Embla - 01.01.1946, Qupperneq 86
trú manna á kraft þess, og Vogsósa, þar sem séra Eiríkur hinn
fjölkunnugi sat.
Því var það í júní 1940, að ég fekk tvær stallsystur mínar til
að skreppa með mér austur í Vog.
Við fórum úr Reykjavík um liádegi á laugardag með bíl að
Kleifarvatni, gengum 'upp Lönguhlíð og tókum stefnu þaðan á
Herdísarvík. En hvernig er annars Langahlíð, þegar upp er komið,
fjallið, sem dregið er með langri, beinni línu og sker sig því svo
sterklega úr öðrum fjöllum Reykjaness, sem öll eru eintómar
strýtur og hnúkar með skörðum á milli, séð úr Reykjavík? Það
var nógu gaman að kynnast því.
Þegar brúninni, sem við sjáum úr Reykjavík, sleppir, taka við
mosaþembur, síðan talsverðúr gróður og víða yndisfagrir vall-
lendisbollar með háfjallablómgresi. Fórum við því ekki óðslega
að neinu. Veður var hið bezta, logn og sólskin. En nú fundum við,
að þetta fjall er ekki einstakt í sjón, lieldur líka í raun. Gróður-
inn fer minnkandi, og nú tekur við hraun og aftur hraun, sem
virðist alveg ógengt; svo stórgert er það. Eitt einkennir þennan
stað sem fjall, að þaðan sér aðeins upp í himininn, og er því ekki
hægt að átta sig á nokkrum hlut nema eftir korti og áttavita eða
klukkunni og sólinni. Sjóndeildarhringurinn er ekkert nema
liraun og þústir, hver annarri líkar. Frá norðurbrún, sem heitir
Langahlíð, lækkar landið til .austurs og hækkar svo aftur, svo að
Jrað er eins og maður sé niðri í skál. Við gengum upp á hæstu
hraunstrýtuna og lituðumst um. Sáum við þá, að liraunið er lægst
í miðju. Tókum við nú stóran krók á liala okkar til að leita að
útgöngudyrum úr þessu völundarhúsi. Þegar við komum að þess-
ari lægð, reyndist hún vera helluhraun, sem liggur, má segja,
Jrvert yfir Jaessar ógöngur. Fréttum við síðar í Selvogi, að Jrað er
eina leiðin, sem fær er, Jjarna yfir. Þarna sáum við meira að segja
slóða á hellunum á stöku stað eftir hesta, en Jrær eru nokkuð víða,
Jressar steinlögðu götur á Reykjanesfjallgarði. Þegar við komum
að suðurbrún Jiessarar miklu hraunskálar, sáum við út á sjóinn,
en fram undan hallar landinu, sem er hraunstraumur mikill, til
suðurs. Er liraun Jrað illt yfirferðar, — lætra að vera vel skóaður
í slíku gangfæri. í þessum hraunstraumi sáum við einhvers konar
84
EMBLA