Morgunblaðið - 19.02.2009, Síða 17

Morgunblaðið - 19.02.2009, Síða 17
Fréttir 17INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 Dagskrá Kl. 13:30 Setning fundarins Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar Kl. 13:40 Ávarp menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir Kl. 13:50 Áskoranir í starfi stjórnanda í ferðaþjónustu í dag Hvaða máli skipta nýjar hugmyndir og skapandi hugsun við núverandi aðstæður? Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna háskólans Kl. 14:30 Fas leiðtogans smitar út frá sér Hvernig er hægt að auka jákvæðan starfsanda á tímum álags og breytinga? Steinunn I. Stefánsdóttir, ráðgjafi hjá Starfsleikni Kl. 15:10 Kaffi Kl. 15:40 Starfsmannaþjálfun Hvaða máli skiptir markviss þjálfun starfsmanna? Sagt frá reynslu fyrirtækja af Starfsmannaráðgjöf Starfsafls. Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Starfsafls Sigríður Ólafsdóttir, Farfuglaheimilið Laugardal Pálmar Sigurðsson, Hópbílar Kl. 16:00 „Færni í ferðaþjónustu II“ - Ferðaþjónustubraut Kynning á nýrri námsskrá í ferðaþjónustu sem er sjálfstætt framhald „Færni í ferðaþjónustu I“ og greint frá tengingu námsins inn á ferðaþjónustubraut. María Guðmundsdóttir, upplýsinga- og fræðslufulltrúi SAF Skúli Thoroddsen, Starfsgreinasambandinu Kl. 16:20 Kynning á nýju námi í HR fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu Um hvað snýst námið og hver var reynslan af náminu? Einar Torfi Finnsson, Íslenskir fjallaleiðsögumenn Kl. 16:30 Afhending starfsmenntaviðurkenningar SAF Össur Skarphéðinsson, ferðamálaráðherra Fundarstjóri er Aðalheiður Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís Í kaffihléi munu helstu starfsmenntasjóðir og fræðsluaðilar í ferðaþjónustu vera með kynningu á starfsemi sinni. Ekkert þátttökugjald, þátttaka tilkynnist í síma 511-8000 eða með tölvupósti: info@saf.is Dagur menntunar í ferðaþjónustu Samtök ferðaþjónustunnar halda fund 19. febrúar 2009 kl. 13:30-17:00 á Grand Hótel Reykjavík og er markmið fundarins að ræða mikilvægi fræðslu og símenntunar starfsfólks í ferðaþjónustu. Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is KARL Georg Sigurbjörnsson lögmaður, sem ákærður er fyrir fjársvik með því að hafa sem milligöngumaður um sölu gefið fimm eigendum stofnfjárbréfa í Sparisjóði Hafnarfjarðar ranga hugmynd um verðmæti bréfanna, sagði fyrir dómi í gær að hann hefði hvergi komið nærri ákvörðun um kaupverð, hvorki þegar stofn- fjárbréfin voru keypt á 25 milljónir né þegar hlutirnir voru seldir áfram fyrir 45 milljónir stuttu síðar. Hann hefði einungis verið að sinna lögmanns- störfum fyrir A-Holding, dótturfélag Baugs. 90 milljónir lagðar inn á reikning Sigurður Þórðarson, fyrrverandi ríkisend- urskoðandi, fór fyrir hópi fimm stofnfjáreig- enda í Sparisjóði Hafnarfjarðar sem seldu hluti sína með milligöngu Karls Georgs í febrúar 2006, um hálfu ári eftir að flestir aðrir stofnfjár- eigendur höfðu selt hluti sína. Líkt og aðrir stofnfjáreigendur áttu þeir tvo hluti og fengu samtals 50 milljónir í sinn hlut. Sigurður fékk síðar upplýsingar um að kaup- endur bréfanna hefðu greitt 90 milljónir fyrir tvö stofnfjárbréf og í kjölfarið kærði hann Karl til ríkislögreglustjóra. Fyrir dómi í gær lýsti Sigurður því að hann hefði leitað að öðrum kaupanda en Karli Georg en ekki tekist að finna hann. Hann hefði síðan hitt stjórnarmann í sparisjóðnum í samkvæmi á Grand Hóteli og sá hefði bent honum á Karl Georg. Ákæran sem ríkislögreglustjóri gaf út gegn Karli hljóðar upp á fjársvik með því að hafa greitt stofnfjáreigendunum fimm 50 milljónir þrátt fyrir að raunverulegt söluverðmæti til kaupenda væri 90 milljónir. Í ákærunni kemur m.a. fram að kaupendur, sex eignarhaldsfélög, hefðu lagt 90 milljónir inn á reikning lögmanns- stofunnar nokkrum dögum eftir að umrædd við- skipti fóru fram. Karl sagði ítrekað fyrir dómi í gær að ákvarð- anir um söluverð og síðar kaupverð hefðu ekki verið í sínum höndum heldur hjá Stefáni Hilm- ari Hilmarssyni, fjármálastjóra Baugs Group og stjórnarformanns A-Holding í Lúxemborg. Enginn þeirra fimm stofnfjáreigenda sem báru vitni í gær heyrðu nokkru sinni minnst á A- Holding í þessum viðskiptum. Það kom einnig fram fyrir dómi að salan á stofnfjárbréfunum fór ýmist fram með milligöngu Karls Georgs eða Sigurðar G. Guðjónssonar. Stefán