Morgunblaðið - 19.02.2009, Page 35
Stofuna ráku tveir herramenn og
Lillý var með fyrstu starfsmönn-
unum þar. Hún var sú sem hélt um
alla tauma á skrifstofunni. Flestar
aðgerðir sem farið var í á skrif-
stofunni, komu á borð Lillýjar.
Hún var með ávísanaheftið, hún sá
um vörslusviptingar, hún sá um
bankasamskiptin. Hún var algjör
útvörður skrifstofunnar og sýndi
vinnuveitendum sínum hundrað
prósent hollustu.
Hún sá einnig um ótrúlegustu
hluti fyrir þá, persónulega snún-
inga og innkaup. Ein okkar var bú-
in að vera allnokkurn tíma starf-
andi með henni áður en hún gerði
sér grein fyrir því að Lillý var alls
ekki tengdamamma annars herra-
mannanna.
Ein okkar sagði við fráfall henn-
ar að einn mesti töffari Íslands
væri fallinn frá. Það lýsir henni
nokkuð vel. Á hverjum morgni
mætti hún með þeim fyrstu á
vinnustað, kom á blússandi ferð-
inni á bílnum sínum, alltaf að flýta
sér, snaraðist inn hávaxin og þráð-
bein í baki, stórglæsileg svo eftir
var tekið og gekk til starfa af mikl-
um eldmóði. Hún leit nánast aldrei
upp úr verkefnunum nema til að fá
sér sígarettu. Í hádeginu fór hún
síðan á sama kraftinum heim til
sín að gefa manninum sínum að
borða, alltaf.
Á nútímamáli var hún svo kúl og
græjaði alla hluti.
Hún varð fyrir miklum áföllum í
lífinu hún Lillý en alltaf sagði hún
„Ekki vorkenna mér“ og sinnti
sínum verkum af æðruleysi.
Við gamlir samstarfsmenn hitt-
umst fyrir jólin 2007 og þá hittum
við Lillý. Hún var ekkert breytt,
alltaf sama flotta konan, sem
klæddist vönduðum fatnaði og
með glæsilegt hár. Ein okkar
keyrði hana heim en hún var farin
að tapa mjög sjón. Miklar deilur
urðu í bílnum þegar kom að því að
Lillý færi inn til sín því það var
ekki við það komandi að fylgja
henni að dyrunum. Hún gat þetta
ein.
Hún var eftirminnileg hún Lillý
og það var okkar lán að fá að kynn-
ast henni.
Samstarfskonur á Lögheimt-
unni,
Anna Sigríður, Lára, Kolbrún,
Sigurbjörg, Ingibjörg Þóra,
Brynhildur, Margrét Vala,
Svala, Margrét.
Elsku Lillý. Þú komst eins og
stormsveipur inn í líf mitt snemma
á mínum lögmannsferli. Barst með
þér glæsileika og ráðsmennsku.
Eitthvað eldri en við félagarnir og
þeir starfsmenn sem með okkur
áttu eftir að vinna. Nokkuð sem
enginn varð hins vegar var við
hvorki við vinnu né leik. Fjármálin
þitt aðalstarf, verkefni sem þú
tókst mjög alvarlega. Betur að
fleiri líkir þér hefðu verið við völd í
fjármálastofnunum landsins síð-
ustu árin. Minnist þess hvernig þú
sást til þess að ásókn okkar félag-
anna í peningakassa fyrirtækisins
með tilheyrandi úttektarmiðum
hætti með því að bjóðast til að lána
okkur frekar en að viðhalda þess-
um ósóma.
Þú áttir traust okkar óskipt sem
leiddi m.a. til þess að við dvöl okk-
ar Láru og barnanna erlendis um
tíma fengum við þig til að halda ut-
an um okkar persónulegu mál.
Leystir það óaðfinnanlega af hendi
eins og annað sem þér var falið.
Eitt var það sem þú taldir í þínum
verkahring sem vakti ef til vill ekki
hrifningu heima hjá okkur félög-
unum. Það var að sjá til þess að við
gengjum ekki um með lausa tölu
hvað þá tölulausir. Var þá gripið til
nálarinnar. Við vorum jú „dreng-
irnir“ þínir. Vakandi yfir velferð
okkar persónulega sem okkar
rekstrar.
