitin og komu þau Hulda og Kiddi með mikil veisluföng til að halda okkur starfs- mönnum Keldna veislu. En eigi má sköpum renna og dag- ar Huldu hér á jörðu taldir en hún skilur eft- ir sig ótal góðar minn- ingar sem ylja má sér við þegar sorgin knýr dyra. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir, sem ung á morgni lífsins staðar nemur, og eilíflega, óháð því, sem kemur, í æsku sinnar tignu fegurð lifir? Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki um lífsins perlu í gullnu augnabliki – (Tómas Guðmundsson) Megi allir góðir englar vaka yfir Huldu, fölskyldu hennar og öllum sem sárt sakna. Kristín. Ég kynntist Huldu fyrir rúmum sex árum þegar Viktor Snær sonur minn byrjaði í leikskólanum Kátakoti en vikuna áður hafði Hulda staðið í sömu sporum með Ívari Orra að venj- ast nýju umhverfi og aðstæðum á leikskólanum. Strax á fyrsta degi náðu þeir jafnaldrar mjög vel saman og hafa síðan þá verið góðir vinir. Í fyrstu buðum við Hulda hvor annarri glaðlega góðan daginn en það leið ekki á löngu þar til vinskapur mynd- aðist á milli okkar og við vorum farn- ar að spjalla um daginn og veginn úti á róló meðan strákarnir léku sér í sandkassanum. Hulda var ein af þessum manneskj- um sem mjög auðvelt var að tala við og það stafaði af henni mikil hlýja, einlægni og umhyggjusemi. Aldrei sá Hulda ástæðu til að tala illa um aðra og jafnvel í gegnum þessi erfiðu veik- indi tókst henni að sjá björtu hliðarn- ar á lífinu og öllum í kringum sig enda hafði hún þann einstaka hæfileika að láta öllum líða vel í návist sinni. Hulda var hæg og róleg og fannst gott að vera heima, á fallega heimilinu sínu. Hún var jafnframt mikil félagsvera og fannst gaman að fá gesti í kaffi eða tesopa úti á pall og áður en maður vissi af hafði tíminn flogið í burtu á meðan börnin ærsluðust í garðinum. Veikindin hafa sett sitt mark á fjöl- skylduna undanfarin ár og er aðdáun- arvert hvernig þau tókust á við þessa erfiðu raun. Hulda gat rætt um sín veikindi af einlægni ef henni fannst hún þurfa þess án þess þó að hún leyfði þeim að verða að aðalumræðu- efninu enda var iðulega margt annað skemmtilegra hægt að spjalla um. Við þökkum fyrir þann tíma sem við fengum að kynnast Huldu og með söknuði kveðjum við hana nú. Elsku Kiddi, Brynja og Ívar Orri megi guð styrkja ykkur og styðja á þessum erf- iðu tímum. Ykkar vinir, Dröfn, Guðleifur, Viktor Snær og Birna Rún. Tárin laumast eitt og eitt en geta því liðna ekki breytt, því það sem góður Guð vill taka fáum við aldrei aftur til baka Kaldur og dimmur dagurinn er rétt eins og tilfinningin inni í mér, óstjórnleg er sorgin mín ég á eftir að sakna þín. (Höf. ók.) Þung eru sporin sem við göngum núna, það er erfitt að trúa því að þú sért farin frá okkur kæra vina, við átt- um svo mikið í þér, þú gafst okkur mikla gleði, knús og kossa og við þökkum guði fyrir allar stundirnar og árin sem við fengum að hafa þig hjá okkur. Þú kenndir okkur svo margt, varst gleðigjafi öllum sem kynntust þér, varst alltaf jafn hress þótt þú værir orðin veik. Þú varst búin að berjast svo lengi, elsku Hulda okkar. Þú varst ekki gömul þegar við fengum að passa þig, aðeins sex mán- aða, meðan mamma þín og pabbi voru að vinna. Þá var Sigrún mín þriggja mánaða, það var stutt á milli ykkar, en þetta var ekkert mál vegna þess að þú varst svo róleg ef það var nóg af leikföngum í kringum þig. Svo liðu árin, þú varðst unglingur og glæsileg ung kona með öllum þeim væntingum sem fylgir. Svo kom ástin inn í líf þitt, Kiddi var kominn, og svo komu börnin, Brynja Rut og Ívar Orri. Svo tókuð þið ákvörðun um að gifta ykkur hinn 20. september sl. og sá dagur er okkur öllum ógleyman- legur. Þið svo hamingjusöm, mikill söngur og gleði og það komu okkar bestu söngvarar til að syngja. Svo þegar pabbi þinn kom með Rúnar Júl- íusson og hann tók lagið Þú ein, þá komu tár vegna þess að þú varst svo einstök perla. Við biðjum góðan Guð að styrkja Kidda, Brynju Rut, Ívar