Hilmar bar á sömu lund og Karl Georg, þ.e. að A-Holding hefði ákveðið kaup- og söluverð. Inntur eftir skýringu á mismuninum á söluverði Sigurðar og félaga og því verði sem fékkst fyrir bréfin stuttu síðar, sagði Stefán að þegar A-Holding byrjaði að kaupa stofnfjárhluti hefðu kaupin verið mjög áhættusöm enda hugs- anlegt að Fjármálaeftirlitið kæmi í veg fyrir að nýir eigendur bréfanna færu með virkan eign- arhlut. A-Holding hefði lagt í umtalsverðan kostnað vegna kaupanna og eftir því sem leið á viðskiptin hefði orðið ljóst að mikil eftirspurn var eftir bréfunum. Aðeins að vinna lögmannsverk  Lögmaður sem hafði milligöngu um kaup og sölu á stofnfjárhlutum í Sparisjóði Hafnarfjarðar kveðst einungis hafa verið að vinna lögmannsverk fyrir A-Holding  Kaupin sögð áhættusöm í upphafi Morgunblaðið/Ómar Byr Sparisjóður Hafnarfjarðar var samein- aður öðrum sjóðum undir nafninu Byr. Í HNOTSKURN » Þegar Sigurður Þórðarson, þáver-andi ríkisendurskoðandi, seldi stofn- fjárhluti sína höfðu flestir stofn- fjárhafar þegar selt sína hluti. » Allir sem seldu fengu 50 milljónir ísinn hlut fyrir tvo hluti. » Salan tengist hallarbyltingu í sjóðn-um þegar stjórn undir forystu Matt- híasar Á. Mathiesen var felld. » Karl Georg er ákærður fyrir aðhafa 200 milljónir af fimm stofnfjár- eigendum. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ANDRÉS Magnússon, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ), segist ekki vera sammála því mati starfsbróður síns, Knúts Signarssonar, framkvæmda- stjóra Félags íslenskra stórkaup- manna, að orðspor íslenskra fyrir- tækja á erlendum vettvangi sé horfið. Haft var eftir Knúti í Morg- unblaðinu á þriðjudag að íslenskir heildsalar fengju ekki afgreiddar vörur erlendis nema gegn stað- greiðslu. Andrés segir að vissulega glími ís- lensk fyrirtæki við margvísleg vandamál í sínu rekstrarumhverfi, tengd háum vöxtum, gengi gjald- miðla og bönkunum. Einnig hafi fyrstu vikurnar eftir hrun bankanna í október gengið erfiðlega að fá vörur afgreiddar og fluttar til landsins. Sumir náð betri kjörum „Lýsing Knúts er hins vegar í eng- um takti við það sem ég heyri á mínu liði. Ég hafði samband við tíu fyr- irtæki innan okkar vébanda, í ýms- um geirum, og nær undantekning- arlaust er staðan þannig að allir hafa náð góðum samningum við sína birgja erlendis. Eitt þeirra er í við- skiptum við 150 birgja og hefur hald- ið öllum sínum samböndum,“ segir Andrés og vísar jafnt til lítilla sem stórra fyrirtækja sem flytja inn olíu- vörur, ritföng, lyf, mat og ýmsar fleiri vörur. Reynsla félagsmanna SVÞ sé því almennt góð og ekki skipti máli í hvaða löndum birgjarnir eru. „Viðskiptakjörin eru nákvæmlega hin sömu og í vissum tilvikum hafa náðst betri samningar en áður. Birgjum er ljóst hvernig ástandið er á Íslandi og vilja ganga í gegnum þetta með fyrirtækjunum, eftir við- skipti til margra ára. Vandamál okk- ar er heldur ekki einangrað við Ís- land, öll fyrirtæki sem stunda milliríkjaviðskipti eru í svipaðri stöðu. Erlendir framleiðendur hafa af því hagsmuni að halda sínum við- skiptasamböndum í lagi,“ segir Andrés en bendir jafnframt á að fari svo illa að íslensk fyrirtæki geti ekki greitt sína reikninga þá muni orð- sporið hverfa. Fengið lengri frest Margrét Kristmannsdóttir, fram- kvæmdastjóri Pfaff og formaður Fé- lags kvenna í atvinnurekstri, tekur undir með Andrési. Orðspor ís- lenskra fyrirtækja sé langt í frá horf- ið. Hún viti ekki betur en flest fyr- irtæki hafi náð að semja við sína birgja. Sem dæmi nefnir hún að Pfaff hafi tekist að semja um allt að sex mánaða greiðslufrest. Þeir sem ekki hafi veitt lengri frest hafi í stað- inn veitt aukinn afslátt. „Ég drega enga dul á að rekstr- arumhverfið er erfitt en það eru allir að leggjast á eitt að koma okkur í gegnum þetta. Fylgst er náið með okkur og við þurfum líka að halda okkar birgjum vel upplýstum.“ Ná góðum samningum við erlenda birgja Framkvæmdastjóri SVÞ segir orðspor íslenskra fyrirtækja alls ekki horfið Í HNOTSKURN »Innan samtaka SVÞ eruum 350 fyrirtæki þar sem starfa um 45 þúsund manns. »Hjá um 200 fyrirtækjuminnan FÍS starfa hátt í tvö þúsund manns. »Andrés Magnússon var áð-ur framkvæmdastjóri FÍS, eða þar til á síðasta ári að Knútur tók við af honum. Andrés Magnússon Margrét Kristmannsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.