Morgunblaðið - 19.02.2009, Side 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009
Bólgu í munni og hálsi má lina með því að...
• Sjúga Strepsils-hálstöflur
• Drekka heita drykki - til dæmis kamillute með hunangi
• Forðast tóbaksreyk
Stíflaðar nasir má lina með því að...
• Nota nefúða - til dæmis Otrivin
• Sofa með hátt undir höfði - sem dregur einnig úr hósta
Þegar maður er með kvef og særindi í hálsi er almennt gott að...
• Drekka mikið af vökva
• Þvo hendurnar oft
• Forðast líkamlega áreynslu
• Lofta vel og vandlega heima fyrir en forðast þó vind og kulda
• Nota snýtupappír og henda eftir notkun
Otrivin auðveldar þér andardrátt
þegar þú ert með kvef!
• Otrivin skal úða einu sinni í hvora nös eftir
þörfum, 2-3 sinnum á dag.
• Nota í mesta lagi 10 daga í röð.
Strepsils, við særindum í hálsi!
Strepsils er fáanlegt með þremur
bragðtegundum:
• Orginal
• Sítrónu- og hunangsbragði
• Mentólbragði
OTRIVIN nefúði og nefdroparnir innihalda xýlómetasólin sem vinnur gegn
bólgu, nefstíflu og slímmyndun vegna kvefs og bráðrar bólgu í ennis- og
kinnholum. Otrivin virkar fljótt og áhrifin vara í 6-10 klst. Otrivin getur valdið
aukaverkunum, s.s. ertingu í slímhúð og sviðatilfinningu. Einnig ógleði og
höfuðverk. Otrivin má nota þrisvar á dag en ekki lengur en í 10 daga í senn.
Otrivin 1 mg/ml: Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára. Otrivin 0,5
mg/ml: Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára. Einungis ætlað 2-10 ára
börnum að læknisráði. Varúð: Langtímanotkun Otrivin getur leitt til þurrks í
nefslímhúð. Sjúklingar með gláku eða þeir sem hafa ofnæmi fyrir
xýlómetasólin ættu ekki að nota Otrivin. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem
fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi:
Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210
Garðabæ.
STREPSILS töflur innihalda: Amýlmetakresól 0,6 mg, 2,4 tvíklóróbensýl-
alkóhól 1,2 mg. Strepsils töflur eru látnar renna í munni og leysast þar hægt
upp. Þannig nást fram staðbundin sótthreinsandi áhrif í munni og koki. Auk
þess hafa bragðefnin væg kælandi áhrif sem slá á ertingu. Venjulega er ein
tafla látin leysast hægt upp í munni á 2-3 klst. fresti. Einnig má leysa upp 1-2
töflur í heitu vatni og drekka sem heitan drykk. Lyfið þarf venjulega að nota í
3-4 daga og stundum í allt í eina viku. Notkun lyfsins hefur engin áhrif á önnur
lyf sem notuð eru samtímis. Ofnæmi eða ofnæmislík viðbrögð geta komið fyrir
en eru afar sjaldgæf. Hver pakki af Strepsils inniheldur 24 munnsogstöflur,
sem eru í hentugum þynnupakkningum. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á
umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðs-
leyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni
12a, 210 Garðabæ.
SKÚLI Helgason
gefur kost á sér í 4.
sæti í prófkjöri
Samfylkingarinnar
í Reykjavík. Hann
var fram-
kvæmdastjóri Sam-
fylkingarinnar í
þrjú ár en hefur
hætt störfum.
Skúli er með meistarapróf í op-
inberri stjórnsýslu frá University of
Minnesota í Bandaríkjunum og BA-
próf í stjórnmálafræði frá Háskóla
Íslands. Hann var dagskrárstjóri
Bylgjunnar og dagskrárgerð-
armaður á Rás 2 og útgáfustjóri hjá
Eddu miðlun og útgáfu.
Skúli Helgason
í framboð
Skúli Helgason
Samfylking og Vinstri hreyfingin
grænt framboð hafa komið sér
saman um að Alþingiskosningar
fari fram laugardaginn 25. apríl
næstkomandi. Morgunblaðið
mun daglega birta fréttir sem
tengjast framboðum, próf-
kjörum, kosningafundum o.fl.
