Morgunblaðið - 19.02.2009, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 19.02.2009, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 Á STÓRA háskóladeginum í Nor- ræna húsinu á laugardag nk., frá kl. 11-16, fer fram námskynning þar sem fulltrúar frá sautján há- skólum í Danmörk kynna hvaða nám þeir hafa upp á að bjóða. Kynntur verður auk hefðbundins háskólanáms fjöldi annarra styttri námsleiða. Þar er um að ræða bæði iðn- og viðskiptanám auk margra annarra eins og t.d. hjúkrunar- og siglinganám. Ennfremur mun fulltrúi frá menntamálaráðuneytinu í Dan- mörku veita upplýsingar um það nám sem óskað er eftir, auk upplýs- inga um búferlaflutninga til Dan- merkur. Upplýsingar eru um skólana á www.danmark.is. Kynning á námi í Danmörku HÁTÍÐARSJÓÐUR sænska seðla- bankans, Riksbankens Jubileums- fond, veitti nýlega Stofnun Vigdís- ar Finnbogadóttur fjárstyrk upp á um 7,5 milljónir íslenskra króna sem er ætlað að stuðla að uppbygg- ingu framtíðarverkefnis stofnunar- innar, sem felst í að koma á fót al- þjóðlegri tungumálamiðstöð. Hár styrkur Sjö verkefni hlutu styrk frá Sam- tökum iðnaðarins til námsefnis- gerðar eða aðrar greinar sem varða iðnað. Alls námu styrkirnir 6,5 milljónum kr. Frá ársbyrjun 2006 hafa Samtök iðnaðarins styrkt 26 útgáfuverk- efni. Til þess hafa samtökin varið 26 milljónum króna eða að jafnaði 1 milljón kr. á hvert verkefni. Sjö hlutu náms- efnisstyrki SI í ár FYRIRTÆKIÐ Klæðning segir það beinar rangfærslur sem Orkuveita Reykjavíkur heldur fram að verk- efni við Hellisheiðarvirkjun sé sex mánuðum á eftir áætlun. Unnið sé við verkið af fullum krafti og það gangi ágætlega miðað við efni og aðstæður. Það sem hafi valdið töfum verði seint allt skrifað á reikning Klæðn- ingar heldur þvert á móti á OR. „Svo ótrúlegt sem það kann að hljóma hefur það gerst að fram- kvæmdarleyfi hafa gleymst af hálfu OR sem olli margra mánaða töfum, mistök við hönnun verksins valda því að Klæðning getur ekki haldið áfram með það að hluta til um þess- ar mundir. Þá hefur það ekki orðið til að flýta verkinu að OR hefur ver- ið staðið að því að gleyma að panta efni og fyrir skömmu gerðist það að til landsins kom skipsfarmur af píp- um í Hellisheiðarlögn sem var ekki einu sinni í réttri lengd,“ segir í yf- irlýsingu Klæðningar. Klæðning vísar ásök- unum OR á bug FORUSTUMENN SA og ASÍ ákváðu á fundi hjá ríkissáttasemj- ara í fyrradag að hittast á mánudag nk. til þess að fjalla um áframhald kjarasamninga og frestun fyrirhug- aðra launahækkana 1. mars nk. Fulltrúar samningsaðila hins op- inbera sátu einnig fundinn. Fundur á mánudag FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is SAMKVÆMT upphaflegri áætlun íslenskra stjórnvalda hefði mat á eignum og skuldum gömlu og nýju bankanna þriggja átt að ljúka í lok þessa mánaðar. Þá vinnu má rekja til neyðarlaganna sem samþykkt voru 6. október. Skilanefndir Fjár- málaeftirlitsins tóku yfir bankana þrjá 6. til 9. október á grundvelli fyrrnefndra laga. Hægar hefur gengið við að meta eignir og skuldir bankanna en áætl- anir gerðu ráð fyrir og er nú búist við að þeirri vinnu verði ekki lokið fyrr en í apríl. Ekki er hægt að leggja nýju bönkunum til 385 millj- arða í eigið fé fyrr en matinu er lokið og mat á eignum og skuldum bank- anna þar með ljóst. Vinnu verði ekki ógnað Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa margir kröfuhafa bankanna töluverðar áhyggjur af því hver niðurstaða matsins á eignum og skuldum verður. Eigið fé verður lagt til nýju bankanna í formi ríkis- skuldabréfa. Það sem kröfuhafar, þar sem lánveitendur gömlu bank- anna eru stærstir, „bíða spenntir“ eftir að sjá, eins og einn viðmælenda Morgunblaðsins komst að orði, er hvernig eignirnar verða metnar. Í efnahagsáætlun stjórnvalda og Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins segir meðal annars þetta: „Enn fremur viður- kennum við [stjórnvöld innsk. blm.] að það sé lykilatriði í réttlátri með- ferð gagnvart innstæðueigendum og kröfuhöfum á hendur yfirteknu bönkunum að nýju bankarnir greiði sannvirði fyrir þær eignir sem flutt- ar voru frá gömlu bönkunum.