Morgunblaðið - 19.02.2009, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009
Íslenski markaðsdagurinn er löngu orðinn árviss
viðburður í faglegu starfi markaðsfólks. Á ráð-
stefnunni á Nordica Hotel 27. febrúar kynna
innlendir og erlendir fyrirlesarar nýjustu strauma
og stefnur í markaðs- og auglýsingamálum. Um
kvöldið kemur síðan í ljós hverjir hljóta Lúðurinn,
íslensku auglýsingaverðlaunin, sem veittur er í
fjölmörgum flokkum til þeirra sem hafa skarað
fram úr í auglýsinga- og markaðsstarfi 2008.
Auglýsendur!
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
Pöntunartími er fyrir kl. 16.00 fös. 20. febrúar.
Blaðinu verður dreift með Morgunblaðinu og fylgir ráð-
stefnugögnum á Íslenska markaðsdeginum.
Íslenska
markaðsdagsins
– beint í mark
Fáðu þér áskrift að
Morgunblaðinu á mbl.is/askrift
sem haldinn er 27. febrúar
á Nordica Hotel
Meðal efnis:
• Viðtöl við fyrirlesara ráðstefnunnar
• Viðtal við formann Ímark
• Hvernig má bæta ímynd Íslands
með markaðssetningu
• Neytendur og auglýsingar
• Nám í markaðsfræði
• Góð ráð fyrir markaðsfólk
• Tilnefningar til verðlauna – Hverjir keppa
um Lúðurinn?
• Viðtöl við fólkið á bak við tjöldin í bransanum
• Árleg könnun Capacent meðal markaðsstjóra
360 stærstu fyrirtækja
• Ásamt fullt af öðru spennandi efni
26. febrúar gefur
Morgunblaðið út sérblað í tilefni
Gáfuleg spennumynd
Að anda að sér Veggspjald myndarinnar hefur þegar verið gert.
Styttist í Inhale, nýjustu mynd Baltasars Kormáks
NÚ styttist óðum í að nýjasta
mynd Baltasars Kormáks, Inhale,
verði frumsýnd, en gert er ráð
fyrir að hún verði fullkláruð fyrir
lok næsta mánaðar. Baltasar er á
leið til Bandaríkjanna um þessar
mundir þar sem hann mun leggja
lokahönd á myndina og fylgja eft-
ir vinnu við tónlist og hljóð-
blöndun.
Fjallað er um myndina á
heimasíðunni Twitchfilm.net, en
þar segir greinarhöfundur að
hann sé mikill aðdáandi Baltas-
ars. „Við höfum fylgst spennt
með gerð Inhale, annarrar mynd-
ar hans á ensku og þeirrar fyrstu
sem hann tekur utan Íslands,“
segir greinarhöfundur meðal ann-
ars.
„En hvernig munu einkenni
Baltasars sem leikstjóra koma út
við slíka umbreytingu? Ég er bú-
inn að sjá kynningarmyndbandið
og segi fullum fetum að þau
koma vel út. Dermot Mulroney
virðist eiga að bera myndina
uppi, en honum bregður fyrir í
öllum skotum myndbandsins.“ Þá
segir í greininni að Baltasar virð-
ist hafa tekist vel upp við að
skipta um umhverfi og fara frá
Íslandi yfir í eyðimörkina þar
sem Inhale er tekin. Loks spáir
greinarhöfundur því að myndin
geti slegið í gegn á meðal þeirra
sem sækjast eftir gáfulegum
spennumyndum sem varpa fram
siðferðilegum spurningum.
Fjöldi þekktra leikara fer með
aðalhlutverkin í Inhale og á með-
al þeirra má nefna, auk Dermots
Mulroney, þau Diane Kruger,
Sam Shepard, Rosanna Arquette
og Jordi Mollà. jbk@mbl.is
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
„SÍÐUSTU ár hefur Versló verið
mest áberandi í þessum mennta-
skólasöngleikjum, en þetta fer skrefi
lengra en allt það,“ fullyrðir Albert
Hauksson um nýjan íslenskan söng-
leik um Harry Potter er leikfélag
Menntaskólans við Sund frumsýndi í
Loftkastalanum í gærkvöldi. Albert
leikur sjálfan Harry Potter. „Þetta er
mikið stökk fram á við fyrir leiklistina
í MS. Við höfum heyrt það frá fólki
sem hefur séð þetta á prufum að
þetta sé það flottasta sem hefur kom-
ið frá menntaskóla í mörg, mörg ár.
