Embla - 01.01.1946, Side 70
tízka á Norðurlöndum. Það sam'a mátti raunar segja um gólf-
teppið.
Hugsa sér að gera æfingar á teppi. Það leit vel út og var sjálf-
sagt prýðilegt. En æfingarnar. Hamingjan hjálpi mér. Ég kann
ekki við þessar æfingar. Hamingjan lijálpi mér, ef ég Iief nú lent
á vitlausum stað — að vera að flækjast hingað suður eftir. — Ó,
livað ég vildi, að ég væri komin norður til Helsingfors til Elli
Rjörksten. Ætti ég að fara? Það er löng leið með lestinni norður,
en allt má gera. Hvað heldur þú, að forstöðukonurnar á Snoghöj
hefðu sagt um svona æfingar, allar í hlykkjum, þær, sem elskuðu
svo mjög hinar þráðbeinu h'nur. — Drottinn minn dýri. Ég hugsa,
að þær hefðu helzt sagt, að þær væru frá þeim vonda. Það eitt
Iiefði angrað þær stórum að vita gamlan nemanda sinn sitja Iiér í
ró og næði. — En ég sit nú ekki heldur í ró og næði. Allar heims-
ins áhyggjur hvíldu á mínum ungu herðum.
Tíminn búinn, biti framreiddur í borðsalnum. Hvað það er
óþægilegt að heyra stelpurnar masa og hlæja allt í kringum sig,
en vera sjálfur utanveltu. Þær halda víst, að það þýði ekkert að
tala við mig. Þetta lagast. bráðum, þegar ég æfist í þýzkunni.
Þú horfir svo undrandi á mig.
Hvernig gaztu vitað, að það mundi aldrei lagast, og hvernig
gat staðið á því, að þýzku stelpurnar ætluðu sér auðsjáanlega að
frysta okkur í hel eða flæma frá skólanum með þögn og afskipta-
leysi. Oft hefur mér dottið þetta kynlega fyrirbrigði í hug, því að
kynlegt var það. Já manstu nú í Danmörku. Þar voru allar stelp-
urnar undantekningarlaust svo elskulegar, að á betra varð ekki
kosið. Eða þá norsku, finnsku og sænsku stúlkurnar í Sigtúna.
Finnskan var óskiljanleg, en ef ekki var hægt að tala, þá var alltaf
hægt að brosa á Norðurlöndum. Nú, og kannske sunnar líka. En
handa útlending norðan úr höfum áttu þýzku stúlkurnar hvorki
bros né tal. — Nú þykist ég að lokum skilja, hvernig í því lá. Hér
var erfiður tveggja ára skóli, og nú hafði kvísazt, að útlendingur
ætti að fá að taka hann á 12 mánuðum. Óvíst, að þeim hafi verið
skýrt frá því, að þessi óvelkomni gestur hafi stundað nám og
kennslu samtals tvö ár áður en hann kom til þeirra. Líklega hafa
þær komið sér saman um einhvers konar ,,streiku“, því að nýi
68
EMBI.A