Morgunblaðið - 19.02.2009, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 19.02.2009, Qupperneq 26
26 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 MÖRÐUR Árnason, varaþing- maður Samfylkingarinnar, segir þrjá „lánlitla stjórnmálaflokka“ vilja að íslensk stjórnvöld hefji hráskinnsleik á alþjóðavettvangi um hvalveiðar hér við land. Stuðningur við hvalveiðar snúist ekki um neitt annað, hvorki gjald- eyristekjur, atvinnumál né for- ræði yfir fiskimiðunum. Meint lánleysi stjórnarand- stæðinga ríður þá ekki við ein- teyming því meðal skoð- anabræðra þeirra er sá stjórnmálamaður sem Samfylk- ingin treystir best úr eigin röðum til að vera forseti hins háa Alþing- is, Guðbjartur Hannesson. Guð- bjartur telur það vera sjálfsagt að nýta hvalastofnana eins og aðrar auðlindir. Hann sagði líka í þing- ræðu að forræðið væri án nokkurs vafa í höndum sjávarútvegs- ráðherra. Áður en Mörður reynir að snúa mér af trúnni um að hvalveiðar skapi störf og tekjur ætti hann að æfa sig á Guðbjarti. Hann er þrátt fyrir allt líklegri til að hlusta á ráðgjöf Samfylkingarmanna en ég þegar kemur að atvinnuþróun, efnahagsmálum, sjálfbærri nýt- ingu auðlindanna og sjálfræði ís- lensku þjóðarinnar, svo að ekki sé minnst á utanríkismál. Gunnar I. Birgisson Veiðiráðgjöf Sam- fylkingarinnar II Höfundur er bæjarstjóri í Kópavogi. JÁ, AUMINGJA hvalirnir. Fólk vill borða þá og hagnast á afurðum sem þeir gefa af sér. Þeir fá ekki að synda um frjálsir nema eiga á hættu að verða veiddir. Sama væri hægt að segja um kýrnar, hestana, já og vesalings hænurnar sem ég hef heyrt að fái ekki mjög konunglega meðferð. Hver er munurinn á hvölum og kúm t.d.? Jú kýr fæðast í fjósum til þess eins að við mennirnir get- um nýtt kjöt þeirra, en hvalirnir? Mér skilst að þeir syndi mjög frjálsir þangað til kannski að þeir verði skotnir. En hvað með okkur aumingja Íslendingana? Ég tel að hvert mannsbarn á Ís- landi í dag þekki einhvern sem er að berjast harðri baráttu fyrir fjárhagslegu lífi sínu, ef sá hinn sami er ekki líka í skítnum. Það er mjög sorglegt og dapurlegt. Fólki hefur verið sagt upp, á mjög erfitt með að fá vinnu, verðbólgan gerir það að verkum að dýrara er að kaupa í matinn og við skulum ekki einu sinni byrja á skuldunum sem aukast jafnt og þétt. Hvernig á hinn venjulegi maður að ráða við þetta? Nú vill svo til að fyrrverandi sjávarútvegsráðherra ákvað að leyfa hvalveiðar að nýju í atvinnu- skyni. Þetta myndi auka tekjur landsins og ekki er það nú verra að þetta gefur aukna atvinnu. Mér varð litið inn á heimasíðu sjáv- arútvegsráðuneytisins og var væg- ast sagt illa brugðið við að sjá þar grein þess efnis að hann Stein- grímur J. Sigfússon (núverandi fjármála-, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra) ætl- aði að taka sér tíma til að endurskoða ákvörðun forvera síns um leyfi á hval- veiðum. Leyfist mér að spyrja; hvernig dettur manni í þessari stöðu í hug að af- þakka fleiri hundruð störf auk milljarða króna tekna inn í landið? Er eitthvað að endurskoða virkilega? Ísland er á barmi þjóðargjaldþrots, og mér er spurn hvernig nokkrum hugsandi manni getur dottið í hug að höggva á höndina sem hefur gefið okkur brauð í gegnum tíðina, þ.e. hafið. Hver eru rökin? Jú, þau