Kosningar
2009
ÁRNI Þór Sigurðs-
son gefur kost á sér
í 2. sæti á fram-
boðslista Vinstri
grænna í Reykjavík
fyrir komandi
kosningar.
Árni hefur verið
þingmaður frá
árinu 2007. Hann
er með cand. mag.-
próf í hagfræði og rússnesku frá
Óslóarháskóla, auk náms í op-
inberri stjórnsýslu. Hann hefur
starfað að réttinda- og kjaramálum.
Árni Þór stefnir á
2. sætið í Reykjavík
Árni Þór
Sigurðsson
VILHJÁLMUR
Árnason gefur kost
á sér í 3.-4. sæti á
lista Sjálfstæð-
isflokksins í Suður-
kjördæmi í kom-
andi prófkjöri.
Vilhjálmur starfar
sem lögreglumaður
og er með próf í
viðskipta- og hag-
fræði. Heimasíða hans er
www.villiarna.is.
Vilhjálmur í framboð
í Suðurkjördæmi
Vilhjálmur
Árnason
VALDIMAR Agnar
Valdimarsson gef-
ur kost á sér í 7.
sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík.
Valdimar hefur
lokið meistaraprófi
í alþjóðaviðskiptum
og stjórnun frá Bo-
urnemouth Uni-
versity í Englandi, prófi í stjórn-
málafræði frá HÍ og prófi í
verðbréfaviðskiptum.
Valdimar í framboð
í Reykjavík
Valdimar Agnar
Valdimarsson
STJÓRN kjördæmisráðs VG í NV-
kjördæmi hefur ákveðið að efna til
forvals vegna komandi alþing-
iskosningar. Fimm manna kjör-
stjórn hefur verið skipuð sem lagt
hefur fram þá tillögu að forvalið
fari fram hinn 5. og 6. mars nk.
Auglýstur framboðsfrestur er til
23. febrúar nk.
Prófkjör VG fer
fram 5.-6. mars
STUTT
UTANRÍKISMÁLANEFND Al-
þingis mun ekki aðhafast frekar
vegna ummæla sem höfð voru eftir
forseta Íslands í þýskum fjölmiðlum
í liðinni viku. Eftir fund nefndarinn-
ar í gærmorgun sagði formaður
hennar, Árni Þór Sigurðsson, að
ekki væri ástæða til þess. „Það kom
ekkert annað fram en að það væri
rétt að orð hans hefðu verið rang-
túlkuð.“
Umræðu innan nefndarinnar um
ummæli forsetans er þó ekki lokið
því á fundinum fóru þingmenn Sjálf-
stæðisflokks í utanríkismálanefnd
fram á að Árni Þór óskaði eftir upp-
lýsingum frá forsetaembættinu og
utanríkisráðuneytinu vegna greinar
Eiðs Guðnasonar, fyrrverandi sendi-
herra, í Morgunblaðinu á mánudag.
Í greininni sagði Eiður að Ólafur
Ragnar hefði farið á svig við sann-
leikann þegar hann bar til baka frá-
sögn norska sendiherrans af fundi
forsetans með erlendum sendiherr-
um í Reykjavík. Sagðist Eiður hafa
lesið frásögn ann-
ars sendiherra af
fundinum sem
staðfesti norsku
frásögnina.
Á fundi nefnd-
arinnar í gær-
morgun var
fjallað um um-
mæli Ólafs Ragn-
ars Grímssonar,
forseta Íslands,
sem birtust í þýskri útgáfu Financi-
al Times. Þar var haft eftir Ólafi
Ragnari að Íslendingar myndu ekki
greiða skuldir vegna innlánsreikn-
inga Kaupþings í Þýskalandi.
Óheppileg túlkun
Ragnheiður Elín Árnadóttir, einn
fulltrúa Sjálfstæðisflokks í nefnd-
inni, sagðist telja óheppilegt hvernig
ummæli forsetans hefðu verið túlk-
uð, hvert svo sem samtal hans og
blaðamanns þýska blaðsins hefði
verið. omfr@mbl.is, gudni@mbl.is
Afli gagna um sendiherrafund
Utanríkismálanefnd aðhefst ekki frekar vegna ummæla sem höfð voru eftir for-
setanum í þýskum fjölmiðlum Ummæli forsetans rangtúlkuð af blaðamanni
Ólafur Ragnar
Grímsson