Morgunblaðið - 19.02.2009, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.02.2009, Blaðsíða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 Röð Sífellt fleiri þurfa á aðstoð að halda við að láta enda mætast. Þannig hefur röðin eftir mat hjá Samhjálp lengst töluvert undanfarna mánuði. Ómar Steinn Hafliðason | 18. febrúar Á Ísland að vera eitt kjördæmi? Á Íslandi ríkir ráðherra- ræði á kostnað þingræð- is. Það eru því ráðherr- arnir sem setja leikreglurnar í stað Al- þingis. Það staðfestir fjöldi samþykktra frum- varpa sem koma frá ráðherrum. Í kosningum eru þessir aðilar sem verða ráðherrar yfirleitt efstir á listum flokkanna. Eftir því sem fleiri þingmenn eru í hverju kjördæmi fjarlægjast kjós- endur þá sem eru ráðherraefni flokks- ins, þ.e. þeir eru með öruggt þingsæti. Í mínu kjördæmi, Reykjavík norður, þurfa stærstu flokkarnir væntanlega að fara niður fyrir 5% til að ráðherraefni þeirra lista detti út af þingi en ég sé það ekki gerast hjá stærstu flokkunum Sjálf- stæðisflokki og Samfylkingu. Ég er því ekki að kjósa um þá sem stjórna land- inu í raun heldur óbreytta þingmenn sem sitja eins og unglingar á kassa í stórmarkaði og afgreiða þegjandi og hljóðalaust það sem fyrir þau er lagt. Ég legg því til að fjölgað verði kjör- dæmunum í staðinn fyrir að fækka þeim. Meira: steinnhaf.blog.is Þorsteinn Siglaugsson | 18. febrúar Þrettán þúsund hvali – þrettán þúsund störf! Samkvæmt fréttum má búast við því að verði tvö hundruð og fimmtíu hvalir veiddir hér við land á árinu skapi það jafnmörg ný störf. Hvert starf jafngildir því að jafnaði einum hval. Nú eru þrettán þúsund manns atvinnu- laus. Það gerir þrettán þúsund hvali. Nóg mun af hvölum í kringum landið. Væri þá ekki skynsamlegast að sjávarútvegs- ráðherra hækkaði einfaldlega kvótann í þrettán þúsund hvali og útrýmdi þar með atvinnuleysi í eitt skipti fyrir öll? Meira: tsiglaugsson.blog.is Karl Steinar Óskarsson | 18. febrúar Að skrifa undir óútfylltan samning? Ég get ekki með nokkru móti skilið hvers vegna við ættum að sækja um bara sísona? Ég er þeirrar skoðunar að leita eigi eft- ir því við EU hvort und- anþága fengist vegna sjávarútvegs- og landbúnaðarstefnu sambandsins. Ef ekki getum við gleymt því að sækja um. Séu EU-menn hins vegar á því að taka sérstakt tillit til okkar sérhagsmuna í sjávarútvegi og landbúnaði sé ég ekki neitt á móti því að leita samninga. Síðan yrði náttúrlega samningurinn borinn undir þjóðina eftir rækilega kynningu. Þjóðin á að fá að ákveða þetta mál og víst er að þetta verður eitt aðalkosninga- málið í ár. Meira: karl-steinar.blog.is Krafturinn í ferðaþjónustunni um allt land hefur komið mér skemmti- lega á óvart eftir að ég kynntist hon- um sem ferðamálaráðherra. Ferða- þjónustan er og verður á næstu árum meðal þriggja burðaratvinnuvega þjóðarinnar sem vega þyngst í gjald- eyris- og tekjuöflun. Áhugi á ferðum til Íslands hefur síst minnkað og enda þótt krappari kjör dragi úr kaupmætti og ferðalögum víða um heim kemur á móti að Ísland hefur breyst úr því að vera með dýrustu löndum í heimi yfir í eitt hið hagkvæmasta fyrir erlenda ferðalanga. Í stórblöðum og sjónvarpsstöðvum með mikið áhorf hefur að undanförnu verið farið lofsamlegum orðum um upplifanir af náttúru, menningu og mat á Íslandi. Allt er það enn til staðar hvað sem líður efnahagsþrengingum. Hin mikla og oft á tíðum nei- kvæða athygli sem beinst hefur að Íslandi sem und- anfara í alþjóðlegri kreppu hefur einnig vakið for- vitni um Ísland og Íslendinga. Ferðamálayfirvöld og flugfélög brugðust skjótt við kreppunni og vel gekk að koma því til skila í haust í sameiginlegu 100 milljóna króna átaki stjórnvalda og ferðaþjónustu- fyrirtækja að þjónusta við ferðamenn væri ná- kvæmlega hin sama fyrir og eftir kreppu á Íslandi, nema hvað verðlagið væri miklum mun hagstæðara en löngum áður. Enn góðar horfur Bókanir í Íslandsferðir lofa góðu fyrir sumarið sem í hönd fer en ferðalög Íslendinga til útlanda munu dragast