Morgunblaðið - 19.02.2009, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 19.02.2009, Qupperneq 28
28 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Iðnaðarhúsnæði í topp standi með mikilli lofthæð og stórri innkeyrsluhurð alls 400 fm.Góð aðstaða fyrir starfsfólk. Stórt malbikað upphitað útisvæði.Verð kr. 62 m. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5, 105 Rvk 533 4200 Ársalir ehf – fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 Engjateigi 5, 105 Rvk Melabraut - Hafnarfirði Ingvi Rúnar, sölufulltrúi, 896 0421, ingvi@arsalir.is ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Höfum til leigu vel innréttaða skrifstofuhæð í lyftuhúsi, alls 530 fm sem getur leigst með öllum skrifstofubúnaði og tölvutengingum. Auk þess allt að 545 fm verslunarhús- næði á jarðhæð, sem skipta má í tvær einingar. Góð aðkoma og bílastæði. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5, 105 Rvk 533 4200 Ársalir ehf – fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 Engjateigi 5, 105 Rvk Til leigu við Laugaveg 178 Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali ERLEND stóriðja hérlendis hefur verið afar umdeild allt frá því að samningar um ál- bræðslu í Staumsvík voru í undirbúningi fyr- ir hartnær hálfri öld. Af andstæðingum þeirra samninga var dregið í efa að þjóðhagslegur hagnaður af álbræðslunni væri sá sem látið var í veðri vaka, teflt væri á tvær hættur um orkuverð og ekki gert ráð fyrir mengunarvörnum í verksmiðjunni. Viðreisnarstjórnin svonefnda hafði þó sitt fram og Alusuisse hóf rekstur dótturfélags- ins ÍSALs sem enn starfar með breyttu eignarhaldi. Um 1980 komu í ljós stórfelldir meinbugir á rekstri fyrirtækisins vegna bókhaldsfalsana og skattaundandráttar. Fékk svika- myllan heitið „hækkun í hafi“. Jafn- framt blasti við að raforkuverð til ál- bræðslunnar stóð ekki undir framleiðslukostnaði og að óbreyttu legðist mismunurinn af vaxandi þunga á almenna raforkunotendur innanlands. Auðhringurinn sá sitt óvænna, féllst á endurskoðun samn- inga og tvöföldun á raforkuverði sem bjargaði hag Landsvirkjunar þá um sinn. Bundið fyrir bæði augu Afhjúpun svikamyllunnar í Straumsvík dugði skammt og íslensk stjórnvöld kinokuðu sér við að fara í saumana á efnahagslegum áhrifum erlendu stóriðjustefnunnar. Einn ráðherrann af öðrum gerðist tals- maður fyrir álbræðslur sem notaðar voru sem pólitísk skiptimynt og fóru stækkandi stig af stigi með tilheyr- andi kröfum um stórvirkjanir og línulagnir þvers og kruss um landið. Virkjanaiðnaðurinn hérlendis varð brátt ígildi hernaðariðnaðar í stærri löndum og hjúpaður leynd þar sem orkuverðið var lýst rík- isleyndarmál og her- kostnaðurinn af nátt- úruspjöllum í engu metinn. Undir merki Atlantsáls var reynt að koma fótum undir 210 þúsund tonna ál- bræðslu á Keilisnesi. Frægt varð margend- urtekið slagorð ráð- herrans sem á árunum 1988-1992 barðist harð- ast fyrir því máli: „Eitt tonn af áli frá ál- bræðslu hér á landi skilar álíka miklu í þjóðarbúið og eitt tonn af þorski upp úr sjó.