sterkustu sem ég hef heyrt frá þeim sem eru á móti hvalveiðum er ferðamannaiðnaður- inn. Ég vil ekki kasta rýrð á þá at- vinnugrein, því fer fjarri. En það sem sagt hefur verið um að hval- veiðar dragi úr ásókn ferðamanna hingað til lands er bull, leyfi ég mér að segja. Þetta hefur verið sagt aftur og aftur í gegnum tíð- ina, en alltaf hefur ásóknin hins vegar aukist. Skrýtið þykir mér. Þó ekki, því þetta er einfaldlega ekki rétt hjá þeim. Sjálf hef ég búið erlendis og m.a. unnið á ferðaskrifstofu í Bret- landi sem selur t.d. ferðir til Ís- lands, á marga erlenda vini og oft hef ég hafið umræður um hval- veiðar okkar Íslendinga við fólk sem ég hef kynnst. Ég verð að segja að afar sjaldan hef ég heyrt að það lasti okkur fyrir að leyfa veiðar á hvölum, og aldrei hef ég heyrt nokkurn mann gefa til kynna að hann muni hætta við að koma til landsins vegna þess að við leyf- um hvalveiðar. Ef þeir á annað borð hafa áhuga á að heimsækja okkar fagra land. Ef við hugsum út í það er þetta svo fráleitt. Ég hef heyrt að það þyki vin- sælt að koma við hjá Sægreifanum við Reykjavíkurhöfn og smakka kjötið af skepnunni eftir hvala- skoðunarferð um Faxaflóann. Einn ferðamaður hafði á orði við mig í Laugardalslauginni í sumar að það ætti endilega að skjóta fleiri hvali því þeir væru svo góðir á bragðið. Mér þykir það mjög sorglegt að við séum með svo lítið sjálfstraust sem þjóð að ætla að hvalaskoðun sé okkar helsta ferðamanna- aðdráttarafl. Hvað varð um Geysi og Gullfoss. Já og næturlífið í miðbæ Reykjavíkur og íslenska hestinn? Ég vara við framtíðarrökum þess efnis að ferðamönnum hafi fækkað á Íslandi vegna þess að við skyldum leyfa hvalveiðar. Þau rök myndi ég einnig telja bull vegna þess að við á Íslandi erum ekki eina þjóðin í heiminum sem glímir við kreppu, heldur er jú öll heimsbyggðin í járngreipum pen- ingaskorts og því eðlilegt að sam- dráttur verði í ferðalögum al- mennt á næstunni. Ég vil hreinskilnislega segja að ég er reið, mjög reið, vegna þess- arar ákvörðunar Steingríms. Einkum og sér í lagi þar sem ég fékk í tölvupósti í dag mynd af honum vera að skera hval. Með þessari grein er ég hvergi nærri búin að ljúka mér af og hella úr skálum reiði minnar. Ég vil líkja þessari ákvörðun hans við unga stúlku sem glímir við lystarstol. Neitandi líkama sín- um um mat vegna þess að hún hefur áhyggjur af áliti annarra á útliti sínu. Aumingja stúlkan, myndu margir segja. Aumingja Ísland ef við ætlum að neita okkur um tekjur hafsins. Aumingja hvalirnir Lilja Hrönn Guð- mundsdóttir lýsir sinni sýn á endur- skoðun Steingríms J. Sigfússonar á hvalveiðum »Ég vara við framtíð- arrökum þess efnis að ferðamönnum hafi fækkað á Íslandi vegna þess að við skyldum leyfa hvalveiðar. Lilja Hrönn Guðmundsdóttir Höfundur er bankastarfsmaður. Í PISTLI í Morg- unblaðinu sunnudag- inn, 15. febrúar skrifar Kolbrún Bergþórs- dóttir um það hvernig fólk eigi að haga sér gagnvart Davíð Odds- syni og seðlabanka- stjórum. Setur hún sig þar sem oftar í stell- ingar dömunnar í ákveðinni tegund bókmennta. Hún otar fingri að fólkinu sem hefur verið að mót- mæla fyrir framan Seðlabankann. Kallar það æsingamenn og telur það vera að reyna að öðlast fimm- tán mínútna frægð í sjónvarpinu – sem auðvitað er hlægilegt frá sjón- arhóli þess sem fær fimmtán mín- útur í viku til að ausa þar úr visku- brunni sínum. Svona hagar maður sér ekki! áminnir hún, ströng á svip. Svona hagar sér ekki siðað og skynsamt fólk! Það öskrar ekki og æpir! Það ber virðingu fyrir ein- staklingnum! Ég hætti mér ekki út í ræða við dömur um það hvern- ig sé tilhlýðanlegt að tjá sig í mótmælum; hvort mönnum beri frekar að hvísla en beita rómnum; hvað þá hvernig eigi að koma fram við Davíð Oddsson. Ég stað- næmist hins vegar við ásökun um að fólkið sem vill láta reka Davíð frá störfum „beri ákaflega litla virðingu fyrir ein- staklingnum“ og langar til að spyrja Kolbrúnu um það. Hún er jú blaðamaður á Morg- unblaðinu og hefur verið, minnir mig, í um það bil ár. Á þessu ári hefur fjölda einstaklinga sem störf- uðu við hlið hennar verið sagt upp störfum. Fólki sem ekki hefur unn- ið þar bara í ár heldur áratugum saman. Fólki sem sett hefur svip á Morgunblaðið með vönduðum skrifum og með fagmennsku í prentlistinni. Fólki sem ber ekki ábyrgð á efnahagslegu hruni þjóð- arinnar og hefur því sumt tekið þátt í mótmælunum á síðustu mán- uðum. Mér leikur sem sagt forvitni á að vita hvernig Kolbrún brást við uppsögnum þeirra? Hvort hjarta hennar sló jafn heitt með þeim koll- egum hennar sem nú ganga at- vinnulausir og það gerir með Davíð Oddssyni? Segðu mér það, Kolbrún? Gekkstu á fund yfirmanna þegar til dæmis Höllu Gunnarsdóttur og Þresti Helgasyni var sagt upp fyrir skömmu og áminntir þá hneyksluð: Svona hagar maður sér ekki! Svona hagar sér ekki siðað og skynsamt fólk! Það ber virðingu fyrir ein- staklingnum!? Ég bíð spennt eftir svari. Því hvergi á prenti hef ég rekist á leið- sögn þína í þessu máli né máli allra hinna þúsundanna sem sviptir hafa verið atvinnunni. Já, hvernig hagar skynsamt, siðað fólk sér? María Kristjáns- dóttir skrifar um viðhorf Kolbrúnar Bergþórsdóttur » Slær hjarta Kol- brúnar jafn heitt með kollegum hennar og það gerir með Davíð Oddssyni? María Kristjánsdóttir Höfundur er leiklistargagnrýnandi Morgunblaðsins. ALLIR sem eru háðir erlendum að- föngum finna fyrir full- um þunga af geng- ishruninu. Þrátt fyrir gengisbata hefur hver dollari nærri tvöfald- ast í verði á einu ári, hver evra og hvert pund hækkað litlu minna á sama tíma. Þá er horft til bjargræðis, fram- leiðsluaukningar og aukinnar um- setningar í þjónustu. Nemendum fjölgar í háskólum og áhersla er lögð á nýsköpun. Við þær aðstæður þarf að halda við meginstoðum skóla- starfs og rannsókna. Vísindafólk í rannsóknarstofnunum, kennarar og nemendur við háskóla styðjast öll við alþjóðlegar vísindagreinar sem við kaupum aðgang að gegnum bókasöfn þessara stofnana. Margt af þessu fólki kemur ekki inn á bókasöfnin svo árum skiptir en notar rafrænan að- gang þeirra í hverri viku. Nær allt þetta efni er erlent og þarf að kaupa það með rafrænni áskrift, hvort sem það er að gagnasöfnum, tímarita- pökkum eða einstökum tímaritaá- skriftum. Niðurstöður könnunar sem gefin var út í haust (http://oacs.shh.fi/ publications/elpub-2008.pdf) sýna að 4,6% þessa efnis birtast frá upphafi í opnum, ókeypis aðgangi. Þegar greinar eru orðnar ársgamlar hafa tæp 15% þeirra að auki opnast í að- gangi gegnum