verulega saman. Þannig er því til að mynda spáð af Keflavíkurflugvelli ohf. að í stað 2,2 milljóna farþega í fyrra muni 1,6 milljónir farþega fara um Keflavíkurflugvöll á árinu. Þar munar að sögn fyrst og fremst um Íslendinga, sem ætla í rík- um mæli að ferðast innanlands á þessu ári eins og heyra má hvarvetna í samtölum manna á meðal. Það má því búast við talsverðu álagi í ferðaþjónustu um allt land á komandi sumri. Mikilvægi leiðakerfa flugfélaganna, sem gera út frá Íslandi, fyrir íslenska ferðaþjónustu verður nú vel sýnilegt en þau skila stöðugum straumi ferða- manna til Íslands. Yfir 500 þúsund ferðamenn komu til Íslands á liðnu ári og var þar enn eitt metið sleg- ið. Flugfélögin brugðust við hruni íslenska mark- aðarins með því að einbeita markaðsfé sínu til aug- lýsinga á Íslandsferðum erlendis og það munar um minna. Horfurnar eru því góðar fram eftir ári þótt óvissa muni haldast þar til pantanir hafa endanlega verið staðfestar með vorinu. Það er ekki markmið í íslenskri ferðaþjónustu að gera út á lágt verð. Þvert á móti er stefnt að því að fagmennska, fjölbreytni og gæði séu í fyrirrúmi, þannig að erlendir ferðalangar fari héðan ánægðir með upplifanir sínar og telji sig hafa fengið mikið fyrir útlagðan kostnað. Ný framlög 500 milljónir Þrátt fyrir þrengri fjárhag hafa stjórnvöld á þeim stutta tíma sem ég hef gengið vaktina sem ferða- málaráðherra tekið ákvarðanir um að verja rúmum hálfum milljarði króna til nýrra þróunarverkefna í ferða- þjónustu innanlands, sem komið hef- ur til viðbótar öðrum fjárveitingum til greinarinnar. Nýtt fé til ferðamála er mikilsverð viðurkenning á þýðingu ferðaþjónustunnar sem framtíð- argreinar í uppbyggingu atvinnulífs um land allt. Það felur einnig í sér skilning á því að nauðsynlegt er að styðja við fjölbreytni og fagmennsku sem víðast á landinu til þess að tryggja þau gæði sem ferðamenn sækjast eftir og vilja greiða fyrir. Hér er fyrst til að taka 160 milljóna króna fram- lag til ferðaþjónustusprota á stöðum sem urðu fyrir barðinu á þorskaflalægðinni. Þá tók ég ákvörðun um að verja 200 milljónum af byggðaáætlun til upp- byggingar á ferðaþjónustu í byggðum landsins. Þremur þróunarverkefnum hefur í framhaldi af því verið ýtt úr vör í samvinnu Ferðamálastofu og Ný- sköpunarmiðstöðvar Íslands. Þar er um að ræða verkefnin GÁTTIR, sem er þróunarverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu, og KRÁSIR ÚR HÉRAÐI, sem snýst um svæðisbundin sérkenni í matvælum og ferðaþjónustu, og er 40 milljónum króna varið til hvors verkefnis. Einnig er 20 millj- ónum króna varið til gæðaþróunar í rekstri ferða- þjónustu. Nýlega var auglýst eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar á móttöku í höfnum fyrir farþega skemmtiferðaskipa og til nýsköpunar í ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Styrkirnir nema samtals 100 milljónum króna. Til viðbótar þessu veitir Ferðamálastofa eins og venja er til styrki til umhverfisbóta á fjölsóttum ferðamannastöðum. Nýtt umhverfi Engum blöðum er um það að fletta að sú ákvörð- un að flytja yfirstjórn ferðamála til iðnaðarráðu- neytisins var skref í rétta átt. Ferðaþjónustan er grein í hraðri uppbyggingu og nýtur nú góðs af því stuðningsumhverfi sem byggt hefur verið upp kringum frumkvöðlastarfsemi og iðnþróun. Sam- vinna Ferðamálastofu í þessu nýja umhverfi við Ný- sköpunarmiðstöð Íslands, Byggðastofnun og Orku- stofnun hefur tekist með miklum ágætum og skilað gagnkvæmum ávinningi. Þess má geta að þriðj- ungur af lánum Byggðastofnunar er til fyrirtækja í ferðaþjónustu og sú staðreynd að greinin stendur vel í skilum er til marks um vaxandi þrótt hennar. Í samræmi við tillögur nefndar um skipulag og fjármögnun í ferðaþjónustu hefur verið unnið að því að festa í sessi skipulag landshlutastofa sem hafi það verkefni að annast svæðisbundin markaðs-, upplýsinga- og uppbyggingarmál. Sjö slíkum lands- hlutastofum hefur nú verið komið upp í samvinnu ríkis, sveitarfélaga, fyrirtækja og