Kæra Lillý, hafðu þökk fyrir alla
umhyggjuna og vinsemdina. Lára
og börnin hugsa til þín með þakk-
læti og elsku. Góða ferð til fyrir-
heitna landsins. Þar bíða ástvinir
og áreiðanlega er þar eitthvað sem
þú getur farið að skipta þér af og
leiða til betri vegar.
Ingólfur Hjartarson hrl.
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009
✝ Laufey Guð-mundsdóttir
fæddist í Hafnarnesi
við Fáskrúðsfjörð 11.
mars 1927. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 12. febrúar
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Guðmundur Sigurðs-
son, f. 11.5. 1902, d.
17.1. 1970, og Björg
Bergsdóttir, f. 21.4.
1899, d. 28.4. 1973.
Fósturfaðir Laufeyjar
var Sigurjón Níelsson,
f. 2.4. 1892, d. 7.1. 1971. Systkini
Laufeyjar eru: Alberta (fóst-
ursystir), f. 19.8. 1916, d. 29.2.2004,
Svanhvít (fóstursystir), f. 3.10. 1917,
d. 7.10. 1991, Ingólfur, f. 7.8. 1919,
d. 18.1. 2000, Björg, f. 11.9. 1920,
Ottó, f. 10.10. 1922, d. 23.5. 2005,
Guðrún, f. 25.4. 1929, Bergþóra, f.
7.7. 1930, Níels, f.
24.9. 1931, Jóhanna, f.
6.11. 1932, Sigurveig,
f. 3.1. 1934, Anna, f.
13.1. 1937, Lára, f.
29.5. 1938 og Ragnar,
f. 19.11. 1945.
Fyrri maður Lauf-
eyjar var Sigurjón Jó-
hannesson, f. 21.12.
1925, d. 17.12. 1970.
Foreldrar hans voru
Jóhannes Eiríksson
og Ragnheiður Helga-
dóttir.
Hinn 30.12. 1960
giftist Laufey seinni manni sínum
Magnúsi Ásgeirssyni, f. 31.5. 1925,
d. 27.6. 1969. Foreldrar hans voru
Ásgeir Guðmundsson og Kristín
Magnúsdóttir.
Útför Laufeyjar fer fram frá Ás-
kirkju í dag og hefst athöfnin klukk-
an 13.
Kær frænka mín er látin.
Ég kveð þig nú, kæra Laufey,
minni hinstu kveðju og þakka þér
samfylgdina á liðnum árum.
Farðu í friði, kæra frænka, á fund
þeirra sem þú hefur saknað.
Guð geymi minningu frænku minn-
ar, Laufeyjar Guðmundsdóttur.
Eftirlifandi systkinum og öðrum
ættingjum votta ég samúð mína.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins
degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist
eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Þín frænka
Þóra Kristín.
Elsku Laufey mín, lengi hef ég vit-
að að einhvern tíma kæmi að því að þú
yfirgæfir þennan heim. Þegar til þess
svo kom var ég alls ekki undir það bú-
in. Allar góðu minningarnar um sam-
verustundirnar okkar streyma um
hugann, enda eyddum við Laufey
miklum tíma saman. Það var alltaf
gott að koma til þín, enda dekraðir þú
við mig eins og prinsessu. Minning-
arnar eru margar um sterka konu
sem þekkti tímana tvenna. Aldrei var
maður skammaður og alltaf var Lauf-
ey yfirveguð, sama á hverju gekk.
Nú hefur elsku Laufey frænka
kvatt okkur og er komin á betri stað.
Laufey var ekki bara frænka mín,
heldur líka besta vinkona sem nokkur
getur átt. Henni var hægt að treysta
fyrir öllu, hún var aldrei að flýta sér
og hafði alltan nægan tíma til að ræða
málin. Hún tók mér sem sinni eigin
dóttur, enda var ég búin að vera hjá
henni frá unglingsaldri.
Laufey mín, ég fékk þann heiður að
vera hjá þér síðustu stundirnar og
finnst mér það hafa verið forréttindi.
Ég votta systkinum þínum og öll-
um aðstandendum mína dýpstu sam-
úð. Guð geymi þig, elskan.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Héðan skal halda
heimili sitt kveður
heimilisprýðin í hinsta sinn.
Síðasta sinni
sárt er að skilja,
en heimvon góð í himininn.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Vald. Briem.)
Þín,
Jóna Björg.
Elsku Laufey.
Mig langar að minnast þín með
nokkrum línum.