Það hefur aldrei sést svona sjó áður.
Það eru sprengjur, ljósasjó, vídeó-
verk og tæknibrellur. Fólk svífur eig-
inlega um sviðið.“
Söngleikurinn hefur hlotið nafnið
Harry Potter og myrki herrann en
handritið vann Kolbrún Björt Sigfús-
dóttir upp úr völdum köflum bók-
anna. Hún og eiginmaður hennar Er-
lingur Grétar Einarsson sjá svo um
leikstjórn saman. „Þetta er heilmikið
og flókið verk fyrir okkur leikarana.
Þetta er tekið úr fjórðu, fimmtu og
sjöttu bókinni. Þetta er mjög vel
skrifað því það er sama hvort þú hef-
ur lesið þessar bækur eður ei, þetta
hangir allt saman. Það er snert á mik-
ilvægustu köflunum í sögunni.“
Hasar, læti, blóð og ofbeldi
Söngleikurinn er rúmir tveir tímar
að lengd, víst ekki fyrir allra yngstu
börnin og vakið hefur athygli að
stuðst er við lög erlendra rokksveita á
borð við Muse, Editors, Hole, Robyn
og Lykke Li í stað þess að vitna í stef
kvikmyndanna eða semja eigin lög.
„Við vildum ekki taka neitt úr bíó-
myndunum. Við vildum skapa alfarið
okkar útgáfu af Hogwarts-skóla.
Þessi rokklög sem eru í söngleiknum
eru mjög vel valin. Hún Kolbrún ger-
ir íslenska texta við öll lögin en text-
arnir í upprunalegu lögunum passa
mjög vel við það sem er í gangi í sögu-
þræðinum hverju sinni. Íslensku text-
arnir eru þó ekki alveg beint þýddir,
en út af þessu eiga lögin mjög vel við.
Fílingurinn í þeim öllum smellpassar.
Þetta er mjög myrk saga, og því ekki
beint barnaleikrit. Þeir sem hafa lesið
bækurnar ættu þó að hafa mjög gam-
an af þessu, sama þó þau séu ung. Það
er hasar, það eru læti, smá blóð og of-
beldi. Bara eins og í bókunum.“
Albert hver?
Albert Hauksson er augljóslega
metnaðarfullur ungur maður. Hann
er á eðlisfræðibraut í MS, sem hann
lýsir sjálfur sem „stærðfræðinörd-
braut“, en virðist ekki setja frekara
nám í raunvísindum í forgang. Auk
þess að leika og syngja spilar hann
einnig á gítar og píanó og lét hafa eft-
ir sér blákalt í Fréttablaðinu um síð-
ustu helgi að helsti draumur hans
væri að „meika’ða“. „Fyrir mér er
það að njóta velgengni í listum,“ út-
skýrir hann betur. „Ég mála líka og
er í tónlist. Að fá að starfa og ganga
vel í einhverju svona, það er draum-
urinn. Það væri æðislegt að komast
inn í Listaháskólann en það vita allir
hversu erfitt það er. Mitt vandamál er
að það er of mikið sem mig langar að
gera. Það eru margir sem vita ekkert
hvað þá langar að gera en mig langar
að prófa allt.“
„Stökk fram á við“
Menntaskólinn við Sund frumsýndi söngleik byggðan á
Harry Potter í gær Stuðst er við lög erlendra rokksveita
Voldemort rís Sagan í meðförum leikfélags MS hefst
um það leyti er hinn illi Voldemort rís á ný.
Morgunblaðið/Golli
Prófessor Dumbledore Leikur
lykilhlutverk í örlögum Harrys.
Harry í Hogwarts Hinn íslenski Harry Potter með skóla-
félögum sínum í Hogwarts-galdraskólanum.