ferðamála- samtaka. Það hefur verið kappsmál að tryggja þess- um markaðsstofum varanlegan rekstrargrundvöll og nú hillir undir það með 80 milljóna sérstöku framlagi til markaðs- og kynningarmála innanlands á fjáraukalögum 2008. Á þessu ári verður því varið til landshlutastofa, upplýsingastofa, ferðamála- samtaka og markaðsmála innanlands 145 milljónum króna í stað um 50 milljóna króna á sl. ári. Vonandi er þetta upphafið að varanlegum grundvelli, en áskilið er að sveitarfélög og fyrirtæki komi einnig að þessum verkefnum að sínu leyti. Meira fé í verkefni Á þessu ári verður um 400 milljónum króna af op- inberu fé varið til landkynningar og markaðssóknar erlendis af hálfu ferðamálaráðuneytisins. Veruleg- ur hluti þessa fjár er bundinn í rekstri landkynning- arstofa erlendis og í föstum verkefnum. Ferðamála- yfirvöld hafa í samræmi við vilja ferðaþjónustunnar lagt áherslu á að draga úr föstum kostnaði á þessu sviði og auka í þess stað fé til beinna markaðsverk- efna. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að end- urskipulagningu og nýrri stefnumótun í starfsemi Ferðamálastofu. Einn liður í því er að leggja niður skrifstofur Ferðamálastofu í Kaupmannahöfn og Frankfurt. Með því sparast umtalsverðir fjármunir, sem nýta má betur í hið eiginlega markaðsstarf. Í staðinn hefur verið tekin ákvörðun um að efna til náins samstarfs Ferðamálastofu, utanríkisþjón- ustunnar í sendiráðum okkar og Útflutningsráðs um markaðs- og kynningarstarf íslenskrar ferða- þjónustu á erlendum mörkuðum. Samstarfið verður kynnt á næstu vikum og verið er að ganga frá samningum um framkvæmdina. Markmiðið er að sérhvert sendiráð verði markaðsskrifstofa fyrir ferðaþjónustuna og við náum að samnýta þá þekk- ingu sem er til staðar í Útflutningsráði og hjá Ferðamálastofu í markaðssetningu íslenskrar ferðaþjónustu erlendis. Íslandsstofa í mótun Jafnframt þessari nýbreytni mun ég sem utan- ríkisráðherra leggja fram í næsta mánuði frumvarp til laga um Íslandsstofu sem ætlað er að skipu- leggja og samræma landkynningu og markaðsstarf fyrir íslenska vöru og þjónustu. Hugmyndin er að byggja starfið á grundvelli laga um Útflutningsráð en með lagabreytingunum er miðað við aðkomu sem flestra að kynningu Íslands og íslenskra af- urða. Þetta er gert í framhaldi af starfi ímyndar- hóps fyrrverandi ríkisstjórnar, sem lagði til að starf fjölmargra aðila að slíkum viðfangsefnum félli í einn farveg. Því hefur verið spáð að ferðafólki sem sækir okk- ur heim fjölgi í eina milljón fram til ársins 2015. Til þess að mæta slíkri tvöföldun þannig að vel fari og landið þoli, þurfum við að líta á ferðaþjónustuna sem burðarás í atvinnulífinu og sinna stefnumótun, skipulagi, rannsóknum og fjármögnun í þágu henn- ar af miklum krafti. Össur Skarphéðinsson »… þurfum við að líta á ferða- þjónustuna sem burðarás í atvinnulífinu og sinna stefnumót- un, skipulagi, rannsóknum og fjármögnun í þágu hennar af miklum krafti. Össur Skarphéðinsson Höfundur er utanríkis- og iðnaðarráðherra. Meira fé til ferðamála BLOG.IS Guðrún S Sigurðardóttir | 18. febrúar Þjóðarstoltið Ég meira hlustaði en horfði á afhendingu ís- lensku tónlistarverð- launanna í sjónvarpinu í kvöld af því ég var að vanda mig svo mikið við að prjóna lopapeysu á Baby born. Ég heyrði öðru hverju út- undan mér karlakór syngja smástef á meðan kynnarnir voru að koma sér á svið. Það var bara fyndið og skemmti- legt. Þess vegna brá mér þegar þeir byrj- uðu að syngja þjóðsönginn í lok athafn- arinnar. Mér datt ekki annað í hug en að þetta yrði smástef eins og allt sem þeir höfðu flutt áður og hvernig er þjóðsöng- urinn sem smástef? Hjartað í mér tók ýmis aukasjokkslög. Ég átti jafnvel von á því að þeir segðu allt í einu „djók“ og hættu að syngja í miðju lagi. Mér leið ekki mjög vel. Þeir voru að syngja þjóð- sönginn okkar. Þeir kláruðu sönginn all- an og gerðu það bara nokkuð vel. Mér létti. Meira: sigriks.blog.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.