Ég man þegar ég fór með mömmu
og pabba til Reykjavíkur í heimsókn
en við áttum heima í Sandgerði og þar
búa þrjár systur þínar og fjölskyldur.
Það var alltaf gaman að koma til þín
og Madda, þú varst alltaf svo fín og
flott alveg eins og drottning. Svo þeg-
ar ég varð eldri flutti ég í bæinn að
vinna, síðan að búa. Áttum við þá góð-
ar stundir saman sem ég gleymi ekki.
Eitt sinn sem oftar labbaði ég upp
Laugaveginn á leið til þín og skoðaði í
búðarglugga, sá þá útstillt hjónarúm í
glugga sem heillaði mig alveg og fór
ég að segja þér frá því og vildir þú ólm
gefa mér fyrir útborgun í því sem ég
þáði, var þetta fyrsta hjónarúmið
okkar Matta, svona varst þú yndisleg.
Svo flyt ég aftur á Suðurnesin og
eignast mína þriðju stelpu sem ég
skírði Laufeyju í höfuðið á þér, elsku
Laufey mín. Ég vil þakka þér fyrir all-
ar okkar stundir. Nú ert þú laus við
allar þrautir sem þú hefur mátt þola,
vil ég kveðja þig með þessari bæn.
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, – Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(Sigurður Kristófer Pétursson.)
Þín systurdóttir.
Sig. Berta Grétarsdóttir.
Laufey Guðmundsdóttir
✝
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUÐMUNDUR ÓLASON
húsasmíðameistari,
Hlíf II,
Ísafirði,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði
þriðjudaginn 17. febrúar, verður jarðsunginn frá
Ísafjarðarkirkju laugardaginn 21. febrúar kl. 14.00.
Sigríður Halldórsdóttir,
Kristján Bjarni Guðmundsson, Helga Kristjana Einarsdóttir,
Guðrún Ólöf Guðmundsdóttir, Örn Sveinbjarnarson,
Salvar Finnbogi Guðmundsson, Jóna Þórdís Magnúsdóttir,
Vignir Guðmundsson, Rebekka Rut Rúnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SNÆBJÖRN ÁRMANN BJÖRNSSON
fyrrverandi bóndi á Nolli,
Grenilundi,
Grenivík,
lést á Grenilundi fimmtudaginn 12. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Laufáskirkju laugardaginn
21. febrúar kl. 13.30.
Björn Snæbjörnsson, Magga Kristín Björnsdóttir,
Sigurbjörg Snæbjörnsdóttir,
Stefán Sigurður Snæbjörnsson, Súsanna Poulsen,
Kristinn Snæbjörnsson, Kristín Sigurbjörg Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og
útfarar
GUÐRÚNAR BJARKAR RÚNARSDÓTTUR
FREDERICK,
Hátúni 37,
Reykjanesbæ.
Kenneth W. Frederick,
Gunnar Már Vilbertsson,
Sara Margrét Frederick,
Viktoria Lynn Frederick,
Fríða Felixdóttir, Rúnar Lúðvíksson,
Lúðvík Rúnarsson, Iðunn Ingólfsdóttir,
Gunnar Felix Rúnarsson, Arna Hrönn Sigurðardóttir,
Særún Ása Rúnarsdóttir, Jónas Þór Jónasson
og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vinarhug og
kærleik við andlát og útför elskulegs föður okkar,
afa og langafa,
AÐALSTEINS P. MAACK
húsasmíðameistara og
fv. forstöðumanns byggingaeftirlits ríkisins,
áður til heimilis að Hvassaleiti 56,
Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn 24. janúar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Skjóls fyrir góða umönnun og hlýhug.
Aðalheiður Maack, Óðinn Geirsson,
Pétur A. Maack, Kristjana Kristjánsdóttir,
Þórhallur Maack, Gyða Bárðardóttir,
Gísli Maack, Kara Margrét Svafarsdóttir,
Sigríður Maack, Már Másson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og bróðir,
GARÐAR STEINDÓRSSON,
Vesturtúni 50,
Álftanesi,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 17. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Jóhanna Guðrún Halldórsdóttir,
Kristín Garðarsdóttir, Björn Þórisson,
Bryndís Garðarsdóttir, Gísli Vagn Jónsson,
Áslaug Garðarsdóttir, Páll Hafnfjörð Hafsteinsson,
afabörn, langafabarn,
Sverrir Steindórsson.