Morgunblaðið - 19.02.2009, Page 9

Morgunblaðið - 19.02.2009, Page 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is ÍBÚAR í Vík í Mýrdal mega búast við auknum ágangi sands á næstu misserum með tilheyrandi tjóni á mann- virkjum og óþægindum. Að óbreyttu mun sjórinn brjóta sér leið að íþróttavellinum eftir nokkur ár. Landrof hefur verið mikið í Víkurfjöru síðustu ára- tugi vegna ágangs sjávar. Rofið hefur að jafnaði verði 8-10 metrar á ári sem er með því mesta sem þekkist á jörðinni. Landgræðslan hefur unnið mikið að upp- græðslu til að hefta sandfok og lagt tugi milljóna í það. Í minnisblaði sem Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjóri og Gústav Ásbjörnsson héraðsfulltrúi tóku saman fyrir sveitarstjórnina eru ítrekaðar viðvaranir Land- græðslunnar vegna sandfokshættu í Vík. Fjöruborðið er að nálgast flóðvarnagarðinn sem byggður var 1995 og þegar skörð koma í hann verður fátt um varnir. Fram kemur að vegna þess hversu lítið landrými er orðið eftir á milli fjöru og byggðar sé nær ógerlegt að koma í veg fyrir sandfok inn í byggðina. Sandfok var síðast í Víkurþorpi sl. þriðjudagskvöld. „Það er eins og að vera í sandstormi á Mýrdalssandi, þegar þetta gengur yfir. Maður getur ekkert gert,“ segir Bryndís F. Harðardóttir sem býr við neðstu göt- una í Vík. Hún segir að sandurinn smjúgi alls staðar inn. Þrífa þurfi húsið og umhverfið og mála árlega. Unnið hefur verið að undirbúningi sjóvarna. Til hef- ur staðið að verjast sjónum við svokallaðan flóðvarna- garð sem er skammt sunnan við þorpið. Margir íbúar vilja verjast sunnar, í núverandi fjöruborði, og eiga meira svæði til að stoppa sandinn. Einnig hefur um- ræða um lagningu nýs vegar um Mýrdal áhrif því mikill fjöldi íbúa Víkur vill færa veginn í fjöruna. Ekki verður nægilegt pláss fyrir veginn ef sjóvarnagarðurinn verð- ur byggður samkvæmt núverandi áætlunum. Áformað var að hefja framkvæmdir í ár en ekki fékkst fjárveit- ing. Sveinn Pálsson sveitarstjóri segir það slæmt. Tek- in sé viss áhætta með því að fresta framkvæmdum því þótt landbrotið sé 8-10 metrar að meðaltali á ári geti komið stór áföll við vissar aðstæður. Vonast hann til að fjárveiting fáist til að byrja á næsta ári. Búast við auknu sandfoki  Vegna landbrots í Víkurfjöru færist sjórinn tíu metra í átt að húsum í Víkurþorpi á ári  Styttist í íþróttavöllinn Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Varnir Landgræðslan lét í gær aka grófri möl í skörð í fjöruborðinu til að hefta sandfok inn í þéttbýlið. • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Lagersala www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Str. 38-56 Nýjar vörur frá Útsalan enn í fullum gangi, mikill afsláttur , Smáralind, sími 554 3960 • Kringlunni, sími 533 4533 Tax-free-bomba Fríhafnarverð Verið velkomi n Fríhafnarverð á öllum vörum í verslunum okkar þessa helgi fimmtudag til sunnudags Kringlan, sími 533 4533 Smáralind, sími 554 3960 MARINE BIOLOGY COLLECTION Öflug orkublanda fyrir líflausa húð Gerir húðina bjartari og orkumeiri! Vertu velkomin á eftirtaldar kynningar: Fimmtud. 19. feb. Hygea Kringlunni kl. 13-18 Föstud. 20. feb. Hygea Smáralind kl. 13-16 Laugard. 21. feb. Hygea Smáralind kl. 11-15 LAGERSALA 50-70% afsláttur • Góð tilboð Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.