vefi útgefenda eða í svokölluðum varðveislusöfnum á vef. Enn þarf þess vegna að greiða fyrir allt að 95% útgefins vísindalegs efnis í áskrift, í evrum, dollurum og pund- um. Það er undir ákvörðun háskóla, rannsóknarstofnana og heilbrigð- isstofnana komið hver aðgangur starfsfólks þeirra verður að þessu efni næstu árin. Áskriftargjöld munu hækka eftir gengisþróun og þýðir lít- ið að vísa til ókeypis aðgangs sem ekki uppfyllir þessa þörf nema að einum tuttugasta hluta, eða einum fimmta hluta ef fólk er tilbúið að bíða allt að eitt ár frá því að grein kemur út. Það er ekki alltaf þannig að fólk í rannsóknum, kennslu og heilbrigð- isþjónustu hafi val hvað þetta varðar, það getur reynst nauðsynlegt að hafa aðgang að útgefnu efni um leið og það kemur út. Ríkið hefur stutt þennan aðgang með því að borga hluta kostnaðar af þeim söfnum rafrænna tímarita og gagnasöfnum sem eru í svokölluðum landsaðgangi (http://hvar.is). Þegar þetta er skrifað hyggjast yfirvöld ekki draga úr þessum stuðningi en öllum er ljóst hvert svig- rúm fjárveitingavaldið hefur eins og mál standa. Bókasöfn lands- manna, fyrst og fremst háskólabókasöfn, heil- brigðisbókasöfn og bókasöfn rann- sóknastofnana hafa greitt meginhluta kostn- aðar við landsaðganginn og allar rafrænar áskriftir fyrir utan hann. Sá hluti er kominn undir framlagi stofnana til bókasafnanna sem greiða aðgang- inn fyrir starfsfólkið. Aðgangurinn er svo einfaldur og sjálfsagður að marg- ir hafa gleymt því að þetta efni kost- ar mikið fé. Um leið hvetja bókasöfn- in til að vísindafólk komi auknu efni í opinn aðgang, sérstaklega í rafræn- um varðveislusöfnum. Á meðan er ekki hægt að fella niður áskriftirnar að keypta efninu. Án þeirra væri enginn aðgangur að greinum úr Science, Nature eða Harvard Bus- iness Review, svo dæmi séu tekin. Í hvert skipti sem íslenskt vísindafólk sér grein sem kemur frá Elsevier, Blackwell, Oxford University Press, Taylor & Francis, Wiley, Science, Nature, Sage eða Springer, í hvert skipti sem fólk flettir upp í Web of Science, í hvert skipti sem fólk nálg- ast efni gegnum ProQuest eða Ebsco Host á vef, þá hefur áskrift verið greidd svo að aðgangurinn mætti komast á. Þá gildir einu hvernig fólk hefur fundið greinina, hún birtist ekki í fullum texta nema aðgang- urinn sé greiddur. Aðgangurinn er orðinn svo auðveldur að margir halda að hér sé um opið, ókeypis efni að ræða, en það er ekki svo. Gæði bókasafnanna og rafrænu áskriftanna hafa mikil áhrif á starf stofnana sem þau þjóna. Gæði há- skóla eru metin meðal annars með stærð bókasafna þeirra. Allt fólk sem vinnur við háskólakennslu og rann- sóknir sér í hendi sér hvernig vinna þeirra myndi stóraukast ef það hefði ekki beinan aðgang að greinum frá þeim útgefendum sem eru taldir upp hérna að ofan. Það er niðurstaðan ef framlög til áskriftanna fá ekki að haldast í takt við verðþróun. Meginstoðir háskóla- starfs og rannsókna Sveinn Ólafsson skrifar um rafrænt aðgengi að vís- indagreinum Sveinn Ólafsson »Nær allar vísinda- legar greinar sem Íslendingar nota eru keyptar í áskrift sem hefur hækkað í takt við gengisþróun. Höfundur er upplýsingafræðingur og vinnur á bókasafni Landspítalans. Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.