Morgunblaðið - 19.02.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
ÖGMUNDUR Jónasson, nýr heilbrigðisráðherra, mun
samkvæmt heimildum Morgunblaðsins slá af boðaða
sameiningu heilbrigðisstofnana á Norðurlandi. Hann
hefur síðustu tvo daga verið á ferð um Norðurland og átt
fundi með stjórnendum heilbrigðisstofnana og sveitar-
stjórnarmönnum á svæðinu.
Ögmundur vildi ekki tjá sig við Morgunblaðið í gær,
þegar eftir því var leitað, þar sem hann hyggst gefa Al-
þingi skýrslu í dag um fyrirhugaðar breytingar í heil-
brigðiskerfinu.
Heimildir blaðsins herma að heilbrigðisstofnanir verði
þrjár á Norðurlandi; ein á Norðurlandi vestra, ein á
Eyjafjarðarsvæðinu og ein í Þingeyjarsýslum.
Þannig munu heilbrigðisstofnanir á Hvammstanga,
Blönduósi og Sauðárkróki renna saman undir eina yf-
irstjórn og stofnanir á Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík fara
undir yfirstjórn sjúkrahússins á Akureyri. Heilbrigðis-
stofnunin á Húsavík mun þá hafa yfirstjórn með Norð-
austurlandi, utan Eyjafjarðar.
Fundar með sveitarfélögum
Þegar síðasti heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór
Þórðarson, kynnti áform um sameiningar stofnana kom
fram hörð andstaða við það á Blönduósi, Sauðárkróki og
Húsavík.
Lítil andstaða var við sameiningu stofnana á Vestur-
landi og líklegt að þeim áformum verði ekki breytt með
nýjum ráðherra. Hið sama má segja um Vestfirði og Suð-
urland en þar heyrðust einnig óánægjuraddir, eins og frá
Vesturbyggð vegna samruna við Ísafjörð og Vestmanna-
eyjum vegna samruna við stofnunina á Selfossi.
Nokkur sveitarfélög höfðu jafnframt lýst áhuga á að
taka yfir rekstur heilbrigðisstofnana, sér í lagi heilsu-
gæslunnar, og mun heilbrigðisráðherra eiga fundi með
sveitarstjórnarmönnum í næstu viku um þann áhuga,
samkvæmt upplýsingum blaðsins. Meðal sveitarfélaga
hafa þetta verið Vestmannaeyjar og Skagafjörður.
Sameining slegin af
Nýr heilbrigðisráðherra hyggst afturkalla sameiningu stofnana á Norðurlandi
Þrjár heilbrigðisstofnanir fyrir Norðurland vestra, Eyjafjörð og Þingeyjarsýslur
Í HNOTSKURN
»Fyrrverandi heilbrigð-isráðherra kynnti í upp-
hafi árs áform um fækkun
heilbrigðisstofnana á lands-
byggðinni úr 22 í 6.
»Nýr heilbrigðisráðherrahefur breytt hluta af þess-
um ákvörðunum.
»Óljóst er enn hvað verðurum starfsemi St. Jósefs-
spítala í Hafnarfirði.
»Ögmundur Jónasson gefurAlþingi skýrslu í dag um
heilbrigðismálin.
sjöunda tímanum.
Efnið var á vegum fyrirtækisins
Optimal sem framleiðir íblöndunar-
efni fyrir rækju að sögn Ásmundar.
„Við höfðum ekki upplýsingar um að
efnið væri þarna en var sagt að
meira ætti að vera inni í gámnum
sem var ekki þar þegar til kom.
Þannig að ýmsar spurningar vökn-
uðu.“
Útkallið í Grindavík kom daginn
eftir að slökkvilið var kallað til vegna
gassprengingar í heimahúsi á Ak-
ureyri. Þar voru 26 gaskútar innan-
dyra, sem sköpuðu mikla hættu fyrir
slökkviliðsmenn. Atvikin tvö vekja
upp spurningar varðandi þá óvissu
sem slökkviliðsmenn mæta daglega í
starfi sínu.
Jón Viðar Matthíasson, slökkvi-
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
„ÞETTA er eilíf þjálfun og megnið
af okkar tíma fer í að undirbúa sig
fyrir verkefni sem menn vita ekki
hvernig eru,“ segir Jón Viðar Matt-
híasson, slökkviliðsstjóri höfuðborg-
arsvæðisins, inntur eftir þeirri
óvissu sem einkennir starf slökkvi-
liðsmanna. Í gær var slökkviliðið í
Grindavík kallað til vegna leka eitur-
efna sem lengi var óvíst hver væru.
Efnið lak úr 40 feta gámi á iðn-
aðarsvæði austast í bænum. Slökkvi-
lið var kallað til um hádegið í gær
þegar tók að rjúka úr gámnum en
efnið hafði verið þar í geymslu í tvö
ár, að sögn Ásmundar Jónssonar,
slökkviliðsstjóra í Grindavík. „Á sín-
um tíma voru tvö tonn af þessu efni
sett í gáminn. Það var á brettum og
hafði allt saman lekið niður og var
komið í drullu. Vatn hafði komist í
efnið og efnasambönd fóru af stað
sem mynduðu reykinn.“
Vissu ekki um efnið
Efnið var innst í gámnum og hafði
vörubrettum verið staflað fyrir
framan sem þurfti að fjarlægja til að
komast að efninu. Um kl. þrjú var
fengin aðstoð frá Slökkviliði höfuð-
borgarsvæðisins og verkinu lauk á
liðsstjóri höfuðborgarsvæðisins,
segir þjálfun þeirra ganga út á að
takast á við óvissar aðstæður, hvort
heldur er í slökkviliðsstarfi eða
sjúkraflutningum. „Menn fara í út-
köll sem reynast kannski vera allt
önnur en skilgreint var í upphafi.
