Embla - 01.01.1946, Side 19
Halla Loftsdóttir sextug
Skáldkonan Halla Loftsdóttir varð sextng 12. júní s. 1. Fni Halla er löngu þjóð-
knnn fyrir ljóð sín og lausavísur og verður hiklaust talin í röð merkustu skáld-
kvenna íslenzkra.
I tilefni af afina linu mæltist ritstjórn Emblu til þess við frú Höllu, að hún segði
lesendum ritsins eitthvað frá ætt sinni og æviferli. Fara hér á eftir kaílar úr bréfi
hennar lil eins af ritstjórum Emblu.
......Fegin vildi ég geta orðið við beiðni ykkar um ýmsar upp-
lýsingar viðvíkjandi ævi minni. En þess læt ég þegar getið, að
þetta verða aðeins punktar, en ekki samfelld frásögn. Mér er
ómögulegt að gera slíkt úr garði svo, að boðlegt sé að senda fyrir
allra augu, enda tæplega til þess að ætlast af mér, sem nú er orðin
gömul kona, algerlega óvön ritstörfum, og engan tíma hef rnilli
svefns og þreytu. Þá er bezt að byrja á efninu.
Ég er fædd 12. júní 1886 að Kollabæ í Fljótshlíð. Foreldrar
mínir voru hjónin Loftur Loftsson frá Tjörnum við Eyjafjöll og
Sigríður Bárðardóttir frá Kollabæ. Urn ætt mína er ég j)ví miður
mjög ófróð. Afi minn, Loftur bóndi Guðmundsson á Tjörnum,
var af bændaættum og uppalinn í Landeyjum í Rangárvallasýslu.
Telja ættfræðingar, að ég sé komin í beinan karllegg frá Þorvarði
lögmanni á Skarði á Skarðsströnd. Móðir föður míns, kona Lofts
á. Tjörnum, liét Vilborg Þórðardóttir Brynjólfssonar. Var hún
ein af afkomendum síra Högna prestaföður. Er ætt sú mjög fjöl-
menn unr land allt. (Sagt er, að átta, sumir segja tíu, synir Högna
hemjruklæddir hafi fylgt honunr til grafar.) Foreldrar nróður
minnar voru jrau hjónin Bárður Sigurðsson og Halla Jónsdóttir.
EMRLA - 2
17