“ Þegar ég lét fara ofan í saumana á þessum vísindum reynd- ust ósannindin margföld, en á eftir fylgdu á ráðherrastóli ótrauðir merk- isberar fyrir Norðurál og Fjarðaál og skemmst er að minnast gjafa- samnings síðustu ríkisstjórnar vegna álbræðslu í Helguvík. „Sitjum uppi með tapað spil“ Eftir að Kárahnjúkavirkjun og Fjarðaál komust á dagskrá hafa nokkrir hagfræðingar grafist fyrir um afkomu þessarar stærstu stór- iðjuframkvæmdar hérlendis. Fram- an af beindust athuganir þeirra eink- um að raforkusamningi Landsvirkjunar og Alcoa en nú hefur Indriði H. Þorláksson, fv. ríkisskatt- stjóri, litið yfir dæmið í heild, þ.e. efnahagslegt framlag allra þátta og birt niðurstöður sínar. Óhætt er að fullyrða að enginn hafi viðlíka for- sendur og Indriði til að gera þetta dæmi upp þrátt fyrir leyndina yfir orkuverðinu. Niðurstöðurnar eru sláandi: „Ívilnanir í sköttum o.fl. til handa erlendum aðilum vegna stór- iðju hafa m.a. verið réttlættar með því að þannig sé unnt að fá arð af orkuauðlindum. Lágt verð á raforku til stóriðju hefur á sama hátt verið réttlætt með þeim hag sem landið hefur af starfsemi stóriðjuvers. Margt bendir til þess að þversögnin í þessu hafi leitt til þess að við höfum leikið af okkur öllum trompunum og sitjum uppi með tapað spil.“ (Heima- síða: http://inhauth.blog.is/blog/ inhauth/ ) Sáralítill efnahagslegur ávinningur Vel rökstuddar umsagnir Indriða um einstaka þætti í stóriðjudæminu ættu að vera skyldulesning jafnt fyr- ir fræðimenn og embættismenn sem um þessi mál véla, að ekki sé talað um starfandi stjórnmálamenn og frambjóðendur í komandi alþing- iskosningum. Hér er aðeins rúm til að tæpa á fáeinum atriðum. Með því að lesa í ársreikninga starfandi ál- vera hérlendis kemst Indriði að því að virðisauki af starfsemi þeirra sé ekki mikill og líkur séu á að arður af orkulindinni, auðlindarentan, renni nær óskipt til orkukaupendanna, þ.e. stóriðjuveranna. Þá sé virðisauki vegna launa í álverunum ekki viðbót við hagkerfið heldur komi í stað launa fyrir störf sem ella hefðu orðið til. „Í heild má segja að efnahags- legur ávinningur Íslands af starfsemi stóriðjuvera sé lítill og hafi farið minnkandi á síðustu árum. Hann er nú vart meira en 0,1% – 0,2% af þjóð- arframleiðslu fyrir hvert álver. Arð- ur af íslenskum auðlindum kemur aðallega fram í hagnaði iðjuveranna og rennur vegna lágra skatta að mestu ósnertur í vasa hinna erlendu eigenda.“ Ísland í hlutverki nýlendu Þegar litið er yfir hvernig íslenskir stjórnmálamenn á stóriðjuvængnum hafa hagað sér síðustu tvo áratugi kemur hugtakið nýlenda ósjálfrátt upp í hugann, svo lágt er lagst í að greiða götu erlendra fjármagnseig- enda. Þannig hafa skattgreiðslur stóriðjufyrirtækja hérlendis verið lækkaðar um helming frá 1995 að telja og bera þau nú lægri skatta en þekkist í nokkru öðru þróuðu ríki. Jafnframt hefur íslenska ríkið afsal- að sér rétti til að hækka tekjuskatt á stóriðjufyrirtækin sem lögaðila um- fram ákveðna lága prósentu og mun það vera einsdæmi á Vesturlöndum. „Lægsta orkuverð“ og „lægstu skattar“ eru verðmiðarnir sem hengdir hafa verið á Ísland til við- bótar við náttúruspjöll sem engin mælistika nær yfir. Gjaldþrota stóriðjustefna Hjörleifur Gutt- ormsson skrifar um stóriðjuver, álverð og skatta af stóriðju »Umsagnir Indriða ættu að vera skyldu- lesning jafnt fyrir fræði- menn og embættismenn svo og stjórnmálamenn og frambjóðendur í komandi alþingiskosn- ingum. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. BÆJARFULLTRÚ- AR Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Akraness lofuðu því fyrir síðustu kosningar að bæta þjónustu við bæjarbúa. Í upphafi kjörtímabils- ins var ákveðið að ferð- ir í strætó innanbæjar yrðu fríar. Það kunnu bæjarbúar að meta og jókst aðsókn í strætó verulega og minnkaði um leið álag á gatnakerfi bæjarins. Síðar var tekin sú ákvörðun að frítt yrði í sund fyrir börn yngri en 13 ára og sömu sögu er að segja af eldri borgurum, atvinnulausum og öryrkjum og hefur þessi nýbreytni mælst vel fyrir. Í nýrri fjárhagsáætlun var ákveð- ið að auka styrk til ungmenna, sem stunda íþrótta- og tómstundastörf, úr 5 þúsund krónum í 20 þúsund krónur á ári. Sú ákvörðun mun án efa valda straum- hvörfum í ástundun ungmenna í heil- brigðu félagsstarfi sem án efa er besta forvörn gegn vímu- efnanotkun. Einnig munu þessir stór- auknu styrkir létta undir fjárhag barna- fjölskyldna. Á þeim erfiðu tím- um sem við nú upplifum þurfa bæj- aryfirvöld að standa vörð um fjöl- skylduna sem aldrei fyrr. Í því sambandi má nefna að ákveðið hef- ur verið í samstarfi við ÍA að bjóða atvinnulausum endurgjaldslaus af- not af tækjasölum á Jaðarsbökkum og í íþróttahúsinu við Vesturgötu frá kl. 9-11 alla morgna á virkum dögum. Fleira er í bígerð til þess að létta atvinnulausum lífið, t.d. frí út- lán í Bókasafni Akraness og fleira mætti nefna sem í ljós kemur á næstu vikum. Næstu mánuðir og ár verða án efa erfið í efnahagslífi þjóðarinnar. Í slíku ástandi mega bæjaryfirvöld ekki sitja hjá heldur verða að beita öllum tiltækum ráðum til þess að bæta atvinnuástandið á Akranesi. Meirihluti sjálfstæðismanna í bæj- arstjórn Akraness mun ekki liggja á liði sínu til þess að gera bæjarbúum komandi baráttu léttari og styrkja með því framtíð byggðar hér um slóðir. Ný og aukin þjónusta við bæjarbúa Gunnar Sigurðsson segir frá þjónustu bæjarins við Akurnesinga » Á þeim erfiðu tímum sem við nú upplifum þurfa bæjaryfirvöld að standa vörð um fjölskylduna sem aldrei fyrr. Gunnar Sigurðsson Höfundur er forseti bæjarstjórnar Akraness. MARGT hefur verið skeggrætt um áhrif ís- lensks áliðnaðar á efna- hagslífið undanfarið og hafa andstæðingar at- vinnuuppbyggingar á sviði álframleiðslu gjarnan verið þar fremstir í flokki. Út frá mismunandi forsendum hafa menn komist að mjög mismun- andi niðurstöðu, allt frá því að efna- hagsleg áhrif íslensks áliðnaðar séu nánast engin, upp í að þau séu svo mikil að Íslendingar séu í stórhættu af því að „setja öll eggin í sömu körfu“. Því hefur jafnvel verið haldið fram að íslensk álver skapi nánast engin störf í landinu. Ástæðan sé sú að hefði uppbygging í áliðnaði ekki komið til, hefði það fólk sem nú hefur atvinnu af því að framleiða ál til útflutnings, ein- faldlega gert eitthvað annað. Í álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði starfa 450 manns. Á álverslóðinni starfa auk þess 250-300 verktakar við margvísleg störf fyrir álverið. Þetta eru sam- anlagt nær 750 störf. Að auki hafa bæst við á Austurlandi fjölmörg störf sem beinlínis má rekja til fram- kvæmdanna hér eystra, auk starfa annars staðar á landinu. Það þarf eng- inn að velkjast í vafa um að efnahags- leg áhrif álversins í Reyðarfirði eru mikil. Það er mikilvæg ný kjölfesta í atvinnumálum fjórðungsins og hafi einhvern tíma verið þörf fyrir styrkar