Þess vegna reynir mikið á að menn
fari varlega og fái ákveðna grunn-
menntun til þess að bregðast við
óvissunni.“
Ákvarðanir
út frá forsendum
Hann segir mennina þjálfaða í að
greina aðstæður og taka ákvarðanir
út frá forsendum hverju sinni. „Oft
hafa menn ekki nema lítið brot af
myndinni. Svo bætast alltaf upplýs-
ingar við og þá þurfa menn að end-
urmeta aðstæður.“
Hann tekur undir að starfið geti
verið andlega lýjandi og þess vegna
m.a. sé farið yfir öll útköll eftir á.
Oft aðeins með lítið brot af myndinni
Ljósmynd/Steinn Vignir
Eitur Mikill viðbúnaður hjá slökkvi-
liðinu vegna efnalekans í gær.
Mikill viðbúnaður hjá slökkviliðinu í Grindavík í gær vegna
eiturefnaleka í gámi á iðnaðarsvæði í austurhluta bæjarins
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær karlmann í 15 mánaða
fangelsi fyrir tvær líkamsárásir,
sem báðar „voru án nokkurs til-
efnis“ eins og segir í dómnum, ýmis
fíkniefna- og umferðarlagabrot og
vopnalagabrot. Til frádráttar dómn-
um kemur gæsluvarðhald sem
ákærði sætti frá 31. maí til 6. júní
2008. Ákærða er gert að greiða öðr-
um brotaþola líkamsárásar 324.700
krónur auk vaxta og samtals
1.884.234 krónur í sakarkostnað.
Jafnframt eru gerð upptæk til
ríkissjóðs 385,70 g af kókaíni, 9,71 g
af amfetamíni, 8,83 g af hassi, 2,9 g
af maríjúana og 1,29 g af tóbaks-
blönduðu kannabisefni, riffill, hagla-
byssa, gasvopn og 300.000 krónur í
reiðufé sem var í vörslu ákærða.
Ásgeir Magnússon héraðsdómari
kvað upp dóminn. Karl Ingi Vil-
bergsson aðstoðarsaksóknari flutti
málið fyrir ákæruvaldið, en verj-
andi ákærða var Björgvin Jónsson
hrl.
Dæmdur í
15 mánaða
fangelsi
Líkamsárásirnar tvær
án nokkurs tilefnis
HLUTIR rata nú oftar á viðgerðar-
stofur og síður á haugana en í góð-
ærinu, ef marka má viðgerðar-
verkstæði. Hjá radíóverkstæðinu
Són í Faxafeni er jafnvel afgreiðsla
verkstæðisins nýtt sem geymslu-
pláss undir sjónvörp sem bíða við-
gerðar. „Já, það er búið að vera
svolítið að gera hjá okkur,“ segir
Þór Ólafsson. „Fólk spáir greini-
lega frekar í að láta gera við tækin
sín en að kaupa ný.“ Oftast borgi
sig að láta gera við. „Það er metið
hverju sinni en tækin kosta nú mun
meira en í góðærinu og því er fólk
tilbúið að kosta aðeins meiru til en
áður.“
Dagbjartur Dagbjartsson hjá
Töskuviðgerðinni í Ármúla segir
það aukast að fólk komi með ferða-
töskur og dömuveski í viðgerð.
Starfsfólkið finni greinilega fyrir
því að fólk nýti hlutina betur nú en
áður. „Það er ekki spurning. Fólk
lætur frekar gera við það gamla en
að kaupa nýtt.“ ben@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Bættar Gömlu ferðatöskurnar öðlast nýtt líf hjá Dagbjarti Dagbjartssyni.
Morgunblaðið/Heiddi
Bilað Þór Ólafsson segir gömul sjónvarpstæki streyma inn til viðgerðar.
Viðgerðir vinsælar
Gamlir hlutir ganga í endurnýjun lífdaga í stað þess að enda á haugunum
GUNNAR Svav-
arsson, formaður
fjárlaganefndar,
hefur tilkynnt að
hann sækist ekki
eftir endurkjöri í
komandi kosn-
ingum. „Atburðir
síðustu mánuði
og vikur hafa
kallað fram upp-
gjör í stjórn-
málum og víðtæka umræðu um upp-
stokkun og aukið lýðræði,“ segir
Gunnar m.a. í tilkynningu sem hann
sendi frá sér í gærkvöldi.
Endurnýjun nauðsynleg
„Í ljósi þessa, m.a. til þess að
skapa svigrúm fyrir nauðsynlega
endurnýjun í efstu sætum framboðs-
listans, hef ég ákveðið að sækjast
ekki eftir endurkjöri í komandi al-
þingiskosningum. Ég tek þessa
ákvörðun í sátt við alla þá sem ég hef
starfað með í öllum stjórnmála-
flokkum um leið og ég þakka þann
mikla stuðning og hvatningu sem ég
hef jafnan fundið fyrir.“
Gunnar vík-
ur til hliðar
Gunnar
Svavarsson