“ Nokkurrar óánægju hefur gætt meðal kröfuhafa bankanna með fyrirkomulagið sem viðhaft er varð- andi eignaumsýslu gömlu bankanna. Helst hafa þeir talið að þeir eigi að geta haft meira um það að segja hvernig eignum gömlu bankanna er ráðstafað. Mikill árangur hefur þó náðst að undanförnu í starfi skila- nefndanna, að sögn viðmælenda inn- an þeirra. Tekist hefur að koma á skilvirkara upplýsingaflæði milli nefndanna og kröfuhafa en var í fyrstu, sem hefur hraðað vinnu og aukið skilning kröfuhafanna á að- stæðum hér á landi. Vinnu verði ekki haggað Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa formenn skilanefnd- anna, Lárus Finnbogason, Steinar Þór Guðgeirsson og Árni Tómasson, lagt á það áherslu að boðaðar breyt- ingar á lögum um fjármálafyrirtæki leiði ekki til þess að vinna skila- nefndanna tefjist. Boðaðar hafa ver- ið breytingar á lögunum, meðal ann- ars ákvæði um að óheimilt sé að fara í mál við fjármálafyrirtæki í greiðslustöðvun. Héraðsdómur komst að því á dögunum að ákvæði þessi efnis færi gegn ákvæðum stjórnarskrár um grundvallarrétt allra til þess að fá úr málum skorið fyrir dómsmálum. Þá hafa einnig verið boðaðar frek- ari breytingar sem ætlað er að styrkja lagaumhverfið og „færa það nær þeim aðstæðum sem nú eru uppi“ eins og einn viðmælenda Morgunblaðsins komst að orði. Stefnt er að því að leggja fram frum- varp um fyrrnefndar lagabreytingar innan tíðar á vegum viðskiptaráðu- neytisins. Skilanefnd Landsbankans vinnur nú að því að klára vinnu við skýrslu- gerð sem kynnt verður kröfuhöfum seinna í vikunni. Þar verður meðal annars kynnt yfirlit yfir eigna- og skuldastöðu bankans. Meðal annars ættu að koma fram upplýsingar um hversu mikið mun falla á íslenska ríkið vegna Icesave-netreikninga Landsbankans. Ný lög ógni ekki vinnu  Formenn skilanefnda bankanna leggja áherslu á að breytingar á lögum setji vinnu nefndanna ekki úr skorðum  Neyðarlögin eru umdeild meðal lögmanna Morgunblaðið/Árni Sæberg Lögin kynnt Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, stóð í ströngu eftir að neyðarlögin voru sett á og bankastarfsemi yfirtekin. Í HNOTSKURN » Skilanefndir bankannahafa unnið að því að reyna að hámarka virði eigna gömlu bankanna, frá því þær tóku til starfa á grundvelli neyðarlag- anna. » Stærstir meðal kröfuhafagömlu bankanna eru lán- veitendur gömlu bankanna. » Eignir Glitnis voru sagðar36-46 prósent af skuldum en hjá Kaupþingi voru eignir um 20 prósent af skuldum. Forgangskröfur voru ekki inni í tölunni hjá Kaupþingi, sem skýrir muninn að mestu. Á fundi öldungadeildar Lögfræð- ingafélags Íslands 11. febrúar sl. ræddu lögfræðingar um neyðar- lögin og starf skilanefnda. Lárent- ínus Kristjánsson hrl., formaður Lögmannafélags Íslands og fulltrúi í skilanefnd Landsbank- ans, ræddi við lögfræðinga um starfið. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins voru lögfræðingar á fund- inum ekki sammála um hvort ís- lenska ríkinu hefði verið heimilt að grípa til þeirra aðgerða sem gripið var til, á grundvelli neyðarrétt- arsjónarmiða. Meðal lögfræðinga sem þetta ræddu var Hrafn Braga- son, fyrrverandi hæstaréttardóm- ari. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins spunnust nokkrar um- ræður um hvort ríkinu væri heimilt að standa í þeirri „eignaumsýslu“ sem í lögunum fælist. Þá voru fundargestir ekki allir sammála um hvort það gæti stað- ist fyrir dómstólum að tryggja innistæður íslenskra banka hér á landi að fullu en ekki með sam- bærilegum hætti erlendis. Ræddu neyðarlög og starf skilanefnda STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.