stoðir í íslensku atvinnulífi er það núna, þegar um fjórtán þúsund manns eru komin á atvinnuleysisskrá og fer fjölgandi. Íbúum í Fjarðabyggð fjölgar um 19% Á árunum 1990 til 2002 fækkaði íbú- um á Mið-Austurlandi um 1200 manns vegna samdráttar í hefðbundnum at- vinnugreinum, eða um tæp 13%, á meðan landsmönnum öllum fjölgaði um 13%. Þetta svarar til þess að allir íbúar Eskifjarðar hefðu flutt burt. Á sama tíma og álverið var í byggingu töpuðust um 300 störf í sjávarútvegi í Fjarðabyggð. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands hafa meðallaun á landsbyggðinni þrátt fyrir það verið hæst á Austurlandi frá árinu 2002, en þá voru komin upp áform um að fara í virkjunar- og álversframkvæmdir þar. Ný störf tengd starfsemi álvers- ins hafa orðið til þess að fjölskyldur sem höfðu flutt burt hafa fengið störf við hæfi í heimabyggð og snúið til baka. Ef borinn er saman fjöldi íbúa í Fjarðabyggð árið 2002 og árið 2008 er fjölgunin um 740 manns eða 19%. Við núverandi aðstæður, þegar atvinnu- leysi fer vaxandi, er hægt að gera sér í hugarlund hvernig at- vinnuástandið væri í Fjarðabyggð hefði bygg- ing álversins ekki komið til. Aukin umsvif annarra fyrirtækja Fram hefur komið að fyrir utan kaup á raforku, hafi Alcoa Fjarðaál keypt ýmsa þjónustu á Íslandi fyrir níu og hálfan millj- arð króna árið 2008. Stór hluti þessarar upphæðar hefur runnið til atvinnustarfsemi á Austurlandi. Hér starfa skipafélög, verkfræðistofur, hugbúnaðarfyrir- tæki, vélsmiðjur, rafverktakar og fjöl- mörg önnur fyrirtæki sem hafa getað aukið umsvif sín á Austurlandi veru- lega vegna þjónustu við álverið. 700-800 milljónir til sveitarfélaga Tekjur sveitarfélaganna á Austur- landi af fasteignagjöldum, hafnar- gjöldum og útsvari þeirra sem vinna hjá álverinu í Reyðarfirði og verktök- um á álverslóðinni, voru 700 til 800 milljónir króna árið 2008. Meirihluti teknanna rennur til Fjarðabyggðar og þær eru mikilvægur tekjustofn til að viðhalda og bæta þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Þá eru ótalin áhrif ýmissa styrkja sem Alcoa hefur veitt í samfélagsleg málefni á Austurlandi, svo sem til menningarviðburða, íþrótta, Vatnajökulsþjóðgarðs og fleira. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu nema þessir styrkir sam- tals rúmlega 300 milljónum króna frá árinu 2003 til 2008. Fyrirtækið hefur einnig haft ýmis óbein, jákvæð áhrif á atvinnustarfsemi á svæðinu, m.a. vegna áherslu á öryggismál starfs- manna og umhverfismál. Álverið og tengd starfsemi skapa mikilvægar gjaldeyristekjur og virð- isauka fyrir Austurland og íslenskt samfélag úr endurnýjanlegum orku- auðlindum. Þó að kraftaverk séu álíka sjaldgæf hér á Austurlandi og annars staðar, er einfaldlega fráleitt að halda því fram að áhrif álversins og Kára- hnjúkavirkjunar á samfélagið hér á Austurlandi hafi valdið vonbrigðum, eins og nýr umhverfisráðherra hefur haldið fram. Kraftaverk? Guðmundur R. Gíslason skrifar um áhrif álvers á atvinnulíf á Austurlandi »Umhverfisráðherra saknar kraftaverks á Austurlandi. Krafta- verk eru sjaldgæf, en efnahagslegt mikilvægi álversins í Reyðarfirði er ótvírætt. Höfundur er forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar. Guðmundur R. Gíslason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.