Orra, Sig- rúnu, Ívar, Lárus og Einar, missir ykkar er mikill en minning um góða eiginkonu, móður, dóttur og systur lifir með okkur öllum. Minning þín lifir. Emilía og Karl. Stórt skarð hefur verið höggvið í fjölskylduna. Í dag kveðjum við okkar góðu vinkonu, Huldu Lilju, sem við söknum mikið. Það rifjast upp fyrir okkur margar ógleymanlegar stundir sem við áttum saman, svo sem brúð- kaupið þitt í september síðastliðnum, skemmtilegar stundir á Kaffi Flóru í Grasagarðinnum, matarboðin og ekki má gleyma stelpuferðinni til Banda- ríkjanna haustið 2007, þú stóðst þig eins og hetja í þeirri ferð. Elsku Hulda, alltaf jafn ljúf og kurteis og gafst af þér endalausa hlýju til allra sem í kringum þig voru. Hetjubarátta þín síðustu mánuði og dugnaður er öllum hvatning, aldrei kvartað, bara brosað í gegnum tárin. Ég veit að það verður tekið vel á móti þér í húsi Drottins með sömu hlýju og þú sýndir okkur öllum. Elsku Hulda, takk fyrir allt, þú verður alltaf í hjarta okkar. Elsku Kiddi, Brynja Rut og Ívar Orri, innilegar samúðarkveðjur. Megi guð styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Reynir, Magnea, Halla, Magnús, Elva og Íris. Undir háu hamrabelti höfði drúpir lítil rós. Þráir lífsins vængja víddir vorsins yl og sólarljós. (Guðmundur G. Halldórsson) Elsku Hulda Lilja. Þá er komið að leiðarlokum hjá þér eftir erfiða baráttu við þennan skelfi- lega sjúkdóm sem krabbameinið er. Lengi bar maður þá von í brjósti að eitthvað væri hægt að gera, en nú á síðustu vordögum sá maður hvert stefndi og enga lækningu væri að fá. Ætli það séu ekki um það bil 11 ár frá okkar fyrstu kynnum þegar þú komst fyrst að Keldum og fórst að vinna á skrifstofunni og kom þá stax í ljós hversu heilsteypt og góð mann- eskja þú varst. Svo eftir að þú áttir Ívar Orra þá stóð þannig á hjá okkur á bóluefna- deild að það vantaði þangað starfs- kraft. Það var auglýst eftir fólki en einhverra hluta vegna leist mér ekki á hvað kom út úr því svo ég fékk leyfi hjá Eggerti Gunnarssyni til að hringja í þig og falast eftir þér í deild- ina okkar. Þú tókst þér mjög stuttan umhugsunarfrest og sagðir já mér til mikillar ánægju og áttum við eftir það mjög skemmtilegan tíma næstu árin og alveg fram á síðasta dag hjá þér. Það á eftir að ylja manni um hjarta um ókomin ár hversu glatt var á hjalla hjá okkur og húmorinn alveg frábær. Eftir að við létum báðar af störfum ákváðum við að hittast ekki minna en einu sinni í mánuði og varð það að vana hjá okkur og Lindu vinkonu okkar að fá okkur kaffisopa á Cafe Mílanó. Núna síðast hittumst við rétt fyrir jólin og er ég þakklát fyrir það. Vil ég nú að leiðarlokum þakka þér fyrir samfylgdina, vináttuna og traustið sem aldrei bar skugga á. Votta ég Kidda þínum, Brynju, Ív- ari Orra, foreldrum, bræðrum og öðr- um aðstandendum mína dýpstu sam- úð, megi guð styrkja ykkur í þessari miklu raun. Hvíl í friði kæra vinkona. María Gunnarsdóttir. Elsku Hulda Lilja, okkur langar til að kveðja þig með þessum sálmi. Guð leiði þig, en líkni mér, sem lengur má ei fylgja þér. En eg vil fá þér englavörð, míns innsta hjarta bænagjörð: Guð leiði þig. Guð verndi þig. En vak og bið og varðveit, barn, þinn sálarfrið. Á herrans traustu hönd þig fel. Ef hann er með, þá farnast vel. Guð leiði þig. (Matthías Jochumsson) Kveðja, Bettý, Viðar og Guðmundur. Elsku hjartans Hulda, nú er komin kveðjustund. Stund sem kom allt of fljótt, þú rétt orðin þrjátíu og sex ára gömul og lífið nánast rétt að byrja. Hrifin burt frá eiginmanni og ungum börnum, eftir hetjulega baráttu. Bar- áttu sem þú háðir af miklum dugnaði með hjálp ástvina þinna. En allar ljúfu minningarnar um þig munu lifa í hjörtum okkar um ókomna tíð. Við andlátsfregn þína allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn tjáð var í bænunum mínum, en guð vildi fá þig og hafa með englunum sínum. Þó sorgin sé sár og erfitt sé við hana að una, við verðum að skilja og alltaf við verðum að muna, að guð, hann er góður og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért og horfin burt þessum heimi. Ég minningu þína þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína ég bið síðan guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Jónsdóttir) Kæra fjölskylda, megi Guð styrkja ykkur á þessari sorgarstundu. Ragnar, Ásta og börn. Elskuleg vinkona mín, Hulda Lilja, hefur nú kvatt okkur eftir langa og hetjulega baráttu við krabbamein. Allt of snemma og allt of ung. En það er huggun að vita að nú er hún á góð- um stað þar sem ég veit að vel verður tekið á móti henni. Þar mun hún vaka yfir elsku börnunum sínum og eigin- manni. Börnum og eiginmanni sem bera þunga sorg en hafa þó sýnt svo ótrúlegan styrk á erfiðum tímum. Hulda var einstök ung kona sem ég var svo heppin að fá að kynnast. Leið- ir okkar Huldu lágu saman í gegnum leik og starf í litla hverfinu okkar og urðum við fljótt góðar vinkonur. Það var alltaf gott að tala við Huldu og hún var jákvæður og skemmtilegur félagi. Ég hefði viljað að þær stundir hefðu verið svo miklu fleiri. Ég mun svo sannarlega sakna þeirra. Hulda gaf mikið af sér og átti marga góða vini sem hún talaði oft um og þó ég hafi ekki kynnst þeim öllum þá var gaman að heyra hana tala svo vel um vini sína. Það rifjast upp margar góð- ar minningar og er mér minnisstæð skemmtileg tjaldútilega sem við fór- um í, þrjár fjölskyldur saman. Þá helgi voru sumardagar eins þeir ger- ast bestir á Íslandi, 25 stiga hiti og sól. En það er bara þannig að þegar ég minnist Huldu þá er eins það hafi allt- af verið sól og gott veður. Að sitja á pallinum með kaffibolla í sólinni, spjalla og hlæja og oftast bættist ein- hver í hópinn. Garðurinn fullur af börnum, hoppandi á trampólíni eða í heita pottinum og Kiddi einhvers staðar á vappi í kring að dytta að. Svo eru það ófá heimboðin til Huldu og Kidda sem ylja manni um hjartaræt- ur og rifja upp góðar minningar. Mik- ið á ég eftir að sakna hennar Hulda minnar. Gott var að koma inn á heim- ili Huldu og Kidda og sjá hve vel þau hlúðu að fjölskyldu sinni. Og fallegu börnin þeirra, þau eru aldeilis vel gerð börn. Brynja Rut sem var mikið stolt mömmu sinnar, falleg og vel gef- in og einstaklega góð stelpa. Eins voru það afar stoltir foreldrar sl. vor við skólaslitin í Klébergsskóla þegar Ívar Orri hlaut nemenda- og hvatn- ingarverðlaun menntaráðs Reykja- víkur, langyngstur allra. Ég veit að Kidda og Huldu þótti mjög vænt um þau fallegu orð sem skólastjórinn hafði um Ívar Orra. Kæra vinkonu kveð ég með þessu fallega ljóði. Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund og fagnar með útvaldra skara, þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver und. Hve gott og sælt við hinn hinsta blund í útbreiddan faðm Guðs að fara. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún.) Ég bið algóðan Guð fyrir elsku Brynju Rut og Ívar Orra sem hafa misst elskulegu góðu mömmu sína sem alltaf var til staðar og elsku Kiddi minn, megi kærleikurinn leiða ykkur í gegnum þessa miklu sorg og góður Guð styrkja ykkur á þessu erfiðu tím- um. Foreldrum, systkinum og ástvin- um Huldu votta ég mína dýpstu sam- úð. Guðfinna Ármannsdóttir. Elsku Hulda, nú er þinn tími kom- inn og þú hefur fengið hvíldina. Án efa mun ég sakna þess að koma til Brynju minnar og þú tekur á móti okkur með bros á vör. Þú tókst alltaf vel á móti mér og ég var alltaf velkomin inn á heimili ykkar þrátt fyrir veikindin undanfarin ár. Ég á margar góðar minningar um okkur saman og alltaf gátum við spjallað og hlegið okkur máttlausar því ekki vantaði húmorinn hjá þér. Elsku Brynja, Kiddi, Ívar og fjöl- skylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og megi guð veita ykkur styrk á erfiðum tíma. Elsku Hulda mín, í hjarta mínu og minningum lifir þú áfram. Ólafía Haraldsdóttir